Skuldadagar í Reykjavík Björg Magnúsdóttir skrifar 9. september 2026 08:45 Það dylst engum að núverandi meirihluti í Reykjavík tekur við erfiðu búi; fjárhagur borgarinnar hefur verið þaninn um langa hríð og ósjálfbær með tilheyrandi biðlistum um alla borg. Biðlistaborgin Eitt af stóru loforðunum frá því í kosningabaráttunni í vor var að snúa við hverri steinvölu í borgarkerfinu, minnka báknið og snúa hlutunum við þannig að hægt sé að veita Reykvíkingum þá þjónustu sem þeir eiga rétt á. Hvort sem um er að ræða leikskólapláss, tíma hjá talmeinafræðingi, aðgengi að skólahljómsveit, viðeigandi búsetu og áfram mætti lengi telja en á öllum þessum stöðum og reyndar mun fleirum, eru langir biðlistar. Ómögulegt að bæta þjónustu í milljarða halla Þegar borgarsjóður er rekinn í milljarða halla er ekkert svigrúm. Við þannig aðstæður er ómögulegt að bæta þjónustu við borgarbúa nema skella því á kreditkortið með dýrri lántöku og háum afborgunum inn í framtíðina. Raunveruleikatengd fjármál Pólitíska forgangsröðunin hjá núverandi meirihluta og stefnubreytingin sem nú birtist í borgarstjórn, er mjög skýr. Við viljum búa þannig um hnútana að hægt sé að vinna á löngum biðlistum um alla borg og veita góða þjónustu í takt við fjárhag sem er raunveruleikatengdur. Loforð gefin, loforð efnd Núverandi meirihluti hefur lofað því að fara vel með þær útsvarstekjur sem borgarbúar skila inn í borgarsjóð í hverjum einasta mánuði. Það loforð erum við að efna.Við lofuðum að taka til í kerfinu en standa vörð um framlínuþjónustu og gefa þar í þegar aðstæður leyfa. Þessu fylgja erfiðar ákvarðanir en það er sannarlega hvorki einfalt né skemmtilegt að gera breytingar sem verða þess valdandi að öflugt starfsfólk hverfur frá störfum. Höldum okkur við staðreyndir Stjórnkerfisbreytingar sem meirihlutinn hefur farið í hefur verið til umræðu í fjölmiðlum síðustu daga og vikur sem eðlilegt er en ýmsu hefur verið slengt fram í umræðunni. Umræðan með tilheyrandi rangfærslum þróaðist þannig að Skóla- og frístundasvið sendi út sérstakan tölvupóst til allra foreldra grunnskólabarna í borginni til að árétta að starfsemi frístundaheimila og félagsmiðstöðva er og verður óbreytt. Við borgarfulltrúar, hvort sem við erum í meiri- eða minnihluta, berum öll ábyrgð á því að tala um staðreyndir máls og ýta ekki undir upplýsingaóreiðu. Meiri gagnsæi og yfirsýn Í borgarstjórn í gær var samþykkt tillaga Viðreisnar frá síðsta kjörtímabili, sem meirihlutinn lagði sameiginlega fram. Tillagan snýr að því að innleiða fjárhagslegt velferðarlíkan fyrir Velferðarsvið eða eins konar mælaborð. Markmiðið er að auka gagnsæi, skýra forsendur fjárúthlutunar í takt við þarfirnar og hafa betri stjórn á því hvert peningarnir fara. Slík fjárhagslíkön, sem veita nauðsynlega yfirsýn, hafa reynst Reykjavíkurborg afar vel bæði í grunn- og leikskólum en þau voru innleidd að frumkvæði Viðreisnar á síðasta kjörtímabili. Velferðarlíkanið Freyja Velferðarþjónusta borgarinnar er einn mikilvægasti, umfangsmesti og fjölbreyttasti málaflokkurinn í grunnþjónustu sveitarfélaga; rekstur sviðsins hjá borginni nemur tæplega 50 milljörðum árlega og stendur undir um fimmtungi af heildarrekstri borgarinnar. Nýja velferðarlíkan verður kallað Freyja og mun vega þungt á metrunum þegar kemur að því stóra markmiði að fara betur með skattfé og vera með skýri og faglegri fjármálastjórn. Óstöðugur rekstur mesta ógnin Það er komið að skuldadögum í Reykjavík og verkefni kjörtímabilsins eru skýr. Þessi meirihluti ætlar að tryggja það að Reykvíkingar fái eins góða þjónustu og hægt er, sem rúmast innan fjárhagsramma sveitarfélagsins. Og höfum það í huga að ekkert ógnar grunnþjónustu meira en rekstur sem ekki stendur undir sér. Höfundur er oddviti Viðreisnar í borginni og forseti borgarstjórnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Björg Magnúsdóttir Borgarstjórn Reykjavík Rekstur hins opinbera Mest lesið Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar