Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Sunna Sæmundsdóttir skrifar 15. október 2026 12:00 Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar og Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, gefa báðar kost á sér í embætti fyrsta varaforseta ASÍ. vísir/samsett Það ræðst í dag hvort varaforsetum Alþýðusambands Íslands verði fækkað úr þremur í einn líkt og lagt hefur verið til. Formenn Eflingar og VR gefa kost á sér í sama embætti og mikil spenna er í loftinu á þingi sambandsins sem stendur nú yfir. Niðurstaða um varaforsetaembættið gæti haft áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ.
Nefndarstörf eru á dagskrá þings ASÍ í dag og þar mun laganefnd meðal annars taka fyrir tillögu miðstjórnar sambandsins um að fækka varaforsetum úr þremur í einn. Allar líkur eru taldar á því að tillagan verði afgreidd frá nefndinni og að hún verði borin undir atkvæði þingfulltrúa síðar í dag. Málið er hápólitískt og inn í það blandast opinberar deilur Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar, og Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR. Þær hafa báðar gefið kost á sér í embætti fyrsta varaforseta sambandsins – og þess eina verði tillagan samþykkt. Önnur umræða og afgreiðsla lagabreytinga hefst klukkan hálf þrjú. Atkvæðagreiðsla um tillöguna mun fara fram með handauppréttingu og aukinn meirihluta þarf til þess að hún verði samþykkt en á þinginu eru tæplega þrjú hundruð fulltrúar. Sólveig Anna sagði í gær að til greina kæmi að Efling segi sig úr ASÍ. Í samtali við fréttastofu í dag segir hún að það myndi hafa áhrif á ákvörðun um að yfirgefa sambandið ef varaforsetum verður fækkað og Halla nái kjöri. Það ráði þó ekki úrslitum og að um sé að ræða samtal sem hafi verið í gangi innan félagsins í töluverðan tíma. Umræðan sé hins vegar komin á alvarlegra stig og að nú sé verið að skoða þann kost af meiri dýpt. Breytingartillaga gæti þó einnig verið borin fram við atkvæðagreiðslu um tillöguna í dag, líkt og til dæmis að varaforsetum verði fækkað úr þremur í tvo en ekki einn. Kjörið verður í embætti forseta og varaforseta á morgun og atkvæði verða greidd um hvert embætti fyrir sig. Sólveig Anna segist ekki munu gefa kost á sér í annað embætti nái hún ekki kjöri sem fyrsti varaforseti.
ASÍ Stéttarfélög Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Fleiri fréttir Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ Sjá meira