Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar 24. október 2026 10:32 Við hvetjum þolendur ofbeldis til að stíga fram, segja frá, leita sér hjálpar, kæra ofbeldið og treysta kerfinu. Við segjum foreldrum að vernda börn sín, koma þeim úr ofbeldisaðstæðum og leita til þeirra stofnana sem eiga að tryggja öryggi þeirra. Enda ber foreldrum samkvæmt 28. gr. barnalaga nr. 76/2003 skylda til að vernda börnin sín gegn hvers kyns ofbeldi. En þegar foreldrar reyna að uppfylla þá skyldu getur kerfið sem á að tryggja börnunum vernd sjálft orðið ein stærsta hindrunin. Við tölum um hugrekkið sem þarf til að rjúfa þögnina og mikilvægi þess að þolendur láti vita. En hvað gerist þegar þau gera nákvæmlega það sem samfélagið biður þau um? Hvað gerist þegar þolandi hefur loksins safnað kjarki til að segja frá en mætir kerfi sem skilur ekki hvernig ofbeldi birtist eða hvaða áhrif það getur haft á hegðun, minni og frásögn? Þegar barn reynir að segja frá ofbeldi en frásögn þess er metin út frá væntingum um hvernig fullorðin manneskja ætti að tjá sig? Eða þegar foreldri leitar verndar fyrir barn sitt en þarf að berjast árum saman fyrir því að ótti barnsins, reynsla þess og öryggi séu tekin alvarlega? Við krefjumst þess að þolendur sýni hugrekki til að segja frá. En hvers vegna krefjumst við ekki af sama þunga þess að kerfið hafi þekkingu, hæfni og úrræði til að bregðast rétt við? Þessi spurning ætti að vera í forgrunni umræðunnar um ofbeldi og réttarstöðu þolenda á Íslandi. Vandinn snýst nefnilega ekki eingöngu um hvort við höfum sett nægilega skýr lög, heldur einnig um hvort fólkið sem á að beita þeim hafi þá þekkingu sem nauðsynleg er til að tryggja að þau nái tilgangi sínum. Ofbeldi er ekki alltaf sýnilegt Ofbeldi birtist ekki alltaf í marblettum, beinbrotum eða einstökum atvikum sem auðvelt er að afmarka í tíma. Það getur falist í stöðugri niðurlægingu, ógnunum, einangrun, fjárhagslegri stjórn, kynferðislegri þvingun, stafrænu eftirliti eða því að einstaklingur missi smám saman sjálfstæði sitt og öryggistilfinningu. Það getur verið kerfisbundið, langvarandi og svo samofið daglegu lífi þolandans að einstök atvik segja aðeins lítinn hluta sögunnar. Ofbeldið hættir heldur ekki endilega þegar sambandinu lýkur. Þolandi getur komist úr ofbeldissambandi en samt áfram þurft að eiga samskipti við gerandann vegna barna, fjárhagslegra skuldbindinga eða dómsmála. Í sumum tilvikum geta síendurteknar kröfur, hótanir um málshöfðun og misnotkun réttarfarslegra úrræða orðið leið til að viðhalda stjórn og áreitni. Hér þarf þó að gæta sérstaklega að því að rugla ekki saman misnotkun réttarfarslegra úrræða og ítrekaðri viðleitni þolenda til að leita verndar. Foreldri sem hefur áhyggjur af öryggi barns síns getur ítrekað óskað eftir stöðvun umgengni, umgengni undir eftirliti eða endurskoðun fyrri ákvarðana, án þess að sú háttsemi feli í sér áreitni eða tilraun til að stjórna hinu foreldrinu. Slíkar beiðnir geta þvert á móti verið eðlileg viðbrögð við áframhaldandi ótta, nýjum upplýsingum eða því að foreldrið telur fyrri ákvarðanir ekki tryggja öryggi barnsins nægilega vel. Þetta er einmitt ástæða þess að þekking á ofbeldi og afleiðingum þess skiptir svo miklu máli. Það er ekki hægt að meta tilgang eða réttmæti ítrekaðra beiðna eingöngu út frá fjölda þeirra. Skoða verður aðdraganda, fyrirliggjandi upplýsingar, mögulega áhættu og hvort nýjar eða áframhaldandi aðstæður réttlæti frekari skoðun. Það er grundvallarmunur á því að misnota kerfið til að viðhalda stjórn yfir annarri manneskju og því að leita ítrekað til kerfisins vegna þess að maður telur barn sitt enn vera í hættu. Það þýðir auðvitað ekki að ágreiningur foreldra sé sjálfkrafa ofbeldi eða að einstaklingur sem leitar réttar síns sé að beita ofbeldi. Hins vegar verður að gera þá kröfu að þeir sem fara með þessi mál hafi þekkingu til að greina á milli venjulegs ágreinings og aðstæðna þar sem annar aðilinn hefur beitt hinn ofbeldi eða heldur áfram að stjórna honum með ótta og þvingunum. Ofbeldi breytist ekki sjálfkrafa í samskiptavanda við það eitt að sambandinu lýkur. Þetta skiptir sérstaklega miklu máli í forsjár- og umgengnismálum, þar sem foreldrar geta verið settir í þá stöðu að þurfa að semja sín á milli þrátt fyrir sögu um ofbeldi. Sáttameðferð getur vissulega verið gagnleg í mörgum fjölskyldumálum, en hún getur einnig verið óviðeigandi eða jafnvel óörugg þegar verulegt valdaójafnvægi, ótti eða þvingandi stjórn er til staðar. Því verður að meta aðstæður áður en gengið er út frá því að sameiginleg lausn sé raunhæf. Börn eru ekki smávaxnar útgáfur af fullorðnu fólki Eitt það mikilvægasta sem við þurfum að skilja er að börn hafa ekki sama orðaforða, málþroska, tímaskyn eða getu og fullorðnir til að setja flókna og ógnvekjandi reynslu í samhengi. Þess vegna getum við ekki gert sömu kröfur til frásagna þeirra og við gerum til fullorðinna einstaklinga. Barn sem hefur orðið fyrir ofbeldi getur sagt frá reynslu sinni í brotum, talað í kringum það sem gerðist, notað myndmál eða eigin orð yfir hluti sem það skilur ekki að fullu. Það getur sagt frá einu atriði í dag og öðru síðar, ruglast á tímaröð eða átt erfitt með að útskýra hversu oft eitthvað gerðist. Barn getur jafnvel átt erfitt með að koma því í orð hvers vegna það er hrætt við tiltekna manneskju. Þegar gerandinn er foreldri eða annar nákominn einstaklingur geta ótti, sektarkennd, skömm og hollustutengsl gert frásögnina enn flóknari. Sum börn þegja, önnur segja frá og draga síðan frásögn sína til baka, á meðan enn önnur reyna að tjá vanlíðan sína með hegðun löngu áður en þau geta komið reynslunni í orð. Þetta þýðir ekki að öll hegðunarvandamál séu afleiðing ofbeldis eða að allar ósamræmdar frásagnir barna séu sannar. Það þýðir hins vegar að við verðum að hafa þekkingu til að meta þessar aðstæður án þess að gera óraunhæfar kröfur til barnsins. Ósamræmi í frásögn barns er ekki sjálfkrafa merki um ósannindi. Það þarf að skoða eðli ósamræmisins, aldur barnsins, þroska þess, aðstæður við skýrslutöku, áhrif spurninga og hvort önnur gögn styðji eða veiki frásögnina. Sönnunarmat á að veravandað, gagnrýnið og byggt á heildstæðu mati gagna, en ekki staðalmyndum um hvernig barn sem hefur orðið fyrir ofbeldi eigi að tala, hegða sér eða bregðast við. Við höfum þegar sérhæfða þekkingu og aðferðir til að taka rannsóknarviðtöl við börn, meðal annars innan Barnahúss. Sú þekking þarf hins vegar einnig að skila sér til þeirra sem síðar meta framburð barnsins, taka ákvarðanir um réttindi þess eða ákveða hvernig umgengni skuli háttað. Við eigum ekki að ætlast til þess að börn læri að segja frá eins og fullorðnir. Við eigum að krefjast þess að fullorðnir læri að hlusta á börn. Kynferðisbrotamál og óraunhæfar væntingar til þolenda Sambærilegur þekkingarskortur getur haft alvarlegar afleiðingar í kynferðisbrotamálum, þar sem frásagnir þolenda, hegðun þeirra og viðbrögð við brotinu geta haft veruleg áhrif á rannsókn og sönnunarmat. En hvernig eiga þolendur kynferðisbrota eiginlega að hegða sér til þess að vera taldir trúverðugir? Er ætlast til þess að þolendur berjist á móti, öskri eða gráti? Að þolendur leiti strax til lögreglu og segi nákvæmlega sömu sögu í hvert skipti? Og hvað gerist þegar viðbrögð þolenda eru allt önnur en samfélagið býst við? Viðbrögð fólks við kynferðisofbeldi eru einstaklingsbundin og geta verið mjög ólík. Sumir berjast á móti eða reyna að flýja, á meðan aðrir frjósa, verða óvirkir eða reyna að komast í gegnum aðstæðurnar án þess að auka hættuna. Sumir segja strax frá, aðrir þurfa langan tíma til þess og enn aðrir segja aldrei frá. Áföll geta einnig haft áhrif á hvernig einstaklingur man og segir frá reynslu sinni, þótt slík áhrif séu hvorki algild né sjálfstæð sönnun þess að brot hafi átt sér stað. Það er því varhugavert ef trúverðugleiki þolanda er metinn út frá fyrirfram gefnum hugmyndum um hvernig manneskja sem verður fyrir kynferðisbroti eigi að bregðast við. Sama á við um samskipti við meintan geranda eftir brot. Það að þolandi hafi áfram samskipti við viðkomandi, sýni ekki þau tilfinningaviðbrögð sem aðrir búast við eða kæri ekki strax getur átt sér margar skýringar. Slík atriði þarf að meta í samhengi við heildargögn málsins en ekki út frá staðalmyndum um hegðun þolenda. En vandinn einskorðast ekki við þau mál þar sem þolendur bregðast öðruvísi við en samfélagið ætlast til. Því hvað með þau sem gera nákvæmlega það sem þeim er ráðlagt? Leita tafarlaust á neyðarmóttöku, kæra brotið, gangast undir rannsóknir og veita lögreglu upplýsingar á fyrstu stigum málsins? Það tryggir heldur ekki að mál leiði til sakfellingar eða að frásögn þolandans verði ekki dregin í efa. Við megum ekki skapa þá hugmynd að ef þolendur bregðist bara „rétt“ við, leiti nógu snemma hjálpar eða segi nógu skýrt frá, þá muni réttarkerfið sjálfkrafa skila þeim réttlæti. Slík framsetning getur jafnvel orðið til þess að ábyrgðin á niðurstöðu málsins sé óbeint lögð á herðar þolandans. Sönnunarkröfur sakamála eru ríkar og sakfelling verður ekki byggð á því einu að einstaklingur lýsi því að hafa orðið fyrir broti. En sýkna felur heldur ekki sjálfkrafa í sér að frásögn brotaþola hafi verið ósönn. Það er grundvallarmunur á því að ekki hafi tekist að sanna brot svo hafið sé yfir skynsamlegan vafa og því að sýnt hafi verið fram á að brot hafi ekki átt sér stað. Þolendur eiga ekki að þurfa að standast eitthvert próf í því hvernig bregðast eigi við kynferðisofbeldi til að frásagnir þeirra séu teknar alvarlega. Og jafnvel þegar þolendur gera allt sem samfélagið biður um, getur réttarkerfið brugðist væntingum þeirra. Þess vegna verður umræðan um kynferðisbrotamál að ná lengra en til þess að hvetja þolendur til að kæra. Hún þarf líka að snúast um gæði rannsókna, faglegt sönnunarmat, ákvarðanir um saksókn og áfrýjun, upplýsingagjöf til brotaþola og þann stuðning sem stendur til boða þegar málsmeðferð lýkur án sakfellingar. Þetta á ekki síður við þegar börn verða fyrir kynferðisofbeldi, sérstaklega ef sá sem grunaður er um brotið er nákominn barninu. Ótti, tengsl, hollusta og skortur á skilningi á því sem gerðist geta haft áhrif á hvort, hvenær og hvernig barn segir frá.Sum börn telja sig jafnvel bera ábyrgð á ofbeldinu sem þau urðu fyrir. Sú sektarkennd getur haft áhrif á hvort, hvenær og hvernig þau segja frá. Þolendur kynferðisbrota eiga ekki að þurfa að hegða sér samkvæmt fyrirfram ákveðnu handriti til þess að frásögn þeirra sé tekin alvarlega. Réttlátt sönnunarmat krefst þess að bæði séu virt réttindi þess sem borinn er sökum og að frásögn brotaþola sé metin án ranghugmynda um ofbeldi og áfallaviðbrögð. Sakleysisreglan og sönnunarkröfur sakamála eru grundvallarréttindi sem ekki á að víkja frá, en þær gera ekki minni kröfur til þess að rannsókn og mat á gögnum byggist á viðeigandi þekkingu. Þess vegna þarf sérhæfð þekking á kynferðisofbeldi, samþykki, áfallaviðbrögðum og frásögnum barna og fullorðinna að vera hluti af menntun og endurmenntun þeirra sem rannsaka, sækja og dæma kynferðisbrotamál. Sama á við um lögmenn sem veita þolendum réttargæslu og stuðning í gegnum málsmeðferðina. Við verðum jafnframt að skoða hvort málsmeðferðin sjálf valdi þolendum óþarfa viðbótarskaða, meðal annars vegna langrar málsmeðferðar, endurtekinna frásagna, ófullnægjandi upplýsingagjafar eða skorts á viðeigandi stuðningi. Það er ekki nóg að réttarkerfið kunni að rannsaka kynferðisbrot. Það verður líka að kunna að meðhöndla fólkið sem málin varða. Þegar barnið kemst úr ofbeldinu en fær ekki aðstoð við afleiðingarnar Við tölum gjarnan um mikilvægi þess að koma börnum úr ofbeldisaðstæðum, en mun sjaldnar um hvað tekur við þegar þau eru komin í öruggt skjól. Hvað gerist þegar barnið heldur áfram að glíma við ótta, kvíða, svefnvandamál, reiði, vanlíðan eða hegðunarerfiðleika vegna þess sem það hefur upplifað? Hver ber ábyrgð á því að barnið fái þá aðstoð sem það þarf? Það er ekki nóg að fjarlægja barn úr hættulegum aðstæðum ef við skiljum það síðan eftir með afleiðingarnar. Langvarandi ofbeldi getur haft djúpstæð áhrif á þroska, líðan, tengsl og getu barna til að upplifa öryggi. Afleiðingarnar geta fylgt þeim inn í skólagöngu, vinatengsl og fullorðinsár og haft áhrif á hegðun þeirra með þeim hætti að umhverfið fer jafnvel að líta á barnið sjálft sem vandamálið. Barn sem bregst við langvarandi óöryggi með reiði eða erfiðri hegðun getur þurft á sérhæfðri aðstoð að halda. Það er ekki nóg að einblína á hegðunina án þess að kanna hvað liggur að baki henni. Jafnframt þarf að styðja foreldrið sem hefur komið barninu úr ofbeldisaðstæðum, enda getur það sjálft verið að glíma við afleiðingar langvarandi ofbeldis á sama tíma og það reynir að veita barninu öryggi, vinna úr eigin áföllum og takast á við þær áskoranir sem barnið stendur frammi fyrir. Þarna getur skortur á stuðningi haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir alla fjölskylduna. Við getum ekki lagt alla ábyrgð á bata barna á herðar foreldris sem er sjálft að reyna að jafna sig eftir ofbeldi. Við megum heldur ekki gera stöðu sakamála eða ágreining foreldra að sjálfvirkri hindrun fyrir því að barn fái sjálfstætt mat á þörfum sínum og nauðsynlega meðferð. Börn eru sjálfstæðir rétthafar og réttur þeirra til heilbrigðisþjónustu, verndar og stuðnings á ekki að hverfa inn í deilur fullorðinna. Aðgangur barns að áfallamiðaðri aðstoð á að ráðast af þörfum barnsins, ekki því hvort foreldrar þess eigi í ágreiningi fyrir sýslumanni eða dómstólum. Réttindi barna mega ekki bara vera falleg orð á pappír Íslensk lög og alþjóðlegir mannréttindasamningar kveða á um vernd barna gegn ofbeldi. Samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna ber að hafa hagsmuni barns að leiðarljósi við ákvarðanir sem það varða. Barn á jafnframt rétt á að tjá skoðanir sínar og rétt á vernd gegn hvers kyns ofbeldi. Istanbúl-samningurinn leggur skyldur á íslenska ríkið um að koma í veg fyrir og berjast gegn ofbeldi gegn konum og heimilisofbeldi. Í 31. gr. samningsins er sérstaklega fjallað um forsjá, umgengni og öryggi, þar sem kveðið er á um að taka skuli tillit til ofbeldis við ákvarðanir um forsjá og umgengni og tryggja að framkvæmd þeirra réttinda stofni ekki öryggi þolenda eða barna í hættu. En réttindi sem eru tryggð í lögum eru ekki sjálfkrafa tryggð í framkvæmd. Hvernig á dómari að meta áhrif langvarandi þvingandi stjórnunar ef ekki er fyrir hendi næg þekking á henni? Hvernig á starfsfólk sýslumanns að meta hvort sáttameðferð sé örugg ef einkenni valdaójafnvægis og ótta eru ekki þekkt? Hvernig á lögmaður að undirbúa þolanda fyrir skýrslutöku ef ekki er skilningur á því hvernig áföll geta haft áhrif á minni, hegðun og tjáningu? Og hvernig á að tryggja að sjónarmið barns fái raunverulegt vægi ef þau sem hlusta hafa ekki næga þekkingu á þroska barna og því hvernig þau segja frá erfiðri reynslu? Þetta eru ekki smávægileg atriði heldur grundvallarspurningar um hæfni þeirra sem taka ákvarðanir sem geta haft áhrif á öryggi, réttindi og framtíð annarra. Þekking á ofbeldi á ekki að vera val Í íslensku lögfræðinámi er hægt að sækja námskeið sem fjalla um ofbeldi og réttarstöðu þolenda. Í meistaranámi við Háskólann í Reykjavík er til dæmis boðið upp á 7,5 eininga valnámskeiðið Kynbundið ofbeldi, þar sem fjallað er um ofbeldi í nánum samböndum, kynferðisbrot, mansal, vændi, afleiðingar ofbeldis og meðferð mála innan réttarvörslukerfisins. Það er mikilvægt og jákvætt að slíkt nám sé í boði, en hvers vegna á þessi þekking að vera valkvæð? Hvers vegna á það að ráðast af áhugasviði nemandans hvort aflað sé sér sérhæfðrar þekkingar á ofbeldi áður en útskrifast er úr lögfræðinámi? Lögfræðingar starfa ekki eingöngu við sakamál. Þeir starfa hjá sýslumönnum, dómstólum, barnavernd, stjórnvöldum, sveitarfélögum og á lögmannsstofum. Þeir koma að forsjárdeilum, umgengnismálum, skaðabótamálum og ótal öðrum málum þar sem afleiðingar ofbeldis geta skipt verulegu máli. Ég vil sjá skyldubundið nám um ofbeldi, birtingarmyndir þess, afleiðingar og áfallamiðaða nálgun í lögfræðinámi á Íslandi. Ekki aðeins um kynferðisbrot og líkamlegt ofbeldi, heldur einnig andlegt ofbeldi, fjárhagslegt ofbeldi, stafrænt ofbeldi, þvingandi stjórn, ofbeldi gegn börnum og ofbeldi eftir sambandsslit. Nemendur þurfa að læra hvernig áföll geta haft áhrif á minni, frásagnir, hegðun og ákvarðanatöku. Þeir þurfa að læra hvernig eigi að nálgast þolendur, hvaða áhrif endurteknar yfirheyrslur og óviðeigandi spurningar geta haft og hvernig megi draga úr hættu á frekari áfallavæðingu. Jafnframt þarf að skilja að áfallamiðuð nálgun felur ekki í sér að víkja frá réttlátri málsmeðferð, sakleysisreglu eða kröfum um sönnun. Þvert á móti ætti slík þekking að stuðla að vandaðri rannsókn og réttara mati á gögnum. Markmiðið er ekki að kenna lögfræðingum að trúa öllum frásögnum gagnrýnislaust. Markmiðið er að tryggja að þeir meti þær af þekkingu en ekki út frá fordómum, ranghugmyndum eða óraunhæfum væntingum um hegðun þolenda. Menntunin má ekki enda við útskrift Skyldubundið nám í lögfræði væri mikilvægt skref, en það dugar ekki eitt og sér. Ég vil einnig sjá reglubundna og skyldubundna endurmenntun fyrir dómara, starfsfólk sýslumanna og aðra sem taka ákvarðanir um réttindi og öryggi þolenda. Sérstaklega þarf að tryggja að þau sem koma að forsjár- og umgengnismálum hafi sérhæfða þekkingu á heimilisofbeldi, þvingandi stjórn, hættumati og áhrifum ofbeldis á börn. Dómarar þurfa þjálfun í því hvernig áföll geta haft áhrif á framburð og hvernig forðast megi að staðalmyndir hafi áhrif á sönnunarmat. Starfsfólk sýslumanna þarf að þekkja aðstæður þar sem sáttameðferð getur verið óviðeigandi eða óörugg og hafa skýrt verklag til að greina slíkar aðstæður. Lögmenn þurfa þjálfun í áfallamiðuðum samskiptum, viðtölum við þolendur og því hvernig gæta megi réttinda skjólstæðinga án þess að valda þeim óþarfa viðbótarskaða. Sambærileg þekking þarf að vera til staðar hjá lögreglu, ákæruvaldi, barnavernd, heilbrigðisstarfsfólki, kennurum og öðrum sem vinna með börnum og fullorðnum þolendum ofbeldis. Fræðslan þarf að vera aðlöguð hlutverki hvers starfs, byggð á rannsóknum og studd skýrum hæfniviðmiðum. Það er ekki nóg að halda einstaka fyrirlestra og merkja síðan við að starfsfólk hafi fengið fræðslu. Það þarf að tryggja að þekkingin sé viðhaldin, uppfærð og nýtt í framkvæmd. Ísland hefur þegar fengið skýr tilmæli Árið 2022 birti GREVIO, sérfræðinganefnd Evrópuráðsins um framkvæmd Istanbúl-samningsins, skýrslu um Ísland. Þar var meðal annars kallað eftir því að íslensk stjórnvöld tryggðu sérhæfða þjálfun fagfólks sem kemur að forsjár- og umgengnismálum, svo sem dómara, félagsráðgjafa, barnaverndarstarfsmanna, dómkvaddra sérfræðinga og barnasálfræðinga. Einnig var lögð áhersla á skimun fyrir heimilisofbeldi, áhættumat og að ofbeldi annars foreldris gegn hinu væri tekið til skoðunar við ákvarðanir um forsjá og umgengni. Nefndin hvatti jafnframt til þess að áhrif framkvæmdar sýslumanna og dómstóla á öryggi þolenda og barna yrðu rannsökuð. Í júní 2026 samþykkti ráð aðildarríkja Istanbúl-samningsins niðurstöður um eftirfylgni Íslands með tilmælunum. Þar var viðurkennt að ákveðnar framfarir hefðu orðið, en engu að síður var enn talin þörf á frekari aðgerðum, meðal annars varðandi öryggi þolenda og barna í forsjár- og umgengnismálum. Íslensk stjórnvöld voru jafnframt hvött til að skila frekari upplýsingum um aðgerðir sínar fyrir júní 2028. Þetta skiptir máli, ekki vegna þess að hægt sé að fullyrða að ekkert hafi verið gert, heldur vegna þess að alþjóðlegir eftirlitsaðilar telja enn ástæðu til að kalla eftir úrbótum á sviði sem getur haft afgerandi áhrif á öryggi barna og þolenda ofbeldis. Hversu mörg ár þurfa að líða frá því að alvarlegir annmarkar eru dregnir fram þar til við getum sýnt fram á að framkvæmdin hafi raunverulega breyst? Þegar kerfið veit af hættunni, hver ber þá ábyrgð? Það er eitt að kerfi geri mistök vegna þess að það skortir upplýsingar. Það er annað þegar stjórnvöld hafa fengið ítrekaðar ábendingar um annmarka, þekkja mögulegar afleiðingar þeirra og hafa samt ekki tryggt fullnægjandi úrbætur. Þegar stofnun fær upplýsingar um mögulega hættu gagnvart barni verður að meta þær af fagmennsku og í samræmi við lögbundnar skyldur hennar. Það þýðir ekki að hver ásökun sé sjálfkrafa sönn eða að allar ákvarðanir verði að byggjast á versta hugsanlega atburðarás. Það þýðir hins vegar að upplýsingar um ofbeldi verða að fá raunverulega og rökstudda skoðun, áhætta að vera metin og ákvarðanir teknar á grundvelli fullnægjandi upplýsinga. Hvað gerist þegar foreldri leitar til barnaverndar vegna ofbeldis en er vísað til sýslumanns, á sama tíma og sýslumaður bendir á barnavernd þegar óskað er eftir vernd barnsins? Hver ber þá ábyrgð á því að barnið sé öruggt? Þótt barnavernd úrskurði almennt ekki um forsjá eða umgengni ber henni að meta verndarþörf barna og bregðast við hættu innan síns valdsviðs. Stofnanir verða að vinna saman svo upplýsingar um ofbeldi glatist ekki á milli kerfa. Barn á ekki að standa án verndar vegna þess að stofnanir vísa ábyrgðinni hver á aðra. Það er jafnframt áhyggjuefni þegar stuðningur við börn og fjölskyldur dregst saman eða fellur niður vegna þess að mál um forsjá eða umgengni er komið til sýslumanns eða dómstóla. Réttarágreiningur foreldra breytir ekki því sem barn hefur upplifað og kemur ekki í stað þeirrar aðstoðar sem það kann að þurfa.Forsjárdeila afnemur ekki verndarþörf barns. Hún afmáir ekki áföllin. Þegar upplýsingar liggja fyrir um fyrra ofbeldi foreldris verður jafnframt að meta hvaða afleiðingar það getur haft fyrir öryggi barns og þess foreldris sem leitar verndar að hafa samband við viðkomandi vegna nýrrar barnaverndartilkynningar. Réttur foreldra til upplýsinga og þátttöku skiptir máli, en verklagið verður að taka mið af áhættu í hverju máli. Upplýsingar sem kerfið hefur þegar fengið um ofbeldi mega ekki gleymast við næstu tilkynningu. Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 86/2021, eiga meðal annars að stuðla að því að þjónustukerfin vinni saman og að foreldrar þurfi ekki sjálfir að halda utan um öll samskipti og upplýsingamiðlun. En hvað gerist þegar foreldrar þurfa engu að síður ítrekað að koma sömu upplýsingum á framfæri, kalla eftir samstarfi og fylgja því eftir að brugðist sé við? Þá skapast hætta á að ábyrgðin færist í reynd yfir á foreldrið og stofnanir geti vísað frá sér ábyrgð ef eitthvað fer úrskeiðis. Það verður að tryggja að ofbeldisatvik og upplýsingar um fyrri ofbeldissögu séu skráð með viðeigandi hætti, að þær séu teknar með í áhættumat og að nauðsynlegar upplýsingar skili sér á milli þeirra sem bera ábyrgð á vernd barnsins, innan marka laga um trúnað og persónuvernd. Samþætt þjónusta á að létta byrðunum af foreldrum, ekki gera þau að verkefnastjórum eigin verndar. Ef síðar kemur í ljós að barn hefur orðið fyrir frekari skaða þarf að vera hægt að rannsaka hvort viðeigandi ráðstafanir hafi verið gerðar, hvort verklagi hafi verið fylgt og hvort hægt hefði verið að koma í veg fyrir skaðann. Ábyrgð stjórnvalda felst ekki aðeins í því að bregðast við þegar skaðinn er orðinn, heldur einnig í því að gera þær ráðstafanir sem með réttu má ætlast til svo koma megi í veg fyrir fyrirsjáanlegan skaða. Þegar kerfisbrestir koma í ljós þarf jafnframt að tryggja að af þeim sé lært. Það er ekki nóg að einstakt mál sé afgreitt, kæruferli ljúki eða niðurstaða fáist fyrir dómi ef sömu veikleikar í kerfinu halda áfram að stofna öðrum börnum og þolendum í hættu. Kerfi sem lærir ekki af mistökum sínum getur haldið áfram að endurtaka þau á kostnað þeirra sem síst mega við því. Það þarf raunverulegar kerfisbreytingar Ég tel að íslensk stjórnvöld þurfi að ráðast í heildstæða endurskoðun á því hvernig brugðist er við ofbeldi á öllum stigum kerfisins. Sú endurskoðun þarf að ná lengra en til einstakra lagaákvæða eða tímabundinna aðgerðaáætlana og tryggja að menntun, verklag, þjónusta og ábyrgð vinni saman. Það þarf að innleiða skyldubundna grunnmenntun um ofbeldi og afleiðingar þess í lögfræðinámi og viðeigandi námi annarra starfsstétta, ásamt reglubundinni sérhæfðri endurmenntun þeirra sem taka ákvarðanir í málum þolenda ofbeldis. Jafnframt þarf að samræma áhættumat og verklag í forsjár- og umgengnismálum þar sem grunur er um ofbeldi, greina slíkar aðstæður snemma og tryggja að málsmeðferðin sjálf stofni ekki öryggi þolenda eða barna í hættu. Börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi þurfa að fá sjálfstætt mat á þörfum sínum og viðeigandi stuðning, óháð því hvort sakamál leiði til sakfellingar eða foreldrar eigi í ágreiningi. Einnig þarf að bæta samvinnu stofnana, innan marka laga um trúnað og persónuvernd, svo þolendur þurfi ekki sífellt að byrja upp á nýtt og bera ábyrgð á því að kerfið vinni saman. Það þarf að rannsaka með kerfisbundnum hætti hvernig ofbeldissaga er metin í forsjár- og umgengnismálum og hvort framkvæmdin uppfylli þær verndarskyldur sem hvíla á íslenska ríkinu. Að lokum þarf að koma á skýrari leiðum til sjálfstæðrar úttektar á alvarlegum kerfisbrestum, sérstaklega þegar barn eða fullorðinn þolandi verður fyrir frekari skaða þrátt fyrir að stjórnvöld hafi fengið upplýsingar um mögulega hættu. Slíkt eftirlit þarf að virða sjálfstæði dómstóla, réttláta málsmeðferð og persónuvernd. Markmiðið á ekki að vera að endurskoða niðurstöðu hvers einstaks máls utan lögbundinna kæruleiða, heldur að greina kerfislæga veikleika og koma í veg fyrir að þeir endurtaki sig. Þessum breytingum þarf jafnframt að fylgja skýr ábyrgð, fjármögnun og mælanleg markmið. Annars er hætta á að enn ein aðgerðaáætlunin verði til án þess að hægt sé að sýna fram á raunverulegan árangur. Stjórnvöld hafa sett fram aðgerðaráætlanir fyrir árin 2026–2030 gegn kynbundnu ofbeldi og ofbeldi gegn börnum, þar sem meðal annars er lögð áhersla á fræðslu, verklag og samhæfingu. Það eru mikilvæg skref, en áætlanir einar og sér tryggja enga vernd. Það þarf að fylgja þeim eftir, tryggja fjármögnun og sýna fram á að breytingarnar skili sér í raunverulegu öryggi barna og þolenda. Það er ekki nóg að biðja þolendur um að treysta kerfinu Traust verður ekki til með því einu að segja fólki að treysta. Það byggist upp þegar fólk upplifir að á það sé hlustað, að málsmeðferð sé fagleg, að ákvarðanir séu rökstuddar og að öryggi þess sé tekið alvarlega. Það byggist upp þegar börn fá að tjá sig á eigin forsendum og vita að fullorðna fólkið sem hlustar hafi þekkingu til að skilja þau. Þegar þolendur þurfa ekki að berjast við kerfið samhliða því að takast á við afleiðingar ofbeldisins. Og þegar stjórnvöld viðurkenna ekki aðeins að mistök geti átt sér stað, heldur tryggja að þau séu rannsökuð og að af þeim sé lært. Við höfum lengi lagt áherslu á ábyrgð þolenda á því að stíga fram, segja frá og leita hjálpar, en ábyrgðin getur ekki verið einhliða. Við getum ekki ætlast til þess að barn segi frá ofbeldi ef við tryggjum ekki að þeir sem hlusta kunni að skilja frásögn þess. Við getum ekki hvatt foreldra til að vernda börnin sín en látið þá síðan standa eina í baráttunni fyrir nauðsynlegri aðstoð. Og við getum ekki hvatt fullorðna þolendur til að leita réttar síns án þess að tryggja að réttarkerfið hafi næga þekkingu til að meðhöndla mál þeirra af fagmennsku. Við krefjumst þess að þolendur sýni hugrekki til að segja frá. En hvers vegna krefjumst við ekki af sama þunga þess að kerfið hafi þekkingu, hæfni og úrræði til að bregðast rétt við? Þekking á ofbeldi á ekki að vera valkvæð sérhæfing fyrir þá sem hafa sérstakan áhuga á málaflokknum. Hún á að vera grundvallarforsenda þess að geta tekið ákvarðanir sem varða öryggi og réttindi þolenda. Því það er ekki nóg að samfélagið segist standa með þolendum. Það verður líka að tryggja að kerfið geri það í framkvæmd. Réttindi sem eru aðeins tryggð á pappír veita enga raunverulega vernd þegar mest á reynir. Höfundur er ML nemandi í lögfræði við Háskólann í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Skoðun Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Sjá meira
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar