Upp­gjörið: Sel­foss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Framarar unnu sterkan og mikilvægan sigur í kvöld.
Framarar unnu sterkan og mikilvægan sigur í kvöld. Vísir/Anton Brink

Fram vann mikilvægan sigur er liðið heimsótti Selfoss í botnslag Olís-deildar karla í handbolta í kvöld, 29-35.

Gestirnir í Fram voru sterkari aðilinn á fyrstu mínútunum og skoruðu fyrstu þrjú mörk leiksins. Selfyssingar vöknuðu þó til lífsins eftir um fimm mínútna leik og jöfnuðu metin í 5-5 þegar um tíu mínútur voru liðnar.

Stuttu síðar tók Fram þó völdin á nýjan leik og virtist geta skorað af vild. Á sama tíma áttu Selfyssingar í töluverðum erfiðleikum með að finna leiðir að marki gestanna og Framarar byggðu jafnt og örugglega upp gott forskot.

Mestur varð munurinn á liðunum sjö mörk í fyrri hálfleik, en heimamenn áttu síðasta orðið fyrir hlé og minnkuðu muninn niður í 16-22 áður en hálfleiksflautið gall og liðin gengu til búningsherbergja.

Selfyssingar mættu hins vegar ákveðnari til leiks í síðari hálfleik og voru fljótir að minnka muninn niður í fjögur mörk. Heimamenn fengu betri markvörslu eftir hlé sem skilaði sér einnig í nokkrum auðveldari mörkum en áður.

Framarar voru þó ekkert á því að hleypa Selfyssingum of nærri sér og náðu að stöðva blæðinguna og náðu að vinna aftur upp sjö marka forskot þegar um stundarfjórðungur var eftir af leiknum.

Þá tók hins vegar við annar góður kafli Selfyssinga, sem minnkuðu muninn niður í þrjú mörk í stöðunni 28-31. Heimamenn fengu gott tækifæri til að minnka muninn enn frekar, en eins og svo oft áður í leiknum voru tapaði boltar að gera liðinu erfitt fyrir og Framarar náðu að byggja upp forskot sitt á ný. 

Selfyssingar náðu ekki að brúa bilið eftir það og gestirnir í Fram unnu að lokum sterkan sex marka sigur, 29-35. Framarar stökkva því í það minnsta tímabundið upp í sjöunda sæti deildarinnar, en liðið er nú með sex stig eftir átta leiki. Selfyssingar verma hins vegar enn botnsætið með aðeins eitt stig.

Atvik leiksins

Snemma leiks átti sér stað heldur sérstakt VAR-augnablik þegar dæmdur var ruðningur á Selfyssinga. Í kjölfarið ákváðu dómarar leiksins að kíkja í skjáinn, og í það minnsta hefur undirritaður ekki fengið svör við því hvað var verið að skoða. Niðurstaðan varð allavega að lokum bara ruðningur.

Stjörnur og skúrar

Ívar Logi Styrmisson var markahæstur í liði Fram með sjö mörk úr sjö skotum, en næstur á eftir honum var Haukur Ingi Hauksson með sex mörk. Dagur Fannar Möller spilaði einnig vel fyrir Fram og endaði með ellefu löglegar stöðvanir og Arnór Máni Daðason datt í fínan gír í marki gestanna í seinni hálfleik og varði í heildina 13 skot.

Í liði Selfyssinga var Ragnar Hilmarsson atkvæðamestur með tíu mörk. Þó eru margir leikmenn Selfyssinga sem vita að þeir geta betur. Allt í allt tapaði liðið boltanum 19 sinnum í leiknum, sem er töluvert of mikið.

Dómararnir

Sigurður Hjörtur Þrastarson og Svavar Ólafur Pétursson fengu að vinna fyrir kaupinu sínu í kvöld. Ekki að það hafi verið svo svakalegur hiti í leiknum, heldur var bara nóg að gerast, fram og til baka. Í heildina héldu þeir félagar nokkuð jafnri línu á bæði lið, en þó vilja fulltrúar beggja liða líklega meina að meira hefði getað fallið þeim í hag. Eins og svo oft vill verða.

Stemning og umgjörð

Mæting í Set-höllina er alltaf nokkuð góð, sama hvernig gengi liðsins er. Stúkan tók líka nokkrum sinnum vel við sér og ekki er hægt að setja út á umgjörðina.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira