Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar 8. október 2026 09:16 Hversu skýrt þurfa Seyðfirðingar að segja nei áður en á þá er hlustað? Matvælastofnun hefur gefið út leyfi fyrir sjókvíaeldi í Seyðisfirði, þvert á vilja 75% Seyðfirðinga sem eru andvígir áformunum. Seyðfirsku grasrótarsamtökin VÁ hafa haldið uppi hetjulegri baráttu gegn þessum áformum og boða nú til mótmæla gegn þeim á sunnudaginn 11. október klukkan 15:00 á Austurvelli. Seyðisfjörður er þröngur fjörður og á að koma fyrir í honum sjókvíaeldi með allt að 10.000 tonnum af lífmassa. Það myndi jafngila í kringum 15% af núverandi framleiðslumagni sjókvíaeldis við Íslandsstrendur. Álagið yrði því gífurlegt fyrir langan og mjóan fjörð sem þjónustar þegar fjölbreytta skipaumferð og starfsemi af ýmsu tagi. Fiskeldi í sjó stendur nú á krossgötum, en greinin hefur fengið að vaxa án raunverulegs aðhalds í meira en áratug. Á þeim tíma hefur greinin sprungið út og fengið að leggja undir sig hvern fjörðinn á fætur öðrum. Þessi vöxtur hefur verið að miklu leyti drifinn áfram af fjármagni norskra laxeldisfyrirtækja en þrír stærstu aðilar íslensks laxeldis eru að verulegu leyti í eigu stórra norskra aðila eða fjárfesta úr norskum laxeldisiðnaði. Ábyrgð þessara fyrirtækja er ekki meiri en sú að á undanförnum áratug hafa tugir þúsunda norskra eldislaxa sloppið og þar með sett náttúrulega laxastofna Íslands í hættu. Þar að auki er dýravelferð að engu höfð í sjókvíaeldi. Laxinn er þar sárkvalinn af lús sem étur í gegnum hold hans, oft inn að beini. Hann lifir í gífurlegum þrengslum og í menguðu vatni sem er honum ónáttúrulegt. Aföll eru því gífurleg ár hvert og voru nærri 5 milljónir laxa árið 2025. Engar lausnir eru til á þessum vandamálum í opnum sjókvíum og í staðinn er plástrað yfir vandann með gífurlegu magni af lyfjum til að reyna að hafa stjórn á lúsinni. Lyfin og önnur mengun í formi saurs og fóðurleifa leka svo beint út í firðina og setjast í þykkum lögum á botn þeirra. Það er því ekki að furða að Seyðisfirðingar vilji ekki hafa slíkan iðnað hjá sér. Spurningin snýst því á endanum um sjálfsákvörðunarrétt byggða, að stórfyrirtæki geti ekki eignað sér náttúruna þvert á vilja íbúa. Að það sé ekki hægt að hertaka viðkvæma firði undir mengandi stórframleiðslu á eldislaxi. Fjölmennum á mótmælin á sunnudaginn klukkan 15:00 og sýnum Seyðisfirði stuðning. Leyfum stórfyrirtækjum ekki að valta yfir íslenska náttúru! Höfundur er stjórnarmaður í Sósíalískum umhverfissinnum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Umhverfismál Sjókvíaeldi Múlaþing Mest lesið Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Sjá meira
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar