Innlent

Sigl­firðingar standa saman eftir á­fall gær­dagsins og spenna á ASÍ þingi

Telma Tómasson skrifar
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf.
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf. Vísir

Íbúi á Siglufirði segir bæjarbúa standa saman í áfallinu eftir óveðrið í gær. Fjölskyldan hafi fengið skilaboð á skilaboð ofan um húsaskjól en þakið á húsi hennar fauk af í heilu lagi. Óljóst er hvenær þau geti gist í húsi sínu á ný. Rætt er við Karen Birgisdóttur í hádegisfréttum um veðurofsann í gær og afleiðingar hans. 

Við gerum einnig upp tíðindi af óveðri og förum yfir stöðuna, en veðurhamurinn sem skall á landinu í gær er genginn niður og allar veður viðvaranir fallnar úr gildi. Tíðindalítið var hjá viðbragðsaðilum í gærkvöldi og nótt, en nokkuð snjóaði bæði fyrir vestan og norðan.

Klippa: Hádegisfréttir Bylgjunnar 15. október 2026

Við lítum einnig á þing ASÍ, en það ræðst í dag hvort varaforsetum ASÍ verði fækkað úr þremur í einn líkt og lagt hefur verið til. Formenn Eflingar og VR gefa kost á sér í sama embætti og mikil spenna er í loftinu á þingi sambandsins sem stendur nú yfir.

Þá beinum við augunum til Svíþjóðar en tillaga um Magdalenu Andersson sem forsætisráðherra landsins var felld með miklum meirihluta í sænska þinginu í morgun. Óljóst er hver mun næst fá umboð til stjórnarmyndunar en ljóst er að stjórnarkreppa er í landinu. Smári Jökull fréttamaður fer yfir málið en hann var búsettur í Svíþjóð og fylgist vel með gangi mála þar í landi.

Og svo var slæmt veður víðar en á Íslandi. Við ræðum við ferðalang sem staddur var í Tyrklandi í gær þegar úrhelli olli því að götur breyttust nánast í árfarvegi og bílar flutu um hreinlega eins og skopparakringlur.

Fjölbreyttur hádegisfréttatími á Bylgjunni á slaginu tólf. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×