Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar 15. október 2026 14:30 Þegar foreldri eða maki flytur á hjúkrunarheimili breytist margt í lífi fjölskyldunnar. Aðstandendur þurfa að geta treyst því að manneskjan sem þeim þykir vænt um fái góða umönnun. Sá sem flytur þarf að finna að hlustað sé á hann, að óskir hans skipti máli og að hann geti áfram haft áhrif á eigið líf. Þetta er líka mælikvarði á velmegun þjóðarinnar. Hagvöxtur, kaupmáttur og traustur ríkisrekstur skipta miklu máli. Efnahagslegur styrkur þarf jafnframt að skila sér í lífsgæðum fólks, þar á meðal þeirra sem þurfa á mestri aðstoð að halda. Þess vegna hef ég, ásamt fleiri þingmönnum, óskað eftir skýrslu heilbrigðisráðherra um gæði þjónustu á hjúkrunarheimilum. Við þurfum að vita hvernig gæði eru skilgreind og metin, hvernigeftirlitið fer fram og hvort heimilin hafi aðstæður til að veita þá þjónustu sem íbúarnir þurfa. Mannauður og þjónusta verða að fylgja uppbyggingunni Það er mikilvægt að fjölga hjúkrunarrýmum og tryggja fólki þá þjónustu sem það þarf þegar hennar er þörf . Samhliða þarf að liggja fyrir hvernig ný rými verða mönnuð og hvaða faglega þjónusta verður í boði. Uppbygging húsnæðis, mönnunar og þjónustu þarf að fara fram samhliða. Ný hjúkrunarrými skila aðeins árangri ef starfsfólk og fagleg þjónusta fylgja með. Á hjúkrunarheimili á fólk heimili sitt. Daglegt líf þar þarf að taka mið af því. Góð þjónusta felur í sér viðeigandi hjúkrun og læknisþjónustu, næringu, hreyfingu og endurhæfingu. Hún felur líka í sér félagsskap, friðhelgi og svigrúm til að halda í eigin venjur. Það getur skipt miklu að fá að fara út, sinna áhugamáli eða eiga rólega stund með annarri manneskju. Hver íbúi hefur eigin sögu, óskir og vilja. Þörf fyrir aðstoð má ekki verða til þess að það gleymist. Mönnunin ræður miklu um daglegt líf Mönnun hefur áhrif á nær alla þætti þjónustunnar. Hún ræður miklu um hvort starfsfólk hefur tíma til að sinna hverjum íbúa, fylgjast með líðan hans og bregðast við þegar eitthvað breytist. Hún hefur líka áhrif á hvort svigrúm er fyrir hreyfingu, félagsskap og samtal. Þess vegna þarf að horfa til fleiri þátta en fjölda starfsfólks. Fagleg samsetning, þjálfun, reynsla og aðgengi að sérfræðiþjónustu skipta máli. Mönnunin þarf að taka mið af því fólki sem býr á hverju heimili og hversu mikla og flókna aðstoð það þarf. Stöðugleiki í starfsmannahópnum hefur einnig mikla þýðingu. Starfsfólk sem þekkir íbúana veit hvernig þeir vilja hafa hlutina, hvað þeim þykir gott og hvað getur valdið þeim vanlíðan. Sú þekking getur hjálpað til við að greina breytingar sem annars færu fram hjá fólki. Við þurfum því að skoða starfsmannaveltu og samfellu í umönnun og hvort starfsfólk hafi aðstæður til að kynnast íbúunum og sinna þeim vel. Stjórnvöld og rekstraraðilar bera ábyrgð á að starfsfólkið hafi raunhæfa möguleika á að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru. Að skilja og vera skilinn Tungumálakunnátta er mikilvægur hluti góðrar umönnunar. Íbúi þarf að geta sagt frá verkjum, útskýrt hvað veldur honum áhyggjum eða beðið um aðstoð og treyst því að hann sé skilinn. Starfsfólk þarf að geta skilið fyrirmæli, miðlað upplýsingum og rætt við íbúa og aðstandendur. Þetta skiptir sérstaklega máli þegar fólk á erfitt með að tjá sig eða er með heilabilun. Þá getur þurft bæði tíma og færni til að átta sig á því hvað viðkomandi er að reyna að segja. Það þarf að vera skýrt hvaða tungumálakunnáttu störfin krefjast og hvernig starfsfólk fær stuðning til að uppfylla þær kröfur. Íslenskukennsla, starfsþjálfun og leiðsögn þurfa að vera hluti af því að byggja upp og halda í öflugan starfsmannahóp. Góð samskipti eru forsenda þess að fólk geti treyst þjónustunni og haft áhrif á eigið daglegt líf. Við þurfum að hlusta á íbúana Til að bæta þjónustuna þurfum við að vita hvernig hún reynist þeim sem nota hana. Er reynsla íbúa könnuð reglulega? Hvernig er hlustað á fólk sem á erfitt með að koma sjónarmiðum sínum á framfæri? Fá aðstandendur skýrar upplýsingar og eru ábendingar þeirra nýttar til úrbóta? Þetta eru meðal þeirra spurninga sem skýrslan á að svara. Hún þarf einnig að sýna hvort stjórnvöld hafi nægilegar upplýsingar til að fylgjast með gæðum og bregðast við þegar þjónustan stenst ekki kröfur. Samanburður milli heimila getur hjálpað til við að sjá hvar árangur hefur náðst og hvar úrbóta er þörf. . Hann verður þó að taka mið af mismunandi heilsufari og þjónustuþörfum íbúanna. Markmiðið er að læra af góðu starfi og finna leiðir til að bæta þjónustuna þar sem þess þarf. Öryggi, ábyrgð og forvarnir Í skýrslunni þarf einnig að skoða slys og alvarleg atvik, orsakir þeirra og hvernig unnið er að forvörnum. Við þurfum að vita hvað gerðist, hvort hægt hefði verið að koma í veg fyrir það og hvort lærdómurinn hafi leitt til breytinga á umönnun, aðbúnaði eða verklagi. Lyfjaöryggi er hluti af þessari heildarmynd. Í skýrslubeiðninni er því einnig óskað eftir upplýsingum um geðlyfjanotkun, ástæður hennar, reglulega lyfjarýni og aðgengi að öðrum viðeigandi úrræðum. Þessar upplýsingar þarf að skoða í samhengi við heilsufar íbúa og þá þjónustu sem þeir fá. Skýrslan þarf að verða grundvöllur aðgerða. Hún á að sýna hvað gengur vel, hvar úrbóta er þörf og hver ber ábyrgð á að fylgja þeim eftir. Ef þjónusta stenst ekki kröfur þarf að liggja fyrir hvernig og hvenær það verður lagfært. Íbúar hjúkrunarheimila og fjölskyldur þeirra þurfa að geta treyst því að hlustað sé á þau og brugðist við áhyggjum þeirra. Velmegun þjóðarinnar þarf að skila sér alla leið inn á heimilin þeirra, í öruggri umönnun, virðingu og góðu daglegu lífi. Höfundur er þingmaður Framsóknar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingibjörg Ólöf Isaksen Mest lesið Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun Ég er hugsi – hvar er farsæld barnanna? Herdís Þórsteinsdóttir Skoðun Þegar einn múslimi talar, hvers vegna þurfa allir múslimar að svara? Mansoor Ahmad Malik Skoðun Icelandair – Tíminn til að bregðast við er núna Kjartan Björgvinsson Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Haltu bara í þér Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Íslenskukunnátta er sameiginleg ábyrgð Helga Rósa Másdóttir,Wendill Galan Viejo skrifar Skoðun Öfgar og ófagleg vinnubrögð Tryggvi Felixson skrifar Skoðun Þegar einn múslimi talar, hvers vegna þurfa allir múslimar að svara? Mansoor Ahmad Malik skrifar Skoðun Icelandair – Tíminn til að bregðast við er núna Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ég er hugsi – hvar er farsæld barnanna? Herdís Þórsteinsdóttir skrifar Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Sjá meira
Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun
Skoðun Þegar einn múslimi talar, hvers vegna þurfa allir múslimar að svara? Mansoor Ahmad Malik skrifar
Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun