Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Birgir Olgeirsson skrifar 12. október 2026 12:35 Sólveig Anna Jónsdóttir grunar að meira hafi verið samið um við VR og fagfélögin en birt samkomulag sýni og segir traustið til Bjarna Benediktssonar horfið. Bjarni hafnar grunsemdunum en Halla Gunnarsdóttir hefur varið niðurstöðuna og gagnrýnt afskipti Sólveigar Önnu af málum VR. Vísir Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag fylgdu niðurstöðunni við VR og fagfélögin, að sögn Bjarna Benediktssonar, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Hann segir enga innistæðu fyrir tortryggni Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar, og segist treysta sér til áframhaldandi samstarfs við verkalýðshreyfinguna þótt hún telji traustið til hans horfið.
Bjarni ræddi málið í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. Sólveig Anna hefur gagnrýnt framgöngu hans í viðræðunum og sagt SA hafa svikið trúnað við Eflingu og Breiðfylkinguna. Hana grunar að meira hafi verið samið um við VR og fagfélögin en birt samkomulag sýni. Skynsöm sjónarmið hjá fyrri hópnum Spurður hvort einhverju meira hafi verið samið um eða lofað en gert hafi verið opinbert hafnar Bjarni því. Hann rekur hvernig viðræðurnar við hópana tvo gengu fyrir sig. „Það var ekkert slíkt á ferðinni. Þetta var nú einfaldlega þannig að við þurftum að ná samkomulagi við tvo hópa og fyrst náðum við samkomulagi við Eflingu, Samiðn og Starfsgreinasambandið og mér fannst sá hópur koma fram með skynsöm sjónarmið snemma í þessu ferli um að það þyrfti að viðurkennast að það væri ekki mikið svigrúm til kostnaðarauka fyrir fyrirtækin í landinu og það væri skynsamlegt að leggja áherslu á þróun verðbólgunnar á næsta ári og á því tímabili sem eftir lifir af samningnum. Síðan tók lengri tíma að ná niðurstöðu með VR og Landssambandinu og fagfélögunum og það spilaðist þannig úr málum að við vorum að þrátta um þetta alveg fram á síðustu stundu.“ Á erfitt með að skilja tortryggnina Gagnrýni Sólveigar Önnu beinist einnig að framgöngunni í kringum samkomulagið. Hún telur SA hafa hjálpað VR og fagfélögunum út úr þeirri stöðu sem þau höfðu komið sér í með uppsagnarhótunum og tekið þátt í að gera meira úr niðurstöðunni. Í svari sínu víkur Bjarni að aðkomu SA að kynningu niðurstöðunnar sem fram fór á blaðamannafundi með forsætisráðherra í Ráðherrabústaðnum. Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir enga innistæðu fyrir tortryggni Sólveigar Önnu. Allt sem samið hafi verið um við VR og fagfélögin hafi verið gert opinbert.Vísir/Anton Brink Hann bendir á að samtökin hafi ekki boðað fjölmiðla á staðinn heldur mætt á fund sem ríkisstjórnin boðaði. „Það er ekki eitthvað sem Samtök atvinnulífsins bera ábyrgð á og það er ekkert sem hefur ekki verið gert opinbert sem um var samið. Þar fyrir utan áttu Samtök atvinnulífsins aldrei þátt í því að boða fjölmiðlamenn á staðinn. Við mættum hins vegar þar sem ríkisstjórnin hafði boðað til blaðamannafundar og ég verð bara að segja alveg eins og er að ég á erfitt með að skilja hvers vegna þessi atburðarás hefur valdið einhverri tortryggni í garð Samtaka atvinnulífsins. Mér finnst engin innistæða fyrir því.“ Treystir sér til samstarfs við alla Sólveig Anna hefur jafnframt sagt að traustið sem byggðist upp milli Eflingar og SA á tíma Sigríðar Margrétar Oddsdóttur sé horfið eftir að Bjarni tók við sem framkvæmdastjóri. Hann var spurður hvernig hann meti þá stöðu og hvaða þýðingu hún hafi fyrir næstu kjaraviðræður. „Ja, mér þykir miður að í framhaldi af ágætis samkomulagi sem við handsöluðum sé komist að þessari niðurstöðu, að allt saman sé byggt á því að það sé eitthvað sem ekki hefur komið fram í dagsljósið sem síðan er ekki. En ég treysti mér ágætlega til þess að eiga samtöl og samstarf við alla í verkalýðshreyfingunni í framhaldinu og við verðum bara að sjá hvernig úr því spilast þegar að því kemur.“ Útfærsla fyrra útspils SA Einnig hefur verið deilt um hvað breyttist í tilboði SA frá því Breiðfylkingin samdi á þriðjudegi og þar til VR og fagfélögin gengu frá sinni niðurstöðu á fimmtudegi. Bjarni var spurður hvort tilboðið sem lá fyrir fyrr í vikunni hefði í raun verið samþykkt tveimur dögum síðar. „Það er nú svona dæmi um það hvernig við ákváðum að stíga fram í þessum samskiptum. Að við komum því frá okkur á nokkurn veginn sama tíma til allra aðila í báðum þessum samningahópum og það má segja að það hafi verið útfærsla af því útspili okkar sem hafi á endanum verið niðurstaðan í samtalinu við Höllu Gunnarsdóttur og þau sem fylgdu henni í þessari samningalotu. Ekki nákvæmlega orð fyrir orð eins og við höfum stillt því upp en útfærsla sem við gátum vel lifað með.“ Framhaldið verði ekki sléttur sjór Að lokum var Bjarni spurður hvort stærsti áfanginn væri að samkomulag hefði náðst og hvort niðurstaðan gæfi tilefni til að vænta friðar á vinnumarkaði. „Við vonumst að sjálfsögðu til þess að við getum séð verðbólgu lækka á næsta ári og vextir haldi áfram að fara niður með verðbólgunni. Þeir hafa því miður verið að hækka að undanförnu og stóðu í stað núna í síðustu ár. Það var stóra verkefnið af okkar hálfu að gefast ekki upp í baráttunni við verðbólgu og vinna áfram að því markmiði að ná niður vöxtunum. Við skulum vona að það geti gengið eftir en ég hef alveg áfram áhyggjur af efnahagslífinu heima.“ Hann víkur síðan að stöðu fyrirtækjanna og atvinnuleysi. „Þær launahækkanir sem voru inni í samningnum eru krefjandi fyrir fyrirtækin við þær aðstæður sem eru uppi. Við höfum verið með háa vexti í svo langan tíma og þetta mun ekki gerast af sjálfu sér heldur þarf að vakta þetta mjög vel í framhaldinu. Ég hef áhyggjur af vaxandi atvinnuleysi þannig að það er gott að það sé komin niðurstaða í þessa lotu vegna forsendubrestsins en það þýðir ekki að þetta verði sléttur sjór og mjög auðvelt í framhaldinu.“
Kjaramál Vinnumarkaður Stéttarfélög Atvinnurekendur Kjaraviðræður 2023-25 Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Fleiri fréttir Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Sjá meira