Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Agnar Már Másson skrifar 28. október 2026 22:58 Gheorghe segir að hópur sendla vinni nú að því að stofna samtök Wolt-sendla í von um að geta farið í lögmætt verkfall. WOLT Wolt-sendlar á Íslandi gengu margir ósáttir af fundi með finnskum stjórnendum fyrirtækisins í dag. Talsmaður sendlanna segir þá hafa búist við því að geta rætt kröfur sínar en þess í stað hafi þeir fengið fyrirlestur um hvernig appið og algrímið virkaði. Hann vinnur nú að því í samstarfi við Eflingu að koma á fót eins konar samtökum Wolt-sendla í von um að geta skipulagt lögmætt verkfall. „Og það verður stórt verkfall,“ boðar hann.
Gheorghe Mihai Cacaliceanu, sem kallar sig talsmann Wolt-sendla, segir í samtali við Vísi að Wolt hafi boðið sendlum á fund í dag. Stjórnendur frá höfuðstöðvum fyrirtækisins í Finnlandi hafi komið til Íslands til að ræða við sendlana og Gheorghe segir að um 25 sendlar hafi mætt á fundinn. „Við bjuggumst við því að fá að ræða um okkar kröfur og öll þau vandamál sem við höfum vakið athygli á, en þau hefja fundinn á því að sýna okkur hvernig Wolt-forritið og algrímið virkar og útskýra hvernig þau telji að við séum að fá góð laun,“ bætir hann við. „Við vitum alveg hvernig við fáum greitt. Ég held að við vitum það betur en þau.“ Fyrir rúmum mánuði lögðu sendlar hjá Wolt tímabundið niður störf, mótmæltu við skrifstofur fyrirtækisins og vísuðu til þess að laun þeirra hefðu verið lækkuð um fjörutíu prósent á einu ári. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu nam lágmarksgreiðslan áður um eitt þúsund krónum en hljóðar nú upp á sex hundruð krónur fyrir hverja sendingu. Gheorghe vill meina að stjórnendur hafi ekki hlustað á kröfur sendla á fundinum í dag. Sendlar hafi fengið þau svör að það væri þeirra val að vinna fyrir Wolt eða ekki og ef þeim litist ekki á kjörin gætu þeir unnið annars staðar. Gheorghe segir að sendlarnir hafi flestir gengið af fundinum þegar um 45 mínútur voru liðnar. Að undanförnu hafa Wolt-sendlar unnið með stéttarfélaginu Eflingu og Gheorghe segir að sendlar á Íslandi muni á næstu dögum skipuleggja sig enn frekar. „Við erum að skipuleggja í samstarfi við Eflingu og félög Wolt-sendla í Danmörku og Noregi til þess að koma á fót eins konar samtökum fyrir Wolt-sendla á Íslandi,“ segir hann. Þar sem Wolt-sendlar eru skilgreindir sem verktakar en ekki launþegar semur Wolt ekki við stéttarfélög hvað þeirra kjör varðar. Sendlar í Skandinavíu hafa þó myndað smærri samtök á borð við Wolt Workers Group í Kaupmannahöfn og hafa þeir einnig notið stuðnings stærri stéttarfélaga, svo sem 3F í Danmörku eða Fellesforbundet í Noregi. Hingað til hefur hópur sendla á Íslandi aðallega skipulagt sig í gegnum óformlegan WhatsApp-spjallhóp. Gheorghe segir að Efling sé sendlum innan handar, einkum hvað lagaleg atriði varðar, svo að samtökin geti veitt þeim vernd ef þeir leggja niður störf. Þegar samtökin hafa verið stofnuð ætli sendlarnir í verkfall. „Og það verður stórt verkfall,“ segir Wolt-sendillinn.
Kjaramál Heimsendingarþjónusta Stéttarfélög Veitingastaðir Vinnumarkaður Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira