Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar 22. október 2026 09:30 Ég starfa sem sálfræðingur og starfið er gefandi, krefjandi og skemmtilegt. Þegar talað er um sálfræði sjá margir fyrir sér Sigmund Freud á stól með skjólstæðing liggjandi á bekk. Sú hugmynd gefur ekki alveg rétta mynd af starfinu. Sálfræðingar eru heilbrigðisstétt og vinna oft með vanda sem er ekki eins sýnilegur og margt annað sem heilbrigðiskerfið fæst við. Við höfum hvorki blóðprufur né röntgenmyndir, en sálfræðin er engu að síður vísindalegt fag sem byggir á mælitækjum og rannsóknum. Við greinum og kortleggjum vandann til að vita hvernig meðferð skuli beita. Einnig er val meðferðar byggt á rannsóknum á því hvaða meðferð virkar best fyrir tiltekinn vanda, meðal annars með því að bera hana saman við aðrar meðferðir eða það að gera ekki neitt. Það er því sálfræðingum eðlislægt að byggja ákvarðanir á greiningu og meta árangur. Í byrjun mánaðar gladdi það mig þegar Alþingi samþykkti beiðni um skýrslu frá forsætisráðherra um kortlagningu á velferðarumhverfi barna og fjölskyldna þeirra. Þetta er eitt mikilvægasta skref sem stigið hefur verið í málefnum barna. Flestir sem starfa með börnum þekkja þann frumskóg sem málaflokkurinn er. Úrræðin eru á hendi ríkis, sveitarfélaga, heilbrigðiskerfis, skóla og frjálsra félagasamtaka. Foreldrar vita oft ekki hvert þeir eiga að snúa sér og jafnvel við sem störfum innan kerfisins eigum stundum erfitt með að rata. Í beiðninni er óskað eftir heildstæðri kortlagningu á stöðu, aðgengi og framboði á þjónustu fyrir börn, ungmenni og foreldra. Þar á að koma fram hvort þjónustan sé lögbundin, hvar götin liggja, hvaða hópar barna fá síst þjónustu við hæfi og hvaða aðgerða sé þörf. Ríkisendurskoðun benti nýlega á að við undirbúning farsældarlaganna hafi hvorki farið fram heildstæð kortlagning á stöðu barna né greining á því hvaða úrræði væru til og hver vantaði. Þetta er ekki ný saga því árið 2022 benti Ríkisendurskoðun á að stjórnvöld skorti yfirsýn yfir geðheilbrigðisþjónustu, engin miðlæg biðlistaskrá væri til og ráðuneytið gæti ekki gefið upp raunkostnað. Í stöðuskýrslu heilbrigðisráðuneytisins frá nóvember 2025 er sama mynd dregin upp. Þjónustan er ekki nægilega samfelld og enn eru grá svæði þar sem börn falla á milli kerfa. Bæði heilbrigðiskerfið og farsældarlögin byggja á þrepaskiptri þjónustu, þar sem flest börn eiga að fá stuðning snemma í nærumhverfi og í efsta þrepinu eru þau börn sem þurfa sérhæfðari þjónustu. Hugmyndin er góð, en skýrslurnar sýna að þrepin eru óljós. Ekki er skýrt hvaða þjónustu á að veita á hverju þrepi, framkvæmdin er ólík eftir landshlutum og þjónusta sjálfstætt starfandi fagfólks, sem tekur við stórum hluta tilvísana, hefur ekki verið kortlögð. Þessu má líkja við heimili þar sem allir fjölskyldumeðlimir versla í matinn, hver í sinni búð, án sameiginlegs innkaupalista og án þess að nokkur kíki hvað til sé í ísskápnum. Allir kaupa mjólk því það er öruggt, en enginn kaupir það sem þarf í kvöldmatinn. Peningarnir eru farnir en máltíðin verður ekki til. Þannig hefur þjónusta við börn of oft byggst upp, af góðum hug hjá hverjum og einum en án yfirsýnar, með tvíverknaði á sumum stöðum og götum á öðrum. Fyrir sálfræðing er þetta augljóst, við hefjum ekki meðferð án þess að meta vandann og höldum ekki áfram með inngrip án þess að skoða árangur. Sömu kröfu eigum við að gera til kerfisins sem þjónar börnunum okkar. Kortlagningin er forsenda þess að Alþingi geti mótað stefnu, sett lög og forgangsraðað fjármunum af skynsemi. Það er kominn tími til að kíkja í ísskápinn áður en við förum í búðina. Höfundur er sálfræðingur á Seiglu Sálfræði- og ráðgjafarstofu og varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar