Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Kjartan Kjartansson skrifar 19. október 2026 11:08 Landsvirkjun skýtur föstum skotum að Sammkeppniseftirlitinu í yfirlýsingu eftir að áfrýjunarnefnd felldi úr gildi milljarða sektarátkvöðrun. Vísir/Vilhelm Áfrýjunarnefnd samkeppnismála felldi úr gildi 1,4 milljarða króna sekt sem Samkeppniseftirlitið lagði á Landsvirkjun vegna sölu á raforku til Landsnets. Landsvirkjun segir niðurstöðuna staðfesta að ekki hafi steinn staðið yfir steini í rannsókn Samkeppniseftirlitsins.
Úrskurður áfrýjunarnefndarinnar hefur ekki verið birtur opinberlega. Samkeppniseftirlitið lagði sektina á Landsvirkjun í fyrra þar sem það taldi ríkisorkufyrirtækið hafa misnotað markaðsráðandi stöðu sína á raforkumarkaði með alvarlegum hætti. Í yfirlýsingu Landsvirkjunar um úrskurðinn í dag segir að Samkeppniseftirlitið hafi ekki skilgreint markaði á fullnægjandi hátt í ákvörðun sinni frá því í fyrra og ekki gert viðhlítandi rannsókn á hvernig Landsvirkjun hefði hamlað samkeppni. Málið hafi því ekki verið að fullu upplýst þegar Samkeppniseftirlitið tók ákvörðun sína. Málsmeðferðin hefði þannig ekki uppfyllt kröfur rannsóknarreglu stjórnsýslulaga. Samkeppniseftirlitið segir að áfrýjunarnefndin hafi vísað málinu til nýrrar meðferðar hjá eftirlitinu. Nefndin hafi talið að rannsaka þyrfti ákveðin atriði nánar áður en unnt væri að taka efnislega afstöðu til þess hvort að Landsvirkjun hefði misnotað stöðu sína. Kvörtuðu vegna þátttöku Landsvirkjunar í útboði Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins snerist um þátttöku Landsvirkjunar í útboði Landsnets á raforku til þess að bæta upp flutningstap. Orka náttúrunnar og N1 rafmagn kvörtuðu til Samkeppniseftirlitsins vegna þess. Þau keyptu raforku af Landsvirkjun samkvæmt verðskrá. Landsvirkjun hafi síðan boðið lægra verð í útboði Landsnets. Því töldu fyrirtækin sem kvörtuðu sig ekki hafa átt möguleika í útboðinu nema þau seldu orku með tapi. Landsvirkjun segir í yfirlýsingu sinni í dag að aukin markaðshlutdeild hefði ekki verið markmið fyrirtækisins með því að taka þátt í útboði Landsnets heldur að tryggja að nægt framboð væri á raforku til flutningstaps og þar með raforkuöryggi. Samkeppniseftirlitið segir í sinni yfirlýsingu að áfrýjunarnefndin hafi ekki talið nægja að byggja niðurstöðu um ólögmætan verðþrýsting eingöngu á samanburði á tilboðsverði Landsvirkjunar og heildsöluverði hennar á grunnorku við lok útboðsfresta. Eftirlitið segist ætla að fara yfir úrskurðinn og afla sjónarmiða aðila á markaðnum og annarra stjórnvalda á evrópska efnahagssvæðinu. Að því loknu taki eftirlitið ákvörðun um hvort það beri úrskurðinn undir dómstóla eða taki nýja ákvörðun í málinu. Fréttin var uppfærð eftir að yfirlýsing Samkeppniseftirlitsins um úrskurðinn barst.
Landsvirkjun Orkumál Samkeppnismál Úrskurðar- og kærunefndir Mest lesið Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Fleiri fréttir Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Sjá meira