Skoðun

Rit­skoðun fjölmiðla­nefndar?

Hallmundur Albertsson skrifar

Í hlaðvarpsþætti Gímaldsins 8. október sl. sagði framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar aðspurð þegar rætt var um hvað væri fjölmiðill og hvað ekki m.a.:

„[E]f að við myndum fara að skoða efnistök fjölmiðla og fara að segja þið megið vera skráð og eða þið ekki, þið fáið styrki eða eitthvað slíkt að því að við erum líka með styrki fyrir fréttamiðla ekki fjölmiðla.

Þarna kemur þessi skýri greinarmunur í ljós.

En það að vera skráður sem fjölmiðill þar má ríkið eða stjórnvöld ekki taka einhverja svona afstöðu og segja þið megið vera skráð af því að þið eruð með þessi efnistök. Það er ritskoðun. Það er bara skilgreiningin á ritskoðun.“

Orð framkvæmdastjórans eru afdráttarlaus og verða vart skilin á annan veg en þann að ef fjölmiðlanefnd horfir til þess hver efnistök viðkomandi starfsemi eru við mat sitt á því hvort um fjölmiðil sé að ræða þá felist í því ritskoðun af hálfu nefndarinnar.

Orð framkvæmdastjórans eru sérstaklega athyglisverð vegna herferðar stjórnvaldsins gegn hlaðvörpum sem nú stendur yfir. Verður þar að líta til þess hvernig nefndin ákveður hvaða hlaðvörp teljast fjölmiðlar.

Í leiðbeiningum um skráningu hlaðvarpa hjá fjölmiðlanefnd, sem nefndin gaf sjálf út í apríl sl., er m.a. litið til þess „hvers konar efni hlaðvarpið miðlar“, og tekið fram að „ef um sambærilegt efni er að ræða og finna mætti í öðrum fjölmiðlum eru líkur til þess að hlaðvarpið teljist skráningarskylt“. Viðmiðin séu ekki tæmandi og hvert tilvik sé metið sérstaklega.

Til að beita þessu viðmiði þarf nefndin að leggja mat á efnið sem miðlað er. Það mat hefur síðan áhrif á hvort viðkomandi telst fjölmiðill og verður þar með talinn falla undir skyldur fjölmiðlalaga. Mat á efni og efnistökum er þar með orðið einn þeirra þátta sem nefndin byggir á þegar hún ákveður hvort hlaðvarp sé skráningarskylt. Og samkvæmt sömu leiðbeiningum er ólíklegt að hlaðvarp „sem svipar til bloggsíðu að efni til“ teljist fjölmiðill. Hvort hlaðvarp líkist bloggi eða fjölmiðli að efni til ræðst ekki af öðru en efninu.

Nefndin þekkir sjálf hversu teygjanlegt þetta mat er. Þegar bent var á það árið 2021 að hlaðvarp fjölmiðlanefndar, Fjórða valdið, væri óskráð var svar framkvæmdastjórans að ekki stæði til að skrá það, enda væri hlaðvarpið ekki fjölmiðill!

Samkvæmt orðum framkvæmdastjórans verður ekki annað ráðið en að fjölmiðlanefnd líti svo á að rannsókn á efnistökum við mat á því hvort um fjölmiðil sé að ræða teljist ritskoðun.

Í tjáningarfrelsisákvæði stjórnarskrárinnar, 73. gr., segir m.a. að „ritskoðun og aðrar sambærilegar tálmanir á tjáningarfrelsi má aldrei í lög leiða.“

Hér er ekki tekin afstaða til þess hvort skilgreining framkvæmdastjórans á ritskoðun sé rétt.

Samkvæmt orðum framkvæmdastjóra fjölmiðlanefndar verður ekki betur séð en að nefndin stundi ritskoðun þegar hún rannsakar mögulega skráningarskyldu hlaðvarpa og fari þá, ef rétt reynist, gegn stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.

Á sama tíma hefur ráðherra málaflokksins lýst þeirri afstöðu í viðtali við visir.is í dag að fólk eigi að geta notað nýjar leiðir til að tjá sig „án þess að þurfa endilega að vera skilgreindir sem fjölmiðlar“, að til sé „dagskrárgerð sem þarf ekki endilega að vera fjölmiðlun“ og að drög að nýjum lögum eigi að liggja fyrir í janúar, því „það sé langbest að skýra það hvernig löggjafinn vill horfa á þetta“.

Færi betur á því að nefndin léti nú staðar numið og bíði þess að löggjafinn festi í lög skýrar reglur um hvernig beri að skilgreina starfsemi sem fjölmiðil. Að öðrum kosti verður ekki hjá því komist að krefja nefndina skýringa á því hvernig rannsókn nefndarinnar á efnistökum hlaðvarpa rúmast innan marka stjórnarskrár þegar nefndin sjálf telur rannsókn á efnistökum vera ritskoðun.

Höfundur er lögmaður. 




Skoðun

Sjá meira


×