Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Kjartan Kjartansson skrifar 23. september 2026 08:34 Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Vísir/Vilhelm Skýr merki eru um kólnandi vinnumarkað og hægari efnahagsumsvif samhliða háum vöxtum, að mati fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans. Alþjóðlegur óróleiki, viðvarandi verðbólga og háir vextir hér á landi samhliða minnkandi efnahagsumsvifum segir hún geta reynt á viðnámsþrótt fjármálakerfisins.
Yfirlýsing fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans var birt nú í morgun. Hún segir fjármálakerfið hér á landi traust og vel í stakk búið til að mæta ófyrirséðum áföllum. Fjárhagsstaða kerfislega mikilvægra banka sé sterk og aðgengi þeirra að markaðsfjármögnun greitt. Alþjóðlegar verðbólguhorfur hafi versnað og seðlabankar helstu iðnríkja hækkað vexti. Áhyggjur af sjálfbærni opinberra fjármála hafi aukist, langtímavextir ríkisskuldabréfa hækkað skarpt og skapað umrót á fjármálamörkuðum. Hér á landi hafa óverðtryggðir vextir lengri ríkisskuldabréfa ekki hækkað að sama marki og gengi krónunnar haldist tiltölulega stöðugt, m.a. vegna mikils þjóðhagslegs sparnaðar og hóflegrar skuldsetningar þjóðarbúsins. „Alþjóðlegur óróleiki, viðvarandi verðbólga og háir vextir hér á landi samhliða minnkandi efnahagsumsvifum geta reynt á viðnámsþrótt fjármálakerfisins,“ segir í yfirlýsingunni. Nefndin gerir grein fyrir yfirlýsingunni klukkan 9:30. Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu frá viðburðinum í spilaranum hér fyrir neðan. Halda sveiflujöfnunarauka óbreyttum Aukinn kaupmáttur og lítið atvinnuleysi er sagt hafa stutt við efnahag heimila síðustu ár. Lánþegaskilyrði hafi styrkt viðnámsþrótt heimila, skuldahlutföll þeirra séu almennt lág og vanskil lítil. Skýr merki séu þó um kólnandi vinnumarkað og hægari efnahagsumsvif samhliða háum vöxtum. Húsnæðisverð hafi lækkað að raunvirði, íbúðum á sölu fjölgað og sölutími lengst, sérstaklega á nýjum íbúðum. „Þessi þróun getur reynt á fyrirtæki í byggingariðnaði og aukið vanskil í greininni,“ segir nefndin. Nefndin telur framþróun gervigreindar geta aukið hraða, umfang og flækjustig netárása. Brýnt sé að aðilar á fjármálamarkaði efli varnir í takt við þróun netógna. Mikilvægt sé að styrkja áfram viðnámsþrótt og samhæfa viðbúnað innan fjármálakerfisins við alvarlegum rekstraratvikum. Nú þegar sé komin til framkvæmdar notkun greiðslukorta í netleysi sem sé þýðingarmikill þáttur í viðnámsþrótti greiðslumiðlunar. Fjármálastöðugleikanefnd hefur ákveðið að halda gildi sveiflujöfnunaraukans óbreyttu í 2,5% í samræmi við stefnu nefndarinnar um beitingu aukans. Nefndin mun sem fyrr beita þeim stýritækjum sem hún hefur yfir að ráða til að varðveita fjármálastöðugleika þannig að fjármálakerfið geti staðist áföll, miðlað lánsfé og greiðslum og dreift áhættu með viðhlítandi hætti.
Seðlabankinn Efnahagsmál Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Allir Bónus vanilludropar innkallaðir Neytendur Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira