Neytendur

Unn­endur hamsatólgar geta andað léttar

Freyja Þórisdóttir skrifar
Skötuunnendur geta margir hverjir ekki ímyndað sér að borða sinn uppáhaldsfiskrétt án hamsatólgar. Þrátt fyrir að það hafi verið útlit fyrir að sú yrði raunin hefur nýr eigandi tekið við framleiðslunni.
Skötuunnendur geta margir hverjir ekki ímyndað sér að borða sinn uppáhaldsfiskrétt án hamsatólgar. Þrátt fyrir að það hafi verið útlit fyrir að sú yrði raunin hefur nýr eigandi tekið við framleiðslunni. Stóruvellir/Vísir

Fyrirtækið Stóruvellir ehf. í Bárðardal hefur verið selt en fyrir einungis mánuði síðan var útlit fyrir að það myndi hætta framleiðslu á tólg, hamsatólg, hangifloti og útikertum eftir rúma þrjá áratugi. Stofnandi fyrirtækisins segir söluna vera hið besta mál og að hann muni aðstoða nýjan eiganda við að læra handtökin enda sé um mikilvæga íslenska matarhefð að ræða.

„Þetta eru algjörlega frábærar fréttir,“ segir Garðar Jónsson í samtali við blaðamann Vísis en hann greinir frá því að framleiðslan verði áfram á Stóruvöllum í Bárðardal þar til um áramótin.

Reyndi að selja reksturinn 

Hann hóf ásamt fyrrverandi eiginkonu sinni að tilraunaframleiða hamsatólg árið 1991 og er nú búinn að selja vörur frá því árið 1993 en Garðar sér fram á að fara á eftirlaun bráðlega. Hann auglýsti reksturinn til sölu í fyrra og hafði einnig reynt að ræða við Norðlenska, sem framleiðir ríflega sjö hundruð mismunandi vöruliði úr kjöti, en án árangurs.

„Framleiðslan fer til Húsavíkur en við erum að framleiða þetta hérna núna hjá okkur, svo verð ég aðeins með honum [eigandanum] áfram og hjálpa honum af stað,“ segir Garðar. Nýir eigendur vilji halda áfram að framleiða vörurnar eins og hafi verið gert síðustu áratugina.

Sjá einnig: Engin hamsatólg í boði með skötunni nema einhver taki við framleiðslunni

„Það er í sjálfu sér ekki flókið að framleiða tólgina en það er ekki allt mælanlegt og það er það sem er snúið við þetta. Nú þarf að fara í gegnum það allhressilega,“ segir hann og bætir við að það séu um þrjár vikur liðnar síðan nýi eigandinn hafði samband og spurðist fyrir um reksturinn. Sá hafi séð fréttir tengdar því að Garðar væri að hætta framleiðslunni sökum aldurs.

Hamsatólgin hólpin

Útikertin sem framleidd eru á Stóruvöllum eru oft keypt og lögð við leiði en þau eru framleidd úr tólg.Stóruvellir ehf.

Nýju eigendurnir séu fjölskylda sem sé með húsnæði á Húsavík þar sem hafi áður verið matvælaframleiðsla. Því ætti ekki að vera mjög flókið að umbreyta rýminu en að Garðar ætli að selja þeim öll tækin og tólin sem hann hafi nýtt á Stóruvöllum þar til nú.

Aðspurður segir Garðar auðvitað vera blendnar tilfinningar sem komi upp við söluna á fyrirtækinu, enda hafi hann unnið sleitulaust að framleiðslunni í fleiri áratugi. 

Hann sé þó fyrst og fremst ánægður með að salan sé komin á skrið og að fólk verði ekki án hamsatólgar í skötuveislunum.

Sem fyrr segir eru Stóruvellir eina fyrirtækið á landinu sem framleiðir hamsatólg en einnig útikerti úr tólg sem víða er að finna við leiði og þá sér í lagi yfir veturinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×