Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar 1. október 2026 18:00 Nýlega kynnti Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra, bráðabirgðatölur um losun Íslands á gróðurhúsalofttegundum árið 2025. Þar kom fram að bílaleigur hefðu fengið um tíu milljarða króna beint og óbeint í ríkisstuðning í nafni loftslagsmála í tíð síðustu ríkisstjórnar og var í máli ráðherra ýjað að því að íslenskur almenningur væri að borga þann brúsa. Afdrif hins meinta 10 milljarða ríkisstyrk voru loks birt eftir ákall frá bílaleigum. Stjórnvöld telja til umrædds ríkisstyrks matskennda 3,5 milljarða í niðurfellingu virðisaukaskatts vegna útleigu vistvænna bifreiða sem er beinlínis röng túlkun. Með sama hætti mætti ætla að tímabundin niðurfelling virðisaukaskatts af eldsneyti í sumar upp á metna 3,5 milljarða hafi verið ríkisstyrkur til olíufélaganna og að TAX FREE endurgreiðsla til erlendra aðila væri ríkisstyrkur til verslana. Virðisaukaskattur er greiddur af þeim sem kaupir vöru og þjónustu, ekki þeim sem selur og því tómt mál að tala um styrk til bílaleiga eða annarra. Ríkið sjálft og stofnanir þess nutu helst góðs af þessari ráðstöfun með því að leigja vistvæna bíla. Stjórnvöld telja einnig til ríkisstyrksins 2 milljarða vegna niðurfellingar á virðisaukaskatti við endursölu vistvænna bílaleigubíla. Það er einnig ranglega túlkað þar sem þessir bílar báru ekki virðisaukaskatt við kaup frekar en aðrir sambærilegir bílar og því eðlilegast og mesta jafnræði fólgið í því að sömu bílar beri ekki virðisaukaskatt við endursölu. Það mætti á móti segja að bílaleigur hafi verið blekktar inn í kerfið og nú látnar greiða skatt sem þær stofnuðu ekki til. Ef bílaleigur hefðu nýtt frádrátt á virðisaukaskatti við kaup á bílunum hefðu þær sannarlega lagt virðisaukaskatt á endursöluna eins og eðlilegt er. Bílaleigur setja kökur í krúsina og stjórnvöld stela þeim Stjórnvöld virðast telja að bílaleigur séu að stela kökunni úr krúsinni á kostnað almennings. Þó má ætla að skattspor bílaleiga sé árlega talsvert umfram það sem veitt hefur verið undanfarin ár til orkuskipta. Þeir styrkir sem veittir hafa verið fóru í orkuskiptaverkefni sem bundin voru ströngum skilyrðum og stýrt af stjórnvöldum, sem öll skiluðu tilætluðum árangri. Kannski er þetta allt spurning um mismunandi upplifun um afdrif kökunnar. Það er að minnsta kosti ekki íslenskur almenningur sem greiðir styrkinn. Kannanir Ferðamálastofu hafa sýnt að yfir 60% ferðamanna nýta bílaleigubíla hér á landi. Akstur þeirra bíla skilar sér m.a. í tekjum gististaða, veitingastaða, afþreyingu og eldsneytissölu um allt land. Þetta eru ferðaþjónustufyrirtæki sem skila sköttum sem nema í heild yfir 200 milljörðum á ári og eru mikið til mötuð af farþegum bílaleigubíla sem fjölga kökum í krúsinni. Samstarf en ekki stríð Jóhann Páll kom einnig inn á að bílaleigur væru dragbítur á orkuskiptum í samgöngum og að reikningnum væri skellt á íslensk heimili þegar greiða þarf fyrir seinaganginn. Hér skal tekið fram að bílaleigur hafa margoft lagt til lausnir til lækkunar á losun og eflingu innviða sem gæti aukið eftirspurn á leigu rafbíla. Það hefur miklu frekar skort á samstarfsvilja stjórnvalda, með það langtímamarkmið að draga úr losun í samgöngum og koma í veg fyrir greiðslubyrði til framtíðar. Bílaleigur láta sitt ekki eftir liggja í umræðunni um stefnu stjórnvalda í loftslagsmálum og telja að best sé að ræða málin við ráðherra og aðra ráðamenn með málefnalegum og lausnamiðuðum hætti. Markmiðið ætti að vera að fara í aðgerðir sem lækka þann reikning sem lendir á þjóðinni vegna seinagangs í loftslagsmálum. Fjölgum þannig kökum í krúsinni í stað þess að rífast um hver tók eina. Höfundur er verkefnastjóri bílaleiga hjá Samtökum ferðaþjónustunnar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bílaleigur Mest lesið Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar