Þakkaði mömmu sem sagði: „Þessi sjúkdómur mun ekki skilgreina okkur“ Sindri Sverrisson skrifar 14. september 2026 09:31 Alexander Zverev hefur nú unnið sín fyrstu tvö risamót, á skömmum tíma, og er afar þakklátur mömmu sinni. Samsett/Getty Þjóðverjanum Alexander Zverev virtist fyrirmunað að vinna risamót þar til í ár en nú hefur þessi 29 ára Þjóðverji unnið tvö risamót í tennis á skömmum tíma. Hann þakkaði móður sinni eftir sigurinn á Opna bandaríska mótinu í gær og segir hana mikilvægustu manneskju í lífi sínu.
Zverev vann heimamanninn Ben Shelton í úrslitaleik í New York í gærkvöld, í hörkuleik, og var svo einbeittur að hann áttaði sig ekki á því þegar sigurinn var í höfn. Zverev hefur nú unnið tvo risatitla og það þrátt fyrir að hafa glímt við sykursýki 1 alla ævi. Hann telur að staðan gæti verið allt önnur ef mamma hans, Irina Zverev sem sjálf var tennisspilari, hefði ekki verið svo staðráðin í að láta sjúkdóminn ekki ráða för. „Ég vil þakka einni manneskju í viðbót. Einhverri sem horfir eiginlega aldrei á leikina mína, en er mikilvægasta manneskjan á tennisferli mínum og í lífi mínu almennt,“ sagði Zverev í sigurræðu sinni í gær og beindi orðunum að mömmu sinni: El discurso de Alexander Zverev que tenés que escuchar. ❤️🗣️ “Quiero agradecer a una persona más. Alguien que nunca ve realmente mis partidos, pero que es la persona más importante de mi vida tenística y de mi vida en general.Cuando tu hijo de 4 años es diagnosticado con…— Veronica Brunati (@verobrunati) September 14, 2026 „Þegar fjögurra ára sonur þinn greinist með sykursýki og læknarnir segja þér að líf hans og íþróttaiðkun verði mjög, mjög takmörkuð, þarf mjög sterka móður til að ganga út af þeirri skrifstofu og segja: „Sonur minn verður það sem hann vill verða. Ef hann vill verða tennisspilari, þá verður hann tennisspilari. Ef hann vill gera eitthvað annað, þá gerir hann eitthvað annað. En þessi sjúkdómur mun ekki skilgreina okkur.“ Móðir mín er mikilvægasta og sterkasta manneskjan sem ég þekki. Það þarf ótrúlega sterka konu til að gera það sem hún gerði,“ sagði Zverev. Ekki alltaf mætt skilningi Vegna glímu sinnar við sykursýki þarf Zverev að fá insúlínskot í leikjum, til að mynda tvisvar í gær þegar hann vann Shelton. Hann hefur hins vegar ekki alltaf mætt skilningi hvað þetta varðar og var bannað að taka insúlín í leik á Opna franska mótinu árið 2023, sem var meðal annars gagnrýnt af Alþjóða sykursýkissamtökunum. Einhverjir hafa reynt að draga úr afreki Zverev í gær með því að benda á fjarveru Carlos Alcaraz og meiðsli Jannik Sinner en Zverev lætur það ekki á sig fá. „Ég vil þakka liðinu mínu. Við vorum í 30 ár án þess að vinna risatitil og nú höfum við unnið tvo á þriggja mánaða tímabili. Ég held að Guð hafi séð hversu mikið við lögðum á okkur, hversu mikið við þjáðumst, hversu mikinn sársauka við gengum í gegnum. Ég held að árið 2026 sé afrakstur allra áranna á undan,“ sagði Zverev.
Tennis Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Sjá meira