Friðarsúlan er langt frá því að vera friðartákn fyrir náttúruna Kristján Kristjánsson skrifar 15. október 2026 09:32 Á hverju hausti, þegar Friðarsúlan kviknar í Viðey, vakna hjá mér blendnar tilfinningar. Ljósgeislinn sem rís upp í næturhimininn er vissulega áhrifamikill og hugmyndin að baki verkinu falleg. En sem lýsingarhönnuður og baráttumaður fyrir verndun náttúrulegs myrkurs upplifi ég þetta listaverk á neikvæðan hátt. Friðarsúlan veldur gríðarlegri ljósmengun sem mér finnst erfitt að réttlæta. Á þeim tæpu tuttugu árum sem liðin eru frá því að Friðarsúlan var vígð hefur þekking okkar á ljósmengun og áhrifum hennar á náttúruna aukist verulega. Við vitum nú að raflýsing getur haft neikvæð áhrif á vistkerfi. Myrkrið er ekki lengur eitthvað sem við eigum að sigrast á með því að lýsa allt upp, heldur náttúruauðlind sem okkur ber að vernda. Öflugum, bláleitum ljósgeisla Friðarsúlunnar er beint lóðrétt upp í himininn og við góðar aðstæður getur hann náð margra kílómetra hæð. Hún er tendruð ár hvert þann 9. október. Þótt hún logi ekki allt árið getur ljósmengunin verið veruleg á meðan hún er tendruð. Það er þó ákveðin heppni að stór hluti farfuglanna er þegar farinn af landinu á þessum árstíma. Fuglalíf er hins vegar í Viðey allt árið og það vekur óneitanlega spurningar um hvaða áhrif svo öflugur ljósgeisli hefur á fugla sem halda til á svæðinu eða fara þar um að næturlagi. Ég hef lengi fylgst með sambærilegu listaverki, minningarverkinu Tribute in Light í New York, þar sem áhrif öflugra ljósgeisla á fuglalíf hafa verið rannsökuð. Í rannsókn sem birtist árið 2017 kom meðal annars fram að við tiltekna mælingu fjölgaði fuglum í nágrenni ljósgeislanna úr um 500 í 15.700 á aðeins tuttugu mínútum. Fuglar drógust að ljósgeislunum, misstu áttir og flugu í hringi í kringum þá. Þetta minnir um margt á hvernig skordýr dragast að öflugum, bláleitum ljósgjöfum og geta fest í eins konar ljósgildru. Í New York hefur verið gripið til aðgerða til að draga úr hættu fyrir fuglalíf. Þar er fylgst sérstaklega með fuglaumferð og slökkt tímabundið á ljósgeislunum þegar of margir fuglar safnast saman. Þá dreifast fuglarnir yfirleitt á nokkrum mínútum. En hvað með Friðarsúluna í Viðey? Vitum við hvaða áhrif hún hefur á fuglalíf og annað lífríki? Ég hef ekki fundið rannsóknir eða tölur um þessi áhrif hér á landi og því væri rangt að fullyrða að Friðarsúlan valdi sama skaða og sést hefur annars staðar. En sú þekking sem við höfum á áhrifum sambærilegrar lýsingar ætti að vera næg ástæða til að rannsaka málið og endurmeta framkvæmdina. Ef við tökum friðarboðskapinn út úr myndinni um stund, værum við þá sátt við að einhver reisti svona öfluga ljósasúlu sem lýsir beint upp í næturhimininn? Þetta snýst ekki um að vera á móti listaverkinu eða þeim fallega boðskap sem Yoko Ono vill koma á framfæri. Þvert á móti. Það hlýtur að vera eðlilegt að við endurskoðum hvernig við miðlum þessum boðskap í ljósi nýrrar þekkingar og breyttra viðhorfa til náttúruverndar. Að mínu mati á Friðarsúlan ekki rétt á sér í núverandi mynd. Ef sambærilegt listaverk væri lagt fram til samþykktar nú, tel ég afar ólíklegt að það fengi brautargengi. Í ljósvistarstefnu Reykjavíkurborgar er lögð áhersla á að vernda myrkurgæði, draga úr ljósmengun og tryggja að stjörnusýn og upplifun náttúrulegs myrkurs fái að njóta sín. Það er einmitt það sem Friðarsúlan gerir ekki. Þvert á móti sendir hún öflugt ljós beint upp í næturhimininn og gengur þannig, að mínu mati, gegn þessum markmiðum borgarinnar. Friðarboðskapurinn á fullt erindi við okkur, jafnvel meira en nokkru sinni fyrr. En friður ætti líka að fela í sér virðingu fyrir náttúrunni og því lífi sem deilir með okkur þessari jörð. Það er kominn tími til að endurskoða Friðarsúluna og finna leið til að varðveita friðarboðskapinn án þess að fórna náttúrulegu myrkri. Að lágmarki hljótum við að geta rannsakað hvaða áhrif hún hefur á fuglalíf og annað lífríki í Viðey. Höfnudur er myrkur- og lýsingarhönnuður MSLL og nemi í umhverfissálfræði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Friðarsúlan í Viðey Umhverfismál Mest lesið Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvert í fjandanum erum við eiginlega komin sem samfélag? Steindór Þórarinsson Skoðun Hvað verður um störfin okkar? Auður Alfa Ólafsdóttir Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun