Körfubolti

Að­eins ein treyja toppar treyju Jordan

Aron Guðmundsson skrifar
Michael Jordan á tímabilinu 1998, þó ekki í umræddum leik gegn Utah Jazz í úrslitaeinvíginu. Treyjan þó af sömu gerð.
Michael Jordan á tímabilinu 1998, þó ekki í umræddum leik gegn Utah Jazz í úrslitaeinvíginu. Treyjan þó af sömu gerð. Vísir/Getty

Treyja sem Michael Jordan spilaði í á síðasta tíma­bili sínu með Chi­cago Bulls í úr­slitum NBA deildarinnar er orðin verðmætasti safn­gripur körfu­boltasögunnar.

Það er BBC sem greinir frá en umrædd treyja, sem Jordan spilaði í þegar Chicago Bulls mætti Utah Jazz í öðrum leik úrslitaeinvígis NBA deildarinnar árið 1998, var keypt á 14 milljónir Bandaríkjadala á uppboði. Treyjan er árituð af Michael Jordan.

Það jafngildir rúmum 1,7 milljörðum íslenskra króna. Treyjan er því verðmætasti safngripur körfuboltasögunnar til þessa miðað við verð sem fengist hefur fyrir slíka hluti á uppboði. Jordan skoraði 37 stig í umræddum leik en svo fór að Chicago varð NBA meistari. Þetta var sjötti meistaratitill Jordan og var hann, líkt og áður á meistaratímabilum sínum, valinn verðmætasti leikmaður úrslitaeinvígisins.

Aðeins einn uppboðshlutur úr íþróttasögunni skákar treyju Michael Jordan þegar kemur að verði. Það er treyja sem Babe Ruth spilaði í árið 1932 í frægum leik á World Series. Sú treyja seldist á 24,1 milljón Bandaríkjadala árið 2024.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×