Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar 14. september 2026 09:00 Hafrannsóknarstofnun gegnir stóru og mikilvægu hlutverki í velferðarsamfélagi okkar. Þar á heiður vísinda að vera í fyrirrúmi og allt starf að byggja á faglegum gæðum. Það er forsenda þess að stofnunin njóti virðingar og trausts. Þar á bæ verður að ríkja sjálfstæði óháð pólitísku dægurþrasi með þreki og þor til að verja sjálfbærni sem byggir á faglegum gildum. Þetta á við um sjó og vatn og lífríkið sem þar nærist sem á í vök að verjast gegn ásælni mannsins. Um langa tíð naut Hafrannsóknarstofnun trausts, þó oft stæði styrr um einstaka ráðgjöf eða ákvörðun hennar. Skýrt er kveðið á um í lögum um náttúruvernd að varðveita tegundir lífvera og verndarstöðu þeirra þannig að tegundirnar nái að viðhalda sér í lífvænlegum stofnum til lengri tíma. Nú er svo komið að villtur lax á Íslandi er í útrýmingarhættu m.a. vegna þess að opna sjókvíaeldið fer hamförum um lífríki sjávar og vatns. Þess vegna kemur í opna skjöldu hve Hafrannsóknarstofnun gengur langt í að dekra við opna netpokaeldið á norskum og frjóum laxi. Vernda laxinn og auka eldið? Hafrannsóknarstofnunin elur á þeirri pólitísku skoðun að hvort tveggja gangi upp að vernda villta laxastofna og stunda einnig öflugt opið netpokaeldi. Í því skálkaskjóli trúa margir alþingismenn að slíkt sé hið besta mál og boða það. Eigi að síður liggur sú þekking fyrir á Hafrannsóknarstofnun í ljósi reynslunnar að opna netpokaeldið á frjóum laxi mun í fyllingu tímans eyða villtum laxastofnum. Því verður seint trúað, að hið gamalgróna spakmæli “það lafir á meðan ég lifi” hafi tekið yfir fagleg stefnumið á Hafrannsóknarstofnun. Reynslan og vísindin staðfesta að hvergi í veröldinni hefur tekist að reka opið netpokaeldi með frjóum laxi án þess að stórskaða villta laxastofna og jafnvel nánast eyða þeim. Það hefur gerst á Írlandi. Staðan í Noregi er skelfileg, sama gildir um Skotland og Síle. Í Kanada eru stjórnvöld að sjá að sér og hafa nú ákveðið að banna opið netpokaeldi á laxi í sjó á stórum svæðum til að vernda leifarnar af villtum laxastofnum og þrátt fyrir að það muni kosta mikið í skaðabætur til eldisrisanna. Engar skýrslur koma frá Hafrannsóknarstofnun um reynsluna í nágrannalöndum og vítin þar að varast. Fulltrúi Hafrannsóknarstofnunar sagði þó á aðalfundi Landssambands Veiðifélaga s.l. vor, að áhugi stjórnmálamanna í nágrannalöndum um vernd villtra laxastofna væri að dvína, með öðrum orðum, þeir væru að sætta sig við að fórna villta laxinum fyrir opna sjókvíaeldið. Er það að gerast á Íslandi vegna framtaksleysis Hafrannsóknarstofnunar? Skálkaskjól mótvægisaðgerða Ísland er í raun síðasta vígi Atlantshafslaxins. Opið sjókvíaeldi hér á landi í stórum mæli hófst löngu seinna en í nágrannalöndunum. Eigi að síður er þrónunin hér nákvæmlega sú sama og þar. Eldislax sleppur með slysum og stöðugum leka seiða úr kvíum, erfðablöndun er þegar komin á fullt skrið, sjúkdómar, kaldur sjór, rysjótt veðurfar, marglytta og lús herja á eldið með eitruðum lyfjagjöfum fyrir lífríkið og mengunin flæðir um tæran sjó í fjörðum landsins. Þetta veit Hafrannsóknarstofnun en þegir. Þá eru rannsóknir stofnunarinnar í skötulíki. Erfðarannsóknir á seiðum í ám taka allt að þrjú ár þar til niðurstöður birtast. Núna er einblínt á “mótvægisaðgerðir” sem flestir vita að eru skálkaskjól og geta í mesta lagi seinkað ferli erfðablöndunar. Hafrannsóknarstofnun hefur aldrei hvatt til að nýta fremur ófrjóan lax í opna eldinu eða að sett verði skilyrði um lokaðar kvíar sem Norðmenn setja nú í forgang heima hjá sér. Þar hefur verið ákveðið að engin ný leyfi verði gefin út fyrir gömlu netpokana. Það er talin úrelt tækni í ljósi reynslunnar. Engar skýrslur um það koma frá Hafrannsóknarstofnun. Nú síðast boðar Hafrannsóknarstofnun að rekköfun í ám eftir stórar slysasleppingar geti öllu bjargað og þess vegna í fínu lagi að gefa enn frekar í með auknu eldismagni í opnum kvíum. Rekköfun er mörgum annmörkum háð og dugar skammt nema við bestu aðstæður. Þetta er álíka og að draga megi verulega úr brunavörnum eða umferðaeftirliti af því að slökkvi-og skjúkralið sé orðið svo öflugt. Skipta lögin máli? Svo brýtur Hafrannsóknarstofnun lög. Samkvæmt gildandi lögum skal stofnunin gefa út nýtt áhættumat um leyfilegt eldismagn af norskum laxi í opnum kvíum á þriggja ára fresti. Síðasta áhættumat var gefið út um mitt ár 2020 og var eldismagnið frá mati árið 2017 aukið umtalsvert eða upp í 106.500 tonn af norskum laxi. Þetta áhættmat hefur síðan gilt fram á þennan dag eða í rúm sex ár, þó að lög kveði skýrt á um að matið eigi að endurskoða á þriggja ára fresti. Ástæðan er einföld. Skakkaföllin í eldinu hafa verið umtalsverð sem verður skv lögum að taka tillit til við gerð nýs áhættumats og fyrir liggur að skerðir eldismagn í nýju áhættumati um helming eða niður í 50 þúsund tonn af norskum laxi. Það virðist Hafrannsóknarstofnun ekki þora að gera. Þess vegna er best fyrir norska sjókvíaeldið á Íslandi að gamla áhættumatið malli enn um sinn. Er þetta táknrænt þegar vísindunum er fórnað fyrir sértæka hagsmuni? Viðgengst svona geðþótti og virðingarleysi við lög í opinberri stjórnsýslu nokkurs staðar nema Íslandi? Hefur Hafrannsóknarstofnun afsalað sér heiðri vísinda í skiptum fyrir græðgi fjárins? Gunnlaugur Stefansson, fyrrv. sóknarprestur í Heydölum í Breiðdal og fyrrv. alþingismaður Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnlaugur Stefánsson Mest lesið „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Halldór 03.10.2026 Halldór Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar