Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Atli Ísleifsson skrifar 1. október 2026 14:44 Hörður Arnarson. Vísir/Vilhelm Hörður Arnarson hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar. Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, mun taka tímabundið við starfi forstjóra frá 1. nóvember, þar til nýr forstjóri verður ráðinn.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsvirkjun. „Hörður tók við stjórn fyrirtækisins síðla árs 2009, í miðju efnahagshruni, og á þeim 17 árum sem hann hefur gegnt starfinu hafa orðið stakkaskipti á bæði rekstri Landsvirkjunar og raforkumarkaðnum á Íslandi. Hörður leiddi fyrirtækið í gegnum miklar breytingar þar sem meðal annars var endursamið við stóra viðskiptavini, fjórar nýjar virkjanir byggðar, skuldir lækkaðar og í kjölfarið er Landsvirkjun nú farin að skila þjóðinni tugum milljarða í skatta og arðgreiðslur á hverju ári,“ segir í tilkynningunni. Haft er eftir Herði að hann stígi bæði ánægður og stoltur frá borði eftir þessi sautján ár. „Fyrst og fremst langar mig að þakka öllum þeim sem hafa lagt sitt af mörkum og átt þátt í þeim góða árangri sem við höfum náð fyrir Landsvirkjun og íslenskt samfélag – ekki síst starfsfólki fyrirtækisins. Það er ánægjulegt að skilja við Landsvirkjun jafn sterka og raun ber vitni,“ er haft eftir Herði. Fréttamaður Sýnar mætti upp í Landsvirkjun með það fyrir augum að fá viðtal við Hörð að loknum starfsmannafundinum. Upplýsingateymi Landsvirkjunar sagði að Hörður myndi ekki veita viðtöl. Hann færi nú í vikufrí til útlanda og starfi svo hjá Landsvirkjun út október. Hörður var með á fimmtu milljón króna í mánaðarlaun árið 2025 samkvæmt Tekjublaði Frjálsrar verslunar. „Ómetanlegt framlag“ Í tilkynningunni er jafnframt haft eftir Brynju Baldursdóttur, stjórnarformanni Landsvirkjunar, að þakklæti sé efst í huga stjórnarinnar við þessi tímamót. „Fyrir hönd stjórnar Landsvirkjunar vil ég færa Herði innilegar þakkir fyrir ómetanlegt framlag hans til fyrirtækisins undanfarin sautján ár. Hann tók við stjórnartaumunum á krefjandi tímum og hefur síðan leitt Landsvirkjun af festu og framsýni í gegnum miklar breytingar og öfluga uppbyggingu. Árangurinn talar sínu máli og orkufyrirtæki þjóðarinnar stendur í dag traustum fótum, vel í stakk búið til að takast á við verkefni framtíðarinnar. Við erum afar þakklát fyrir samstarfið og óskum Herði og fjölskyldu hans alls hins besta á komandi árum,“ segir Brynja.
Landsvirkjun Orkumál Vistaskipti Mest lesið Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Sjá meira