Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 15. október 2026 12:04 Páley Borgþórsdóttir er lögreglustjóri á Norðurlandi eystra. Vísir Embætti Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra segir það nauðsynlegt að ríkið geri ráð fyrir sjö nýjum stöðugildum hjá embættinu í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2027. Þá er farið fram á verulegan hluta af tímabundinni fjármögnun fyrir sérstök verkefni.
Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri á Norðurlandi eystra, skilaði inn umsögn við fjárlagafrumvarp fjármálaráðherra fyrir komandi ár. Þar reifar hún rök sín fyrir því að fjölga þurfi um sjö stöðugildi í embættinu en áætlaður kostnaður við það er 154 milljónir króna. „Embættið telur afar mikilvægt að hluti þeirra 200 m.kr. sem ríkisstjórnin leggur til vegna áframhaldandi fjölgunar lögreglumanna árið 2027 renni til embættisins,“ segir í umsögninni. Um sé að ræða eitt stærsta umdæmi landsins utan höfuðborgarsvæðisins sem sjái um fjölbreytt verkefni og hefur þeim fjölgað á undanförnum árum. Til að mynda er lögð áhersla á að fjölga lögreglumönnum í vaktavinnu, styrkja rannsóknardeild og auka sýnilega löggæslu á landsbyggðinni en til þess þurfi fjármagn. Þorgerður S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra boðaði fjölgun lögreglumanna árið 2025 um fimmtíu. 28 af fimmtíu stöðugildunum fóru til höfuðborgarsvæðisins og átti embætti Lögreglunnar á Norðurlandi eystra að fá sex stöðugildi. Fimm stöðugildanna séu vegna verkefnaaukningar á starfssvæðinu. Taka þurfi ákvörðun um úthlutun fjár út frá raunverulegu verkefnaálagi og sé þörf fyrir frekari uppbyggingu löggæslu utan höfuðborgarsvæðisins. Hin tvö stöðugildin eiga að vera sérstaklega vegna verkefna sem tengjast ofbeldi barna gegn börnum, kynferðisbrotum gegn börnum og öðrum málum þar sem börn eru brotaþolar eða gerendur. „Fjármögnun tveggja stöðugilda myndi: stytta málsmeðferðartíma, bæta þjónustu við börn og fjölskyldur, styrkja samstarf við barnavernd, skólayfirvöld og aðra hagaðila, efla forvarnir og snemmtæka íhlutun og auka sérþekkingu innan embættisins til lengri tíma.“ Vilja verulegan hluta Þá fer embættið einnig fram á að fá verulegan hluta af 150 milljón króna tímabundnu framlagi vegna aðgerða gegn ofbeldi barna og hluta af 120 milljónum króna sem er ætlað til vegna landamærakerfa. „Embættið fagnar því sérstaklega að gert sé ráð fyrir 150 m.kr. tímabundnu framlagi vegna aðgerða gegn ofbeldi barna. Á síðustu árum hefur orðið veruleg aukning í málum þar sem börn eru bæði brotaþolar og gerendur ofbeldisbrota,“ segir í umsögninni. „Norðurland eystra er eitt af stærri lögregluumdæmum landsins og sinnir fjölmörgum málum sem falla undir þennan málaflokk. Embættið leggur því áherslu á að fá verulegan hluta þess fjár sem ætlað er til verkefnisins.“ Þar er minnst á verkefni líkt og Ábyrg saman auk þess að fjölga þurfi samfélagslöggæslu, styrkja forvarnir og snemmtæka íhlutun. Uppbygging og umsvif á Akureyrarflugvelli auk tíðra koma skemmtiferðaskipa leiði til þess að innleiða þurfi ný kerfi samkvæmt Schengen-regluverki. Það kalli á til að mynda aukinn mannafla, sérhæfða þjálfun og tæknibúnað.
Lögreglan Fjárlagafrumvarp 2027 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Sjá meira