Krónan frystir verð til áramóta Lovísa Arnardóttir skrifar 24. september 2026 10:02 Guðrún Aðalsteinsdóttir segir mikilvægt að allir leggi sitt af mörkum. Aðsendar Frá og með deginum í dag frystir Krónan verð á 647 vörum undir vörumerkjunum Krónan, Krónan Lífrænt, Krónan Ódýrt, First Price, Grön Balance og Gestus. Verðfrystingin stendur til og með 31. desember 2026.
Verðfrystingin miðast við almennt söluverð varanna 23. september. Verð varanna mun því ekki hækka á tímabilinu samkvæmt tilkynningu, jafnvel þótt innkaupsverð, flutningskostnaður eða aðrir kostnaðarliðir hækki. Skapist hins vegar svigrúm til verðlækkana, til dæmis vegna lægra innkaupsverðs eða styrkingar krónunnar, verður þeim ávinningi skilað áfram til viðskiptavina samkvæmt tilkynningunni. Greint var frá því um helgina að Bera, móðurfélag Ölgerðarinnar, Danól, Gæðabaksturs, Kjarnavara og fleiri vörumerkja, hafi heitið því að hækka ekki verð framleiðsluvara sinna um áramótin, umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans. Þá hefur SS einnig tilkynnt að þau fresti verðhækkunum til áramóta. Óskuðu viðbragða frá verðmótandi fyrirtækjum VR, LÍV og Fagfélögin sendu verðmótandi fyrirtækjum bréf í síðustu viku og óskuðu svara um hvað þau ætli að leggja af mörkum svo að kjarasamningar geti haldið gildi sínu. Þó nokkur sveitarfélög, Kópavogur og Árborg, sem dæmi, hafa einnig tilkynnt að þau ætli að takmarka gjaldskrárhækkanir á tímabilinu. Í tilkynningu Króunnar kemur fram að með aðgerðinni vilji Krónan leggja sitt af mörkum til að lækka verðbólgu, auka stöðugleika og draga úr kostnaðarhækkunum á heimilin. „Þótt matvara sé ekki helsti drifkraftur verðbólgunnar um þessar mundir teljum við mikilvægt að allir leggi sitt af mörkum til að skapa aukinn stöðugleika og styðja við lækkun verðbólgu og vaxta. Við viljum sýna það í verki og höfum því ákveðið að frysta verð á um 650 vörum sem skipta heimilin raunverulegu máli,“ segir Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, í tilkynningunni. Fjölbreyttar vörur Vörurnar spanna fjölbreyttar og algengar vörur fyrir daglegt líf heimilanna eða allt frá kjúklingabringum, hakki, beikoni, brauði og kartöflum yfir í pasta, haframjöl og kaffi. Frystingin nær einnig til nauðsynjavara á borð við eldhúsrúllur, salernispappír, uppþvotta- og þvottaefni, hreinlætisvörur og gæludýrafóður. Margar þessara vara eru meðal ódýrustu valkostanna í sínum vöruflokki og verða vörurnar merktar með „Fryst verð“ á rafrænum hillumiðum inni í verslun. Krónan greip til sambærilegrar aðgerðar árið 2022 þegar verð var fryst á 240 vörum undir vörumerkjum Krónunnar og First Price. Nú nær frystingin til um 650 vöruliða undir merkjunum Krónan, Krónan Lífrænt, Krónan Ódýrt, First Price, Grön Balance og Gestus. „Við viljum gefa viðskiptavinum vissu um að verð þessara vara hækki ekki út árið. Ef kostnaður okkar hækkar á tímabilinu tökum við þá hækkun á okkur, og ef forsendur skapast til verðlækkana munum við skila þeim áfram til viðskiptavina,“ segir Guðrún. Ásta S. Fjeldsted og Magnús Kr. Ingason, forstjóri og framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Festi, sem eiga Krónuna, fjalla um málið í aðsendri grein á Vísi í dag. Þar segja þau að íslensk heimili hafi búið við verðbólgu og háa vexti um langt skeið og að við endurskoðun kjarasamninga sé brýnt að fyrirtæki, stjórnvöld og aðrir sem hafa áhrif á verðlag leggi sitt af mörkum, eins og kostur er, til aukins verðstöðugleika.
Neytendur Verðlag Kjaramál Kjaraviðræður 2023-25 Fjármál heimilisins Matvöruverslun Mest lesið Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Viðskipti innlent Meira um atvinnuleysi: „Tækifærin eru líka mörg á landsbyggðinni“ Atvinnulíf Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Viðskipti innlent Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Viðskipti innlent Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Viðskipti innlent Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Viðskipti innlent Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Viðskipti innlent Krónan frystir verð til áramóta Neytendur Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Viðskipti innlent Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hægst á verðhækkun á matvöru Krónan frystir verð til áramóta Segja aldrei jafn marga hafa stoppað stutt í „ræningjarennunni“ Skora á Isavia að stækka „ræningjarennuna“ Fær ekki endurgreitt eftir misheppnaða norðurljósaferð Taki stöðuna alvarlega og hækki ekki verð umfram verðbólgumarkmið Tímamót hjá Heklu: Kveðja Laugaveginn eftir rúma sex áratugi Miði keyptur í Fjarðakaupum skilaði 129 milljónum króna Fengu ekki bætur þrátt fyrir óhreint herbergi Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Innkalla svefntæki fyrir ungbörn vegna brunahættu Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Jólin gengin í garð í verslunum Bónus Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Sveru dósirnar snúa aftur Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Bensínlítrinn hefur hækkað á ný „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Vara við skordýrum í chia-fræjum Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Ástandið minni á 2007 Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Kalla inn pylsur vegna prentvillu Sjá meira