Innlent

Ó­veður gengur yfir landið

Smári Jökull Jónsson, Lovísa Arnardóttir, Tómas Arnar Þorláksson, Eiður Þór Árnason og Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifa
Mikið tjón er á Siglufirði.
Mikið tjón er á Siglufirði. Aðsend

Óveður gengur nú yfir landið og tóku veðurviðvaranir gildi í öllum landshlutum á miðvikudagsmorgun. Um sextíu ára gamalt met var slegið þar sem aldrei hefur mælst jafn lár loftþrýstingur. Fylgst var með veðrinu og áhrifum þess í fréttavakt.

Á Breiðafirði tók appelsínugul viðvörun gildi klukkan 11:00 á miðvikudagsmorgun og tók slík viðvörun gildi á Vestfjörðum klukkan 15:00. Síðan tók appelsínugul viðvörun gildi á Ströndum og Norðurlandi vestra klukkan 21. 

Vindhraði á Stórhöfða í Vestmannaeyjum mældist tæpir 50 m/s. Þá var Hringveginum austan við Markarfljót og austur að Vík í Mýrdal lokað um tíma.

Töluvert eignatjón hlaust af þegar óveðrið gekk yfir Siglufjörð þar sem þrjú þök fuku af húsum. Þá fuku eftirvagnar, ruslagámar og heilu gluggarnir.

Hefur veðrið áhrif á þig? Hvernig? Sendu okkur ábendingu og myndir á ritstjorn@visir.is eða sem Fréttaskot hér.

Fréttastofan fylgdist með gangi mála í vaktinni hér að neðan. Ef vaktin birtist ekki er ráð að endurhlaða síðuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×