Skoðun

Hvernig sam­fé­lagi viltu búa í?

Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar

Ég starfa sem mannauðsstjóri hjá íslensku ferðaþjónustufyrirtæki þar sem stór hluti starfsmanna er af erlendum uppruna. Á hverjum degi sé ég hversu ómetanlegt framlag þeirra er, ekki aðeins fyrir fyrirtækið heldur fyrir íslenska ferðaþjónustu og samfélagið allt. Í dag er um fjórðungur starfandi fólks á Íslandi af erlendum uppruna, í fjölbreyttum atvinnugreinum um allt land. Það er erfitt að ímynda sér íslenskan vinnumarkað án þessa fólks.

Ég hef sjálf búið erlendis og veit af eigin raun hversu miklu máli það skiptir að tilheyra. Fólk sem hefur flust hingað er hluti af samfélaginu. Þau eru samstarfsfólk okkar, nágrannar og vinir. Þau stunda rannsóknir, afgreiða okkur þegar við verslum inn, reka eigin fyrirtæki, annast okkur þegar við veikjumst og kenna börnunum okkar. Eins og aðrir íbúar landsins greiða þau skatta og gjöld og taka þátt í að byggja upp landið. Þau eiga sama rétt á þjónustu og eiga skilið að komið sé fram við þau af sanngirni og virðingu.

Orð okkar og framkoma skipta máli, sama hver á í hlut. Við getum öll lagt okkar af mörkum til að skapa samfélag þar sem fólk finnur að það er velkomið og fjölbreytileikinn fær að njóta sín.

Þannig samfélagi vil ég búa í, og byggja upp með þér.

Höfundur er mannauðsstjóri.




Skoðun

Sjá meira


×