Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Andri Broddason skrifar 14. október 2026 10:30 Zlatko Tripic komst í hausinn á leikmönnum Bayern og endaði Olise á að fá sitt fyrsta rauða spjald á ferlinum Peter Kneffel/Getty Images Víkingar frá Noregi áttu stórleik í gær þegar liðið gerði 3-3 jafntefli við þýska stórveldið Bayern München í Noregi í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu í gærkvöldi. Norska liðið beytti ýmsum brögðum til þess að ráða við gestina frá Þýskalandi en liðið fór ekki yfir strikið að þeirra mati.
Eftir leik var Zlatko Tripic, leikmaður Vikings, mikið á milli tannanna á fólki en hann komst í hausinn á Michael Olise, stjörnu Bæjara, seint í leiknum og endaði Olise á að fá rautt spjald. Hann fékk fyrra gula spjaldið fyrir að stöðva skyndisókn með því að brjóta á leikmanni Viking. Eftir brotið ákvað hann svo að kasta boltanum í andlitið á Tripic sem norski fyrirliðinn gerði mikið úr. Ekki eru allir sáttir við hegðun Tripic í leiknum og hefur athugasemdum rignt inn á samfélagsmiðla hans og þá sérstaklega á Instagram. Í viðtali við NRK eftir leik sagðist hann ekki þora að opna samfélagsmiðilinn eftir leik. „Sem þekkt persóna þarf maður að lifa með því. Þetta gerist þegar milljónir manna horfa á leikinn. Maður vill aldrei heyra neitt slæmt sagt um fjölskyldu manns, fólk á þó að geta sagt það sem það vill um mig og vonandi les fjölskylda mín ekki það sem er skrifað þar,“ sagði Tripic og virtist ekki láta skoðanir annarra skipta sig máli. Þjálfari Vikinga, Bjarte Lune Aarsheim, sagði eftir leik að liðið hefði þurft að nota ýmis brögð úr bókinni en að liðið hefði ekki gengið of langt. Vincent Kompany, þjálfari Bayern München, var sammála og sagði Olise hafa gert mistök. „Ég vil ekki taka neitt af Viking. Þeir verða að nota verkfærin sem þeir eru með. Við erum vanir þessu og í augnablikum sem þessum getum við ekki látið leikmann vera rekinn af velli. Við bara getum það ekki, það er algjör óþarfi.“
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Fótbolti Norski boltinn Þýski boltinn Tengdar fréttir Mörkin úr Meistaradeildinni: Hákon gegn Arsenal, dramatík og óvænt úrslit Fjölmargir leikir fóru fram í Meistaradeild Evrópu í gær. Hákon Arnar Haraldsson og liðsfélagar hans í Lille fengu erfitt verkefni gegn Englandsmeisturum Arsenal og ein óvæntustu úrslit tímabilsins áttu sér stað í Noregi. 14. október 2026 09:31 Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Það voru óvænt úrslit í Meistaradeild Evrópu í kvöld þegar til að mynda Noregsmeistarar Viking náðu 3-3 jafntefli við Bayern á heimavelli og Inter tapaði 4-3 á heimavelli gegn Club Brugge. 13. október 2026 21:14 Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Fótbolti Lét gamminn geisa og fær að heyra það Enski boltinn Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Íslenski boltinn Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Íslenski boltinn Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Fótbolti Fleiri fréttir Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Náði að hefna sín gegn ítölsku félögunum Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Mörkin úr Meistaradeildinni: Hákon gegn Arsenal, dramatík og óvænt úrslit KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Lét gamminn geisa og fær að heyra það Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Myndaveisla: Breið bros og dansspor í Dalnum Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik „Stolt af því hvernig ég stóð mig í dag“ Aftur ráðast HM-örlög Íslands gegn Portúgölum Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum HM-draumurinn úti hjá Betu og Belgum eftir vító Hákon og félagar máttu sín lítils þegar ensku meistararnir skiptu um gír Atlético yfir í 89 mínútur og raunir United-manna aukast Glódís nær risaáfanga og þrjár koma nýjar inn Ísland - Króatía 5-0 | Íslensk einstefna á Laugardalsvelli Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Glódís heldur spilunum þétt að sér: „Get ekki gefið það upp hér“ Jóhann Berg pirraður eftir agabrot landsliðsmanna Skotflaug Húta setti strik í reikninginn hjá Ronaldo Dagskráin í dag: United-menn í Madrid og Hákon mætir Arsenal Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Félag Hákonar hótar lögsóknum eftir mikið áfall Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Sjá meira
Mörkin úr Meistaradeildinni: Hákon gegn Arsenal, dramatík og óvænt úrslit Fjölmargir leikir fóru fram í Meistaradeild Evrópu í gær. Hákon Arnar Haraldsson og liðsfélagar hans í Lille fengu erfitt verkefni gegn Englandsmeisturum Arsenal og ein óvæntustu úrslit tímabilsins áttu sér stað í Noregi. 14. október 2026 09:31
Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Það voru óvænt úrslit í Meistaradeild Evrópu í kvöld þegar til að mynda Noregsmeistarar Viking náðu 3-3 jafntefli við Bayern á heimavelli og Inter tapaði 4-3 á heimavelli gegn Club Brugge. 13. október 2026 21:14