Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum fellt úr gildi Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 17. september 2026 12:55 Samherji hyggst leita leiða til að fá leyfið að nýju. Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum í Reykjadal hefur verið fellt úr gildi af úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála vegna annmarka. Tuttugu manns starfa í fiskþurrkuninni að Laugum en samkvæmt upplýsingum frá Samherja kemur ekki til uppsagna að svo stöddu vegna þessa. Þá lýsir Þingeyjarsveit yfir miklum áhyggjum vegna málsins. Í yfirlýsingu frá Samherja kemur fram að úrskurðurinn byggi á því að við útgáfu starfsleyfisins hafi heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra ekki byggt á fullnægjandi gögnum við mat á ástandi fimm vatnshlota í nágrenni við starfsemina. Úrskurðurinn snúi ekki að vankönum á starfseminni sem slíkri eða brotum gegn útgefnu starfsleyfi heldur um mismunandi túlkun á kröfum til upplýsinga í gagnagrunnum ríkisins, milli opinberra stofnana, úrskurðurinn hafi ekkert að gera með starfsemina né um hvort starfsemin hafi áhrif á umhverfi sitt. „Við erum að kanna hvaða leiðir við höfum til þess að halda starfseminni gangandi og höfum verið í sambandi við þar til bær yfirvöld, ráðuneytið og stofnanir þess, enda hefur þetta ekkert að gera með starfsemina heldur er um handvömm innan stjórnsýslunnar að ræða,“ segir Gestur Geirsson framkvæmdastjóri landvinnslu hjá Samherja í samtali við Vísi. Hann segir ekki standa til að segja upp fólki vegna málsins. Starfsfólki verði boðin vinna á Akureyri sem vilji, vonir standi til að ekki taki langan tíma að fá leyfið að nýju. Í tilkynningu segir fyrirtækið úrskurðinn mjög íþyngjandi. Yfirlýsing Samherja: Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi ákvörðun heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra um útgáfu starfsleyfis vegna fiskþurrkunar Samherja að Laugum í Reykjadal. Úrskurðurinn byggir á því að við útgáfu starfsleyfisins hafi heilbrigðisnefndin ekki byggt á fullnægjandi gögnum við mat á ástandi fimm vatnshlota í nágrenni við starfsemina. Rekstur fiskþurrkunar að Laugum hefur að öllu leyti verið í samræmi við útgefið starfsleyfi og þær kröfur sem til starfseminnar eru gerðar, enda eru engar athugasemdir gerðar við framkvæmdina í úrskurðinum. Áhrifamat vegna umsóknar Samherja um starfsleyfið var á sínum tíma unnið af verkfræðistofu í samræmi við leiðbeiningar Umhverfis- og orkustofnunar og var matið samþykkt af heilbrigðisnefnd. Úrskurðurinn sem nú liggur fyrir snýr því ekki að vanköntum á starfseminni sem slíkri eða brotum gegn útgefnu starfsleyfi, heldur um mismunandi túlkun á kröfum til upplýsinga í gagnagrunnum ríkisins, milli opinberra stofnana. Úrskurðurinn hefur ekkert með starfsemina að gera eða hvort starfsemin hafi áhrif á umhverfi sitt. Mjög íþyngjandi úrskurður Sú ákvörðun úrskurðarnefndar að fella starfsleyfið úr gildi fyrirvaralaust er mjög íþyngjandi fyrir fyrirtækið og starfsfólk þess. Um 20 manns starfa í fiskþurrkuninni að Laugum og er um að ræða stærsta vinnustaðinn á svæðinu fyrir utan sveitarfélagið sjálft. Í úrskurðinum var ekki tekið tillit til þeirrar umhverfisvöktunar sem starfsleyfið setur skilyrði um. Samkvæmt vöktunaráætluninni var gerð mæling á Reykjadalsá nú í ágúst, en áin tilheyrir því vatnshloti sem næst stendur verksmiðjunni. Þær mælingar sýna að ástandið á ánni er mjög gott og ekki vart mengunar frá verksmiðjunni. Teljast verður nær ómögulegt að áhrifin af völdum verksmiðjunnar séu meiri þegar neðar dregur í vatnakerfinu. Í úrskurðinum segir “…verður að telja að heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra hafi ekki uppfyllt þá skyldu sem á því hvíldi skv. 3. mgr. 28. gr. og 12. gr. laga nr. 36/2011 um að gæta að stefnumörkun um vatnsvernd í gildandi vatnaáætlun og sjá til þess að ástand þeirra vatnshlota sem verða fyrir áhrifum af völdum starfsemi leyfishafa myndi ekki versna. Breytir engu í þeim efnum þótt niðurstaða fyrirliggjandi áhrifamats hafi verið sú að starfsemin leiði ekki til þess að umhverfismarkmið vatnshlotanna náist ekki…” Öll skilyrði starfsleyfis hafa verið uppfyllt Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra samþykkti þann 3. júní sl. að gefa út nýtt starfsleyfi fyrir heitloftsþurrkun fiskafurða að Laugum. Starfsleyfið var veitt með ströngum skilyrðum um mengunarvarnir og reglubundna vöktun, á grundvelli þess að ráðist hafði verið í miklar og kostnaðarsamar endurbætur af hálfu Samherja árið 2025 til þess að uppfylla auknar kröfur. Framkvæmdir fólu meðal annars í sér uppsetningu DAF hreinsibúnaðar fyrir frárennsli og ozon-hreinsun á útloftun sem hvoru tveggja eru þekktar aðferðir við hreinsun, ásamt aðgerðum til að draga úr hljóði frá starfseminni. Niðurstöður mælinga sýna að aðgerðirnar skiluðu tilætluðum árangri og hafa öll gildi verið innan marka starfsleyfisins. Unnið er að nánari viðbrögðum við úrskurðinum sem munu miða að því að starfsemin geti haldið áfram. Hafi um áratugaskeið verið miikivægur þáttur í atvinnuuppbyggingu Þá lýsir sveitarstjórn Þingeyjarsveitar yfir miklum áhyggjum vegna málsins í yfirlýsingu. Hún segir fiskþurrkunina á Laugum um áratugaskeið verið mikilvægur þáttur í atvinnulífi sveitarfélagsins. „Þar er um að ræða elsta starfandi fiskþurrkunarfyrirtæki landsins þar sem starfa um 20 manns. Áhrif starfseminnar á samfélagið nær langt út fyrir sjálfan vinnustaðinn, þarna er um að ræða lífsviðurværi fjölskyldna í sveitarfélaginu og fyrirtæki sem er m.a. stærsti kaupandi að heitu vatni hjá Hitaveitu Reykdæla. Úrskurðurinn, sem meðan annars snýr að áhrifum starfseminnar í viðkvæmu umhverfi varðandi vatnsvernd, hefur eðli máls samkvæmt mikil áhrif á starfsemina og skapar óvissu um framtíð hennar. Á þessari stundu er áherslan á úrlausn málsins.“ Vinnumarkaður Þingeyjarsveit Mest lesið Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Neytendur Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent Kaldvík fær enn frekari frest Viðskipti innlent 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Framúrskarandi fyrirtæki Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Sjá meira
Í yfirlýsingu frá Samherja kemur fram að úrskurðurinn byggi á því að við útgáfu starfsleyfisins hafi heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra ekki byggt á fullnægjandi gögnum við mat á ástandi fimm vatnshlota í nágrenni við starfsemina. Úrskurðurinn snúi ekki að vankönum á starfseminni sem slíkri eða brotum gegn útgefnu starfsleyfi heldur um mismunandi túlkun á kröfum til upplýsinga í gagnagrunnum ríkisins, milli opinberra stofnana, úrskurðurinn hafi ekkert að gera með starfsemina né um hvort starfsemin hafi áhrif á umhverfi sitt. „Við erum að kanna hvaða leiðir við höfum til þess að halda starfseminni gangandi og höfum verið í sambandi við þar til bær yfirvöld, ráðuneytið og stofnanir þess, enda hefur þetta ekkert að gera með starfsemina heldur er um handvömm innan stjórnsýslunnar að ræða,“ segir Gestur Geirsson framkvæmdastjóri landvinnslu hjá Samherja í samtali við Vísi. Hann segir ekki standa til að segja upp fólki vegna málsins. Starfsfólki verði boðin vinna á Akureyri sem vilji, vonir standi til að ekki taki langan tíma að fá leyfið að nýju. Í tilkynningu segir fyrirtækið úrskurðinn mjög íþyngjandi. Yfirlýsing Samherja: Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi ákvörðun heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra um útgáfu starfsleyfis vegna fiskþurrkunar Samherja að Laugum í Reykjadal. Úrskurðurinn byggir á því að við útgáfu starfsleyfisins hafi heilbrigðisnefndin ekki byggt á fullnægjandi gögnum við mat á ástandi fimm vatnshlota í nágrenni við starfsemina. Rekstur fiskþurrkunar að Laugum hefur að öllu leyti verið í samræmi við útgefið starfsleyfi og þær kröfur sem til starfseminnar eru gerðar, enda eru engar athugasemdir gerðar við framkvæmdina í úrskurðinum. Áhrifamat vegna umsóknar Samherja um starfsleyfið var á sínum tíma unnið af verkfræðistofu í samræmi við leiðbeiningar Umhverfis- og orkustofnunar og var matið samþykkt af heilbrigðisnefnd. Úrskurðurinn sem nú liggur fyrir snýr því ekki að vanköntum á starfseminni sem slíkri eða brotum gegn útgefnu starfsleyfi, heldur um mismunandi túlkun á kröfum til upplýsinga í gagnagrunnum ríkisins, milli opinberra stofnana. Úrskurðurinn hefur ekkert með starfsemina að gera eða hvort starfsemin hafi áhrif á umhverfi sitt. Mjög íþyngjandi úrskurður Sú ákvörðun úrskurðarnefndar að fella starfsleyfið úr gildi fyrirvaralaust er mjög íþyngjandi fyrir fyrirtækið og starfsfólk þess. Um 20 manns starfa í fiskþurrkuninni að Laugum og er um að ræða stærsta vinnustaðinn á svæðinu fyrir utan sveitarfélagið sjálft. Í úrskurðinum var ekki tekið tillit til þeirrar umhverfisvöktunar sem starfsleyfið setur skilyrði um. Samkvæmt vöktunaráætluninni var gerð mæling á Reykjadalsá nú í ágúst, en áin tilheyrir því vatnshloti sem næst stendur verksmiðjunni. Þær mælingar sýna að ástandið á ánni er mjög gott og ekki vart mengunar frá verksmiðjunni. Teljast verður nær ómögulegt að áhrifin af völdum verksmiðjunnar séu meiri þegar neðar dregur í vatnakerfinu. Í úrskurðinum segir “…verður að telja að heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra hafi ekki uppfyllt þá skyldu sem á því hvíldi skv. 3. mgr. 28. gr. og 12. gr. laga nr. 36/2011 um að gæta að stefnumörkun um vatnsvernd í gildandi vatnaáætlun og sjá til þess að ástand þeirra vatnshlota sem verða fyrir áhrifum af völdum starfsemi leyfishafa myndi ekki versna. Breytir engu í þeim efnum þótt niðurstaða fyrirliggjandi áhrifamats hafi verið sú að starfsemin leiði ekki til þess að umhverfismarkmið vatnshlotanna náist ekki…” Öll skilyrði starfsleyfis hafa verið uppfyllt Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra samþykkti þann 3. júní sl. að gefa út nýtt starfsleyfi fyrir heitloftsþurrkun fiskafurða að Laugum. Starfsleyfið var veitt með ströngum skilyrðum um mengunarvarnir og reglubundna vöktun, á grundvelli þess að ráðist hafði verið í miklar og kostnaðarsamar endurbætur af hálfu Samherja árið 2025 til þess að uppfylla auknar kröfur. Framkvæmdir fólu meðal annars í sér uppsetningu DAF hreinsibúnaðar fyrir frárennsli og ozon-hreinsun á útloftun sem hvoru tveggja eru þekktar aðferðir við hreinsun, ásamt aðgerðum til að draga úr hljóði frá starfseminni. Niðurstöður mælinga sýna að aðgerðirnar skiluðu tilætluðum árangri og hafa öll gildi verið innan marka starfsleyfisins. Unnið er að nánari viðbrögðum við úrskurðinum sem munu miða að því að starfsemin geti haldið áfram. Hafi um áratugaskeið verið miikivægur þáttur í atvinnuuppbyggingu Þá lýsir sveitarstjórn Þingeyjarsveitar yfir miklum áhyggjum vegna málsins í yfirlýsingu. Hún segir fiskþurrkunina á Laugum um áratugaskeið verið mikilvægur þáttur í atvinnulífi sveitarfélagsins. „Þar er um að ræða elsta starfandi fiskþurrkunarfyrirtæki landsins þar sem starfa um 20 manns. Áhrif starfseminnar á samfélagið nær langt út fyrir sjálfan vinnustaðinn, þarna er um að ræða lífsviðurværi fjölskyldna í sveitarfélaginu og fyrirtæki sem er m.a. stærsti kaupandi að heitu vatni hjá Hitaveitu Reykdæla. Úrskurðurinn, sem meðan annars snýr að áhrifum starfseminnar í viðkvæmu umhverfi varðandi vatnsvernd, hefur eðli máls samkvæmt mikil áhrif á starfsemina og skapar óvissu um framtíð hennar. Á þessari stundu er áherslan á úrlausn málsins.“
Yfirlýsing Samherja: Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi ákvörðun heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra um útgáfu starfsleyfis vegna fiskþurrkunar Samherja að Laugum í Reykjadal. Úrskurðurinn byggir á því að við útgáfu starfsleyfisins hafi heilbrigðisnefndin ekki byggt á fullnægjandi gögnum við mat á ástandi fimm vatnshlota í nágrenni við starfsemina. Rekstur fiskþurrkunar að Laugum hefur að öllu leyti verið í samræmi við útgefið starfsleyfi og þær kröfur sem til starfseminnar eru gerðar, enda eru engar athugasemdir gerðar við framkvæmdina í úrskurðinum. Áhrifamat vegna umsóknar Samherja um starfsleyfið var á sínum tíma unnið af verkfræðistofu í samræmi við leiðbeiningar Umhverfis- og orkustofnunar og var matið samþykkt af heilbrigðisnefnd. Úrskurðurinn sem nú liggur fyrir snýr því ekki að vanköntum á starfseminni sem slíkri eða brotum gegn útgefnu starfsleyfi, heldur um mismunandi túlkun á kröfum til upplýsinga í gagnagrunnum ríkisins, milli opinberra stofnana. Úrskurðurinn hefur ekkert með starfsemina að gera eða hvort starfsemin hafi áhrif á umhverfi sitt. Mjög íþyngjandi úrskurður Sú ákvörðun úrskurðarnefndar að fella starfsleyfið úr gildi fyrirvaralaust er mjög íþyngjandi fyrir fyrirtækið og starfsfólk þess. Um 20 manns starfa í fiskþurrkuninni að Laugum og er um að ræða stærsta vinnustaðinn á svæðinu fyrir utan sveitarfélagið sjálft. Í úrskurðinum var ekki tekið tillit til þeirrar umhverfisvöktunar sem starfsleyfið setur skilyrði um. Samkvæmt vöktunaráætluninni var gerð mæling á Reykjadalsá nú í ágúst, en áin tilheyrir því vatnshloti sem næst stendur verksmiðjunni. Þær mælingar sýna að ástandið á ánni er mjög gott og ekki vart mengunar frá verksmiðjunni. Teljast verður nær ómögulegt að áhrifin af völdum verksmiðjunnar séu meiri þegar neðar dregur í vatnakerfinu. Í úrskurðinum segir “…verður að telja að heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra hafi ekki uppfyllt þá skyldu sem á því hvíldi skv. 3. mgr. 28. gr. og 12. gr. laga nr. 36/2011 um að gæta að stefnumörkun um vatnsvernd í gildandi vatnaáætlun og sjá til þess að ástand þeirra vatnshlota sem verða fyrir áhrifum af völdum starfsemi leyfishafa myndi ekki versna. Breytir engu í þeim efnum þótt niðurstaða fyrirliggjandi áhrifamats hafi verið sú að starfsemin leiði ekki til þess að umhverfismarkmið vatnshlotanna náist ekki…” Öll skilyrði starfsleyfis hafa verið uppfyllt Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra samþykkti þann 3. júní sl. að gefa út nýtt starfsleyfi fyrir heitloftsþurrkun fiskafurða að Laugum. Starfsleyfið var veitt með ströngum skilyrðum um mengunarvarnir og reglubundna vöktun, á grundvelli þess að ráðist hafði verið í miklar og kostnaðarsamar endurbætur af hálfu Samherja árið 2025 til þess að uppfylla auknar kröfur. Framkvæmdir fólu meðal annars í sér uppsetningu DAF hreinsibúnaðar fyrir frárennsli og ozon-hreinsun á útloftun sem hvoru tveggja eru þekktar aðferðir við hreinsun, ásamt aðgerðum til að draga úr hljóði frá starfseminni. Niðurstöður mælinga sýna að aðgerðirnar skiluðu tilætluðum árangri og hafa öll gildi verið innan marka starfsleyfisins. Unnið er að nánari viðbrögðum við úrskurðinum sem munu miða að því að starfsemin geti haldið áfram.
Vinnumarkaður Þingeyjarsveit Mest lesið Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Neytendur Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent Kaldvík fær enn frekari frest Viðskipti innlent 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Framúrskarandi fyrirtæki Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Sjá meira