Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Árni Sæberg skrifar 30. október 2026 18:01 Héraðsdómur Reykjavíkur dæmir í málinu en ekki liggur fyrir hvar aðalmeðferð þess fer fram. Vísir/Vilhelm Ákveði sakborningarnir sjötíu í Landsbankamálinu svokallaða að halda uppi vörnum er ekki óvarlegt að áætla að málskostnaður nemi hundruðum milljóna króna, sem myndi líklega lenda á ríkissjóði að stórum hluta. Reyndir verjendur sem Vísir hefur rætt við telja réttast að þorri sakborninga játi sök.
Líkt og Vísir hefur fjallað um gaf Héraðssaksóknari nýverið út ákæru á hendur þeim Vytautas Saslauskas og Arturas Sodys ásamt 68 öðrum fyrir umfangsmikil fjársvik af Landsbankanum og peningaþvætti í tengslum við þau. Aldrei hafa fleiri verið ákærðir í einu og sama málinu hérlendis en þingfesting í ákærunnar fer fram á mánudag í Héraðsdómi Reykjavíkur og þingfestingunni verður streymt í annan sal í dómhúsinu við Lækjargötu. Erfitt að þræta fyrir peningaþvætti af gáleysi Langstærsti hluti ákærunnar, sem telur einar 149 blaðsíður, varðar peningaþvætti en auk aðalmannanna tveggja sæta 68 ákæru fyrir peningaþvætti, langflestir með því að taka við fjármunum með millifærslu og umbreyta í reiðufé eða flytja áfram með millifærslum og afla sér ólögmæts ávinnings af brotum aðalmannanna. Samkvæmt almennum hegningarlögum skal hver sem tekur við, nýtir eða aflar sér eða öðrum ávinnings af broti á hegningarlögum eða af refsiverðu broti á öðrum lögum, eða meðal annars umbreytir slíkum ávinningi, flytur hann, sendir, geymir, aðstoðar við afhendingu hans, leynir honum eða upplýsingum um uppruna hans, eðli, staðsetningu eða ráðstöfun ávinnings sæta fangelsi allt að 6 árum. Þá varðar slíkt brot sem framið er af gáleysi sektum eða fangelsi allt að sex mánuðum. Þannig getur maður framið peningaþvætti fyrir gáleysi með því að taka á móti peningum án þess að vita að peningarnir voru illa fengnir, að því gefnu að hann hefði átt að vita það. Mikill meiri hluti ákærðra í málinu er ákærður fyrir peningaþvætti og peningaþvætti af gáleysi til vara. Betur heima setið en af stað farið? Stefán Karl Kristjánsson lögmaður veltir því upp í samtali við Vísi hvort það þjóni tilgangi að halda uppi vörnum hvað peningaþvætti af gáleysi varðar. Framkvæmi maður ískalt hagsmunamat sjáist að ef málið fer í gegnum allt ferlið og leiðir svo til sakfellingar, þá sitji sakborningur uppi með sakfellingu og háan málskostnað, þegar það stefndi í það frá upphafi að hann yrði sakfelldur. Stefán Karl Kristjánsson lögmaður.Vísir/Vilhelm Þá komi upp sú spurning hvort ekki væri betra að losna við kostnaðinn með því að einfaldlega sleppa því að mæta í þingfestingu, hafi útivistarfyrirkall verið gefið út, sem sé líklega staðan hjá flestum. Hafi útivistarfyrirkall ekki verið gefið út gæti besta leiðin verið að mæta við þingfestingu og játa peningaþvætti af gáleysi og freista þess að ákæruvaldið sætti sig við þær málalyktir. Þá fengi viðkomandi líklegast vægan dóm og lágan reikning fyrir málsvarnarlaunum verjanda. Annar reyndur lögmaður sem Vísir ræddi málið við á fyrri stigum sagðist myndu ráðleggja sakborningi í málinu að játa strax, ef hann leitaði til hans. Þóknunin getur hæglega numið fleiri milljónum Þrátt fyrir að þáttur langflestra sakborninga í málinu sé mjög lítill getur málskostnaður af vörn hvers og eins þeirra hæglega numið fleiri millljónum króna. Þannig þyrfti verjandi til að mynda að sitja allan tímann í sex klukkustunda þingfestingu málsins á mánudag og alla aðalmeðferðina, sem mun vafalaust taka marga daga. Þá er ákæran í málinu heilar 149 blaðsíður og því gæti verjandi rukkað fleiri klukkustundir vegna undirbúnings málsins. Ekki er óvarlegt að áætla að dæmd málsvarnarþóknun verjanda í svo umfangsmiklu máli gæti numið minnst fimm milljónum króna. Taki allir sakborningar til varna gætu heildarmálsvarnarlaun því hæglega numið 350 milljónum króna. Málsvarnarþóknun verjanda í sakamáli er greidd af ríkinu, sem svo krefur ákærða um greiðslu hennar, hafi hann verið sakfelldur. Sé viðkomandi ekki borgunarmaður fyrir þóknuninni lendir hún því á ríkinu. Því gæti kostnaður ríkisins vegna málsvarnarlauna orðið ærinn. Þá er ótalinn annar sakarkostnaður og kostnaður við rekstur dómsmálsins en ekki er ósennilegt að leigja þurfi húsnæði undir aðalmeðferð þess.
Dómsmál Lögmennska Landsbankinn Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? Erlent Fleiri fréttir Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Sjá meira