Viðskipti innlent

Rjúfa þurfi víta­hringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani

Árni Sæberg skrifar
Bjarni Benediktsson er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Bjarni Benediktsson er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Vísir/Lýður Valberg

Framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins vill að umbætur á umgjörð vinnumarkaðarins verði settar í forgang án tafar. Skammtímalausnir á vinnumarkaði geti skilað tímabundnum árangri en viðvarandi verðbólguvandi verði ekki leystur með þeim einum. Rjúfa þurfi vítahringinn.

Í yfirlýsingu framkvæmdastjórnar Samtaka atvinnulífsins um stöðuna á vinnumarkaði í september 2026 segir að SA vilji leggja sitt af mörkum í baráttunni við verðbólgu með því að fyrirtæki haldi aftur af verðhækkunum eins og frekast er unnt. Á móti þurfi ríki og sveitarfélög að ganga fram með góðu fordæmi og stilla hækkunum gjaldskráa í samræmi við verðbólgumarkmið Seðlabankans.

„Þörf er á samstilltu átaki. Samtök atvinnulífsins vilja án tafar setja í forgang umbætur á umgjörð vinnumarkaðarins í samstarfi við launþegahreyfinguna og stjórnvöld. Sá forsendubrestur sem nú er orðinn þarfnast mun víðtækari aðgerða en skammtíma leiðréttingar á stöðu sem að öðru leyti er ósjálfbær. Markmiðið þarf að vera vinnumarkaðslíkan sem styður við stöðugt verðlag og lægri vexti, sjálfbæran kaupmáttarvöxt og samkeppnishæft atvinnulíf. Varanlegur árangur krefst varanlegra umbóta.“

Í kjölfar kjarasamninga á almennum markaði árið 2024 hafi verið samið um hækkanir til opinberra starfsmanna umfram þær sem stöðugleikasamningurinn geymdi. Það sem af er samningstíma gildandi kjarasamninga hafi laun hækkað meira en um var samið og langt umfram framleiðnivöxt. Slík þróun leiði óhjákvæmilega til verðbólguþrýstings og óstöðugleika. Verði þessi vítahringur ekki rofinn sé óraunhæft að hafa væntingar um hóflegri verðbólguvæntingar.

„Skammtímalausnir geta skilað tímabundnum árangri, en viðvarandi verðbólguvandi verður ekki leystur með þeim einum. Það verður að rjúfa vítahringinn.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×