Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar 1. október 2026 12:15 Það er með ólíkindum að lesa viðtal við Helga Gunnlaugsson prófessor í félags- og afbrotafræði um refsingar við kaupum á vændi. Í viðtalinu kemur fram að 60% landsmanna séu fylgjandi því að refsað sé fyrir kaup á vændi. En kynjamunur er sláandi: 84% kvenna eru fylgjandi refsingum en aðeins 47% karla. Helgi bendir á að þessi mikli munur geti skýrst af þeirri mynd sem dregin er upp af vændi í samfélaginu - að seljendur séu fyrst og fremst þolendur mansals, þvingunar og erfiðra aðstæðna. Hér finnst mér ágætt að staldra við. Af hverju ætti sú mynd að vera svona ótrúverðug? Og af hverju eru síðmiðaldra karlar að framkvæma rannsókn á viðhorfi til akkurat þessarra lögbrota? Konur sjá aðra hlið á vændi Þær upplýsingar sem liggja fyrir benda til þess að konur séu í meirihluta þeirra sem selja vændi. Konur þekkja því ekki aðeins umræðuna um vændi úr fjölmiðlum eða fræðigreinum. Þær þekkja samfélagið sem konur og með þeim valdaójöfnuði og þeirri kynferðislegu hagnýtingu sem getur fylgt því að vera kona. Kannski er líkleg ástæða þess að konur styðja frekar refsingu kaupanda ekki sú að þær séu einfaldlega auðtrúa gagnvart einfaldri skilgreiningu á vændi heldur vegna þess að þær sjá og upplifa aðrar hliðar á vændi. Það er kannski þess vegna sem þessi umræða ,,virðist hitta konur meira fyrir” , samkvæmt Helga, ,,vegna þess að konur virðast síður sjá að um geti verið að ræða frjálsa starfsemi sem einkennist að einhverju leyti af vilja þeirra sjálfra” - eins og hann orðar það. Seljendur eru ekki einsleitur hópur. Það er rétt. Ekki allar konur sem selja vændi eru þolendur mansals. Ekki allar eru þvingaðar af öðrum einstaklingi. Ekki allar eru í sömu félagslegri stöðu. En þessi staðreynd ein og sér leiðir ekki sjálfkrafa að þeirri niðurstöðu að vændi sé almennt frjáls starfsemi eða að kaupandinn geti gengið út frá því að fá raunverulegt og frjálst samþykki með peningagreiðslu. Val er ekki alltaf frelsi Kynferðislegt samþykki verður að vera frjálst, upplýst og afturkallanlegt. Ef samþykki er veitt við aðstæður sem einkennast af fjárhagslegri neyð, fíkn, heimilisleysi, mansali eða annarri viðkvæmri fjárhagslegri stöðu verðum við að spyrja hvort um raunverulegt frjálst val er að ræða. Val er ekki alltaf það sama og frelsi. Manneskja getur tekið meðvitaða ákvörðun og samt verið að velja á grundvelli mjög erfiðrar stöðu og fárra möguleika. Greiðsla getur ekki breytt skorti á raunverulegu samþykki í lögmætt samþykki. Þetta sjónarmið verður sérstaklega mikilvægt þegar horft er til þess að mörkin milli vændis, kynferðislegrar hagnýtingar og mansals geta verið óljós. Aðstæður þeirra sem selja aðgang að líkama sínum eru misjafnar og mikilvægt er að löggjöfin taki mið af þeirri berskjöldun sem getur falist í félagslegri eða efnahagslegri neyð. Jafnframt getur hagnýting þróast og breyst, meðal annars þegar aðrir aðilar fara að nýta sér viðkvæma stöðu einstaklings með óbeinum greiðslum eins og til að mynda húsnæði og uppihaldi. Að mínu mati færist umræðan um kaup á vændi æ oftar að því hvort refsing sé of þung eða ekki og jafnvel hvort slíkt sé refsivert yfir höfuð. Það er óábyrgt að líta á öll vændiskaup sem einföld viðskipti á milli tveggja jafnra rétthárra einstaklinga, því peningagreiðsla fyrir afnot af líkama felur óhjákvæmilega í sér valdníðslu. Fylgjandi refsingu eða ekki? Helgi segir í viðtalinu að „hertar refsingar fyrir kaup á kynlífsþjónustu geta jafnvel gert aðstæður seljenda enn erfiðari og hættulegri“. Þarna er Helgi að viðurkenna að sölu á vændi fylgja erfiðleikar og hætta. Önnur hætta liggur í því að ekki eru til úrræði fyrir þolendur vændis sem vilja losna undan því. Þolendur vændis þurfa öruggt húsnæði, fjárhagslegan stuðning, aðgengilega heilbrigðis- og félagsþjónustu, áfallamiðaðan stuðning og raunhæfa leið til að byggja upp líf án þess að þurfa að selja vændi. Við erum að missa sjónar á miklu stærra vandamáli sem eru allar þær aðtæður sem skapa þolendur vændis og hvernig best er að aðstoða þá einstaklinga. Það er vöntun á meiri ábyrgð í þessum málaflokki. Ef ríkið ætlar að herða refsingar fyrir kaup á vændi þarf líka að vera hægt að rannsaka brotin, sækja þau og fylgja þeim eftir. Það kostar peninga og krefst mannafla. Það sama gildir um stuðning við fólk sem vill komast út úr vændi. Það er ekki hægt að samþykkja hærri refsingu á pappír og gleyma fólkinu sem þetta raunverulega snýst um. Í stað þess að ræða þessa ábyrgð er umræðan sett upp sem spurning um hvort við séum „fylgjandi refsingu“ fyrir vændiskaup. Við gerum ekki reglulega skoðanakannanir á því hvort landsmenn séu fylgjandi því að refsa fyrir líkamsárásir, þjófnað eða önnur lögbrot. Kannski segir þessi spurning meira um hvernig við tölum um vændi en refsinguna sjálfa. Hlustum á konur Kaupandinn þarf að geta tekið ábyrgð á eigin ákvörðun. Ábyrgð ríkisins felst í því að lögin séu sterk, og að brot séu rannsökuð og afleiðingar fylgi lögbrotum. Ábyrgð samfélagsins er svo að bjóða upp á skapa raunverulega úrræði leið fyrir þau sem vilja hætta sölu á vændi en geta það ekki sjálf. Það er frekar sérstakt að ræða um frelsi þeirra sem kaupa en ekki frelsi þeirra sem vilja hætta. Missum ekki sjónar á því sem skiptir máli. Kaup á vændi eru nú þegar refsiverð samkvæmt íslenskum hegningarlögum. Það er eðlilegt að þyngja refsingu fyrir kaup á vændi þannig að ekki sé hægt að ljúka slíku lögbroti með sektargreiðslu, líkt og um stöðumælasekt væri að ræða. Kaupandi vændis á hvorki að geta keypt aðgang að líkama annarrar manneskju né keypt sig frá ábyrgð slíks lögbrots. Meirihluti landsmanna eru fylgjandi refsingu fyrir kaupum á vændi, í því er meirihlutinn konur. Hlustum á konurnar. Höfundur er stjórnarformaður Vitundar, samtaka gegn kynbundnu ofbeldi. Heimildir : Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup - Vísir „Þar sem vændi þrífst þar þrífst líka mansal“ - Vísir Vændi | Stígamót Kynferðislegt mansal Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar - Vísir Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni - Vísir Vandi_a_islandi.pdf Stjórnarráðið | Úrskurður nr. 154/2026 Samráðsgátt | Mál: S-118/2026 Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðný S. Bjarnadóttir Vændi Kynbundið ofbeldi Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun