Rahm segist vilja rifta við LIV Andri Broddason skrifar 7. október 2026 17:32 Jon Rahm mun líklegast ekki lengur vera hluti af LIV-mótaröðinni. Getty/Michael Reaves Spænski kylfingurinn Jon Rahm var eitt stærsta nafnið í golfheiminum sem fór frá PGA-mótaröðinni og gekk til liðs við LIV-mótaröðina. Eftir mikil fjárhagsvandræði er LIV að endurskipuleggja sig en tillögur nýju útgáfu mótaraðarinnar hentuðu ekki Rahm og mun hann því að öllum líkindum fara frá mótaröðinni.
LIV er gjaldþrota eftir að sádi-arabískir fjárfestar drógu fjármagn sitt til baka úr mótaröðinni. Það þurfti því að finna nýjar lausnir á því að reyna að halda mótaröðinni gangandi og hafa þær lausnir ekki hentað Rahm. Lögfræðingurinn hans Rahm tilkynnti þetta fyrir dómi þegar verið var að fara yfir gjaldþrot mótaraðarinnar. Spánverjinn hefur verið í umræðum við LIV um að rifta samningi sínum við mótaröðina og er búist við að það muni klárast von bráðar. Samkvæmt BBC Sport þá hafa þeir kylfingar sem voru samningsbundnir LIV til margra ára fram í tímann ekki endilega að halda áfram á mótaröðinni. Eftir nýja útgáfu mótaraðarinnar verður litið á hana sem nýja mótaröð sem kemur eftir gjaldþrot þeirra fyrri. Út frá því má gera ráð fyrir því að margir kylfingar muni segja sig frá LIV-mótaröðinni. Ekki er þó víst hvort að Rahm geti snúið aftur á PGA-mótaröðina þar sem hún hefur verið treg til þess að bjóða kylfinga velkomna sem hafa verið á LIV. Brooks Koepka er einn af þeim fáu kylfingum sem hafa snúið aftur til PGA en því fylgir að hann fær mun minna verðlaunafé. Hann hefur þó gert samning við DP World-mótaröðina og mun líklegast geta haldið áfram að spila þar.
Golf LIV-mótaröðin Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira