Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar 28. september 2026 15:31 Kæri Húnbogi Þór, Ég skrifa þér vegna fyrirhugaðs leigusamnings Fjöl ehf. við íslenska ríkið um húsnæðið að Klettatröð 8 undir svokallaða brottfararstöð. Ég vil biðja þig um að staldra við áður en fyrirtæki þitt skuldbindur sig til þátttöku í þessu verkefni og velta fyrir þér þeirri siðferðilegu ábyrgð sem fylgir því að leggja til húsnæði undir stofnun þar sem saklaust fólk á flótta verður svipt frelsi sínu. Þetta er ekki venjulegur leigusamningur. Lögin skilgreina brottfararstöð sem stað þar sem útlendingar sæta frelsisskerðingu. Þar er jafnframt gert ráð fyrir heimildum til valdbeitingar, líkamsleitar, agaviðurlaga, aðskilnaðar og vistunar í öryggisklefa. Einnig er heimilt samkvæmt lögunum að vista fjölskyldur með börn á stöðinni. Það hefur vakið mjög alvarlegar áhyggjur meðal þeirra samtaka hér á landi sem hafa hvað mesta þekkingu á réttindum barna, flóttafólks, fatlaðs fólks og annarra viðkvæmra hópa. Níu mannréttinda- og mannúðarsamtök stóðu saman að áskorun til Alþingis vegna frumvarpsins, meðal þeirra Barnaheill, Rauði krossinn á Íslandi, UNICEF á Íslandi, ÖBÍ réttindasamtök, Geðhjálp og Samtökin ’78. Þau mótmæltu sérstaklega þeirri heimild að hægt væri að frelsissvipta börn á flótta og vöruðu við því að slík framkvæmd bryti gegn réttindum barna samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þetta eru ekki léttvægar athugasemdir. Fólkið sem endar í þessu fangelsi eru meðal annars einstaklingar sem hafa flúið stríð, ofsóknir, pyntingar, mansal eða annars konar ofbeldi. Þar geta verið foreldrar og börn. Þar geta verið einstaklingar sem þegar bera með sér alvarleg áföll og eru í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Frelsissvipting getur haft mjög alvarleg áhrif á slíkt fólk. Þess vegna tel ég að ábyrgðin á þessu verkefni liggi ekki eingöngu hjá stjórnvöldum og lögreglu. Fyrirtæki og einstaklingar sem gera framkvæmdina mögulega þurfa einnig að spyrja sig hvaða hlutverki þeir eru tilbúnir að gegna. Þú stendur nú frammi fyrir slíku vali. Fjöl ehf. þarf ekki að leigja ríkinu þetta húsnæði. Þú þarft ekki að taka þátt í því að skapa aðstöðu þar sem saklaust og viðkvæmt fólk verður lokað inni. Það kann að vera löglegt að gera slíkan samning. En spurningin er ekki aðeins hvað er löglegt. Spurningin er líka hvað við teljum siðferðilega rétt. Þegar Rauði krossinn, UNICEF, Barnaheill, ÖBÍ réttindasamtök, Geðhjálp og fleiri samtök vara við afleiðingunum höfum við, að mínu mati, skyldu til að hlusta. Ég bið þig því að hugsa málið aftur og kynna þér umsagnir mannréttinda- og mannúðarsamtaka um brottfararstöðina, tala við fólk sem vinnur með flóttafólki og kynna þér sérstaklega hvaða áhrif frelsissvipting getur haft á börn og fólk sem hefur þegar orðið fyrir alvarlegum áföllum. Ég vona að þú komist að sömu niðurstöðu og ofangreind samtök og dragir Fjöl ehf. út úr viðræðum um leigu Klettatraða 8 undir brottfararstöð. Það eru augnablik þar sem fyrirtæki og einstaklingar þurfa að ákveða hvort fjárhagslegur ávinningur sé þess virði að taka þátt í verkefni sem hefur svo alvarlegar mannréttindalegar og siðferðilegar afleiðingar. Þetta er eitt þeirra augnablika. Með von um að þú takir þessar áhyggjur alvarlega, Margrét Rut Eddudóttir, sjúkraliði og myndlistarmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar