Íslenskir skattgreiðendur niðurgreiði losun erlendra ferðamanna Kjartan Kjartansson skrifar 22. september 2026 11:49 Jóhann Páll Jóhannsson, loftslagsráðherra, segir ekki hægt að draga úr losun frá vegasamgöngum ef bílaleigur kaupa ekki inn rafbíla í stað bensín- og dísilbíla. Vísir/Anton Brink Loftslagsráðherra segir bílaleigur landsins annað hvort geta verið í fararbroddi eða dragbítur á orkuskiptum í samgöngum. Ef þær haldi áfram að bjóða aðallega jarðefnaeldsneytisbíla sé það ákvörðun um að íslenskir skattgreiðendur niðurgreiði losun erlendra ferðamanna.
Losun frá vegasamgöngum jókst um 1,3 prósent á milli ára í fyrra samkvæmt bráðabirgðatölum sem Umhverfis- og orkustofnun kynnti í morgun. Vegasamgöngur eru stærsti staki flokkurinn í svonefndri samfélagslosun Íslands sem er á beinni ábyrgð íslenskra stjórnvalda að ná niður. Framreikningur stofnunarinnar bendir til þess að Ísland sé komið langt af stefnu á loftslagsskuldbindingar sínar til ársins 2030. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, sagði stöðuna ekki í lagi á blaðamannafundi þar sem hann kynnti tölurnar í morgun. Bílaleigubílaflotinn væri stærsta áskorunin í að draga úr losun frá vegasamgöngum. Bílaleigur keyptu hátt í helming allra bíla sem væru fluttir til landsins og innkaup þeirra réðu því mestu um hvernig samsetning bílaflotans væri í gegnum framboð á notuðum bílum. „Það er engin leið að ná losun frá vegasamgöngum hratt niður nema ferðamenn fari í stórauknum mæli að nota rafmagnsbíla,“ sagði ráðherrann. Búið að gefa nóg af peningum Fullyrti Jóhann Páll að bílaleigurnar hefðu fengið tæplega tíu milljarða króna í skattastyrki og beinan og óbeinan ríkisstuðning í nafni loftslagsmála í tíð síðustu ríkisstjórnar. Fyrir það fé hefði hlutfall rafbíla í bílaleigubílaflotanum skriðið úr sjö til átta prósentum upp í fjórtán. Ferðamenn sem kæmu til landsins ættu að geta notað ferðamáta sem gengi fyrir hreinni íslenskri orku sem landið væri frægt fyrir. „Ef ekki, ef við ætlum að líta á það bara sem sjálfsagt mál að mikill meirihluti ferðamanna keyri um á bensín- og dísilbílum, og að það sé þá allt morandi í jarðefnaeldsneytisbílum á eftirmarkaði á næstu árum, þá jafngildir það bara ákvörðun um það að skattgreiðendur á Íslandi niðurgreiði losun ferðamanna í stórum stíl með kaupum úr ríkissjóði á losunarheimildum eftir nokkur ár,“ sagði loftslagsráðherra. Bílaleigur hafa haldið því fram að engin eftirspurn sé hjá erlendum ferðamönnum eftir rafknúnum bílum.Vísir/Vilhelm Vísaði hann til þess að fyrirsjáanlega þarf Ísland að kaupa losunarheimildir fyrir milljarða króna ef það stenst ekki skuldbindingar sínar gagnvart Evrópusambandinu sem gengist var undir fyrir löngu. „Það má kannski segja að nú séu bílaleigufyrirtækin á Íslandi og ferðaþjónustugeirinn í þeirri stöðu að geta annað hvort verið í fararbroddi í orkuskiptum eða verið dragbítur á orkuskiptum,“ sagði ráðherrann. Sagðist hann hafa fulla trú á að bílaleigurnar og ferðaþjónustan vildu vera í lykilhlutverk í orkuskiptasögu Íslands. Ríkisstjórnin vildi aðstoða við það en að hún þyrfti að fara vel með fjármuni. „Það er búið að gefa alveg nógu mikið af peningum. Við verðum að fara vel með peninga. Ómarkvissar peningagjafir í nafni loftslagsmála grafa undan loftslagsaðgerðum, grafa undan trúverðugleika þeirra,“ sagði ráðherrann sem boðaði tillögur frá starfshópi nokkurra ráðuneyta um skynsamlegri lausnir.
Bílaleigur Vistvænir bílar Bílar Ferðaþjónusta Loftslagsmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Rekstur hins opinbera Jarðefnaeldsneyti Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira