Viðskipti innlent

Hús­leit hjá Öl­gerðinni

Bjarki Sigurðsson skrifar
Ölgerðin er meðal dótturfélaga Beru.
Ölgerðin er meðal dótturfélaga Beru. Vísir/Vilhelm

Samkeppniseftirlitið hefur hafið húsleit hjá Beru hf., móðurfélagi Ölgerðarinnar, vegna rannsóknar á ætluðum brotum Ölgerðarinnar á samkeppnislögum. Embætti héraðssaksóknara aðstoðaði við húsleitina.

Þetta kemur fram í tilkynningu Beru til Kauphallar.

Eftirlitið grunar Beru um brot á 11. grein samkeppnislaga sem leggur bann við hvers konar misnotkun eins eða fleiri fyrirtækja á markaðsráðandi stöðu.

„Húsleitin er framkvæmd með heimild Héraðsdóms Reykjavíkur og er liður í rannsókn sem á þessu stigi tekur til tímabilsins frá og með árinu 2020 til dagsins í dag. Félagið mun veita upplýsingar um framgang málsins eftir því sem tilefni verður til,“ segir í tilkynningunni.

Allt gekk sinn vanagang í framleiðslunni þegar fréttamaður og tökumaður mættu á ellefta tímanum í morgun.Vísir/Sigurjón

Samkeppniseftirlitið framkvæmdi nýlega rannsókn á mörkuðum sem Ölgerðin starfar á. Þar kom fram að eftirlitið teldi sterkar vísbendingar um að Ölgerðin væri í markaðsráðandi stöðu í sölu á léttvíni og sterku áfengi til veitingastaða og annarra stórnotenda. 

Í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu segir að tilgangur húsleitarinnar hafi verið að afla og tryggja varðveislu gagna sem kunna að hafa þýðingu fyrir rannsókn málsins. Rannsókn þeirra miðar að því að ganga úr skugga um hvort Ölgerðin sé í markaðsráðandi stöðu á viðkomandi mörkuðum og hvort fyrirtækið hafi virt bann samkeppnislaga við mistokun á markaðsráðandi stöðu.

Áréttað er í tilkynningunni að framkvæmd húsleitar felur ekki í sér niðurstöðu um að brot gegn samkeppnislögum hafi átt sér stað.

Innherji fjallaði ítarlega um málið og kom fram að Ölgerðin væri tvisvar til þrisvar sinnum stærra en helstu keppinautar á markaði. Sömuleiðis að við rannsókn á kaupum Ölgerðarinnar á Gæðabakstri og Kjarnavörum hefðu margir keppinautar lýst áhyggjum af því að aukin vörubreidd gæti gert félaginu kleift að styrkja enn frekar stöðu sína með því að tvinna saman sölu matvæla og drykkjarvara.

Andri Guðmundsson, stjórnarformaður Beru, sagði í stuttu samtali við Vísi í morgun að hann væri að afla sér frekari upplýsinga og gæti ekki veitt viðtal að svo stöddu. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu eru forsvarsmenn Ölgerðarinnar og Beru á fundi með almannatengli og ólíklegt er að þeir veiti viðtal fyrir hádegi. Þá hefur Vísir reynt að ná sambandi við forstjóra Samkeppniseftirlitsins og sérfræðing þess í kynningar- og miðlunarmálum, án árangurs.

Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari segir í samtali við Vísi að embættið hafi aðstoðað Samkeppniseftirlitið við húsleitina. Hann geti ekki tjáð sig frekar um málið sem sé á forræði Samkeppniseftirlitsins.

Tilkynning Samkeppniseftirlitsins í heild sinni:

Í kauphallartilkynningu Beru hf. í dag er greint frá því að Samkeppniseftirlitið hafi framkvæmt húsleit vegna rannsóknar á ætluðum brotum Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar ehf. gegn 11. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005, sem bannar misnotkun á markaðsráðandi stöðu.

Af þessu tilefni vill Samkeppniseftirlitið taka eftirfarandi fram:

Samkeppniseftirlitið hefur hafið rannsókn á háttsemi Beru hf., dótturfélagsins Ölgerð Egils Skallagrímssonar og öðrum tengdum félögum (nefnt hér í einu lagi Ölgerðin) á drykkjarvörumarkaði. Miðar rannsóknin að því að ganga úr skugga um hvort Ölgerðin sé í markaðsráðandi stöðu á viðkomandi mörkuðum og jafnframt hvort fyrirtækið hafi virt bann samkeppnislaga við misnotkun á markaðsráðandi stöðu.

Í þágu rannsóknarinnar taldi Samkeppniseftirltið nauðsynlegt að framkvæma húsleit í húsakynnum Ölgerðarinnar.Fer húsleitin fram á grundvelli úrskurðar Héraðsdóms Reykjavíkur og í samræmi við heimildir Samkeppniseftirlitsins samkvæmt 20. gr. samkeppnislaga.

Tilgangur húsleitarinnar er að afla og tryggja varðveislu gagna sem kunna að hafa þýðingu fyrir rannsókn málsins.

Samkeppniseftirlitið áréttar að framkvæmd húsleitar felur ekki í sér niðurstöðu um að brot gegn samkeppnislögum hafi átt sér stað.

Ekki verða veittar frekari upplýsingar um rannsóknina að svo stöddu.


Tengdar fréttir

Sterkar vís­bendingar um yfir­burðastöðu Öl­gerðarinnar í vínsölu til stór­not­enda

Samkeppniseftirlitið telur „sterkar vísbendingar“ um að Ölgerðin sé í markaðsráðandi stöðu í sölu á léttvíni og sterku áfengi til veitingastaða og annarra stórnotenda, en félagið er á þeim mörkuðum um tvisvar til þrisvar sinnum stærra en næstu keppinautar. Við rannsókn á kaupum Ölgerðarinnar á Gæðabakstri og Kjarnavörum lýstu margir keppinautar áhyggjum af því að aukin vörubreidd gæti gert félaginu kleift að styrkja enn frekar stöðu sína með því að tvinna saman sölu matvæla og drykkjarvara.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×