Vaknaði við skilaboð frá nýja þjálfaranum Valur Páll Eiríksson skrifar 22. september 2026 18:00 Stefán Teitur Þórðarson Vísir/Einar Breytingar eru hjá Hannover 96, félagi Stefáns Teits Þórðarsonar, sem skipti um þjálfara í gær. Stefán, sem er fyrirliði liðsins, var á ferðalagi til Íslands og mun því ekki hitta þjálfarann fyrr en um miðjan næsta mánuð.
Gengi Hannover í byrjun tímabils hefur ekki verið frábær. Liðið er um miðja deild og fyrir rúmri viku síðan ákvað stjórn liðsins að reka þjálfarann Christian Titz. Sá hafði gert Stefán Teit að fyrirliða liðsins í sumar og áttu þeir gott samband. Klippa: Stefán Teitur ræðir nýjan þjálfara, nýja stöðu, fyrirliðabandið og fleira Það var því ákveðið áfall fyrir Stefán þegar tíðindin bárust. „Jú, það er alltaf auðvitað smá sjokkerandi þegar maður fær fréttirnar um það og líka sem fyrirliði þá finnst manni maður alltaf vera með smá extra ábyrgð þegar svona hlutir gerast,“ segir Stefán Teitur og bætir við: „Ég átti rosalega gott samband við fyrrverandi þjálfarann og ég bara hef góða hluti að segja um hann. Ég vona náttúrulega bara að það verði sama samband milli mín og nýja þjálfarans.“ Þýskur landsliðsmaður tekinn við Bráðabirgðaþjálfari stýrði Hannover um helgina og svo var nýr maður ráðinn í gær, þegar Stefán Teitur var farinn af stað til Íslands. Þessi nýi þjálfari, hann kom bara í gær eða hvað? „Já, fyrsti dagurinn hans var í gær þannig að ég hef ekki hitt hann formlega en ég vaknaði við skilaboð frá honum í morgun í símanum þannig að við töluðum svolítið saman bara á WhatsApp,“ „Við munum vera í sambandi í síma núna á meðan þessu hérna gengur. En hann veit náttúrulega, og sagði það sjálfur að maður hefur fullan fókus á landsliðið, þegar maður er í landsliðinu. Hann er sjálfur fyrrverandi þýskur landsliðsmaður þannig að við munum kynnast betur núna á næstu vikum,“ segir Stefán Teitur. Sandro Wagner afrekaði það að skora fimm mörk í aðeins átta landsleikjum. Hann er nýr þjálfari Hannover.vísir/getty Þessi nýi þjálfari og fyrrverandi landsliðsmaður Þýskalands heitir Sandro Wagner. Sá blómstraði seint á leikmannaferlinum og komst í landsliðið rúmlega þrítugur og fékk í kjölfarið samning hjá Bayern Munchen. Wagner fór út í þjálfun 34 ára gamall árið 2021 og gerði vel hjá Unteraching og varð í kjölfarið aðstoðarþjálfari þýska landsliðsins á EM 2024. Honum gekk öllu verr hjá Augsburg þar sem hann entist aðeins í tólf leiki í efstu deild síðasta haust. Stefáni líst vel á Wagner. „Bara rosalega vel. Ég er búinn að sjá hérna bara viðtölin við hann og fréttamannafundinn og svoleiðis og svo hafa menn bara heyrt sögur frá leikmönnum sem voru þarna í liðinu hjá manni í Þýskalandi og mér líst bara rosalega vel á hann,“ segir Stefán Teitur. Fleira kemur fram í viðtalinu við Stefán Teit sem má sjá í heild sinni í spilaranum.
Landslið karla í fótbolta Þýski boltinn Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Selfyssingar syrgja Sport Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Dauði varnarmannsins Fótbolti Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Fótbolti Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Fótbolti Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur Enski boltinn Yoro ekki til Íslands Fótbolti Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar Fótbolti Fleiri fréttir Elías lengi frá eftir aðgerð á nýra Yoro ekki til Íslands „Væri fínt ef þetta væru sex mánuðir“ Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Leikmenn Heimis funda á morgun fyrir leik gegn Ísrael Dauði varnarmannsins Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Eriksen yfirgefur Wolfsburg Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar „Skortur á einbeitingu og svo bara hrynur þetta“ Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Rjúkandi blys á vellinum þegar City skoraði en mótbárur Glódísar dugðu ekki Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Rómantískur Arnar mun alltaf tryggja Aroni met Hvað er Onana að gera? Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki „Sjáum veikleika í þeirra leik“ Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Higuain rekinn fyrir kynjamisrétti við dómara Heimir rýfur þögnina og þakkar fyrir stuðninginn Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Hvernig á að leysa varnarleikinn? Sjá meira