Viðskipti innlent

At­vinnu­leysi jókst á ný í ágúst

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra var 6,8 prósent.
Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra var 6,8 prósent. Getty

Atvinnuleysi jókst í ágúst og mældist 6,8 prósent eftir árstíðarleiðréttingu. Hlutfall starfandi var 73,7 prósent.

Fjöldi atvinnulausra á aldrinum 16 til 74 ára í ágúst var 15.900 samkvæmt árstíðarleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. Án leiðréttingarinnar væru atvinnulausir 14.100 og atvinnuleysi sex prósent.

Atvinnuleysið jókst um 0,2 prósentustig á milli mánaða en það mældist 6,3 prósent í júlí. 

Í sama mánuði árið 2025 mældist atvinnuleysið 5,8 prósent og hefur því aukist um eitt prósentustig milli mánaða.


Tengdar fréttir

Atvinnuleysi jókst í júlí

Atvinnuleysi var 6,3 prósent í júlí samkvæmt árstíðarleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar og jókst því um 1,2 prósentustig milli mánaða. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×