Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Oddur Ævar Gunnarsson og Bjarki Sigurðsson skrifa 7. september 2026 14:03 Jóhannes Þór er vonsvikinn eftir tíðindi morgunsins. Vísir/Arnar Framkvæmdastjóri Samtaka í ferðaþjónustu segir fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár fela í sér reiðarslag fyrir ferðaþjónustu á Íslandi en stór hluti tekjuaukningar ríkisins kemur frá ferðaþjónustunni. Aukin skattheimta séu gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí,“ sem nemi helmingi heildarafkomu greinarinnar árið 2024.
Daði Már Kristófersson kynnti fjárlagafrumvarpið fyrir næsta ár í morgun. Þar eru meðal annars felldar niður ívilnanir á virðisaukaskattheimtu á baðlónum auk þess sem kynnt var til sögunnar ný gjaldtaka á ferðamannastöðum. Ráðherrann segir gjaldtökuna fela í sér að erlendir ferðamenn verði rukkaðir um sérstakan aðgöngumiða. Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri Samtaka í ferðaþjónustu er vonsvikinn en rætt var við hann í hádegisfréttum Bylgjunnar. „Það er ekkert hægt að lýsa þessu sem öðru en reiðarslagi fyrir atvinnugreinina í heild. Þarna erum við með 22,6 milljarða af nýjum það sem kallað er „tekjuöflunaraðgerðum,“ það er að segja bara skattahækkunum í heildina í frumvarpinu og þar af á um helmingurinn að koma frá ferðaþjónustu og ekki bara ferðamönnunum eins og þið segið heldur mun stór hluti af þessu koma einfaldlega innanúr fyrirtækjunum meðal annars vegna þess hve fyrirvarinn er lítill og það er búið að selja langt inn á næsta ár. Það er erfitt að lýsa þessu öðruvísi heldur en bara gríðarlegum vonbrigðum og efnahagslegu flanerí ef ég á að segja alveg eins og er.“ Ferðaþjónustan hafi boðið ríkisstjórninni upp á virkt og jákvætt samtal um uppbyggilegar leiðir til þess að skila hærri tekjum úr greininni í ríkiskassann. Þar séu ýmsar aðferðir til sem séu vel þekktar og í samræmi við atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar um verðmætasköpunaraukningu. „Og geta skilað átta til níu milljörðum sem þarna eru sett og meira til en þá verður að horfa til þess hvernig er hægt að stækka þessa köku, hvernig er hægt að sjá til þess að verðmætaaukning og samkeppnishæfni skili sér til almennings í landinu. Og það er hægt og það eru bara gríðarleg vonbrigði að sjá þetta sett fram á þennan hátt með þessari skammtímahugsun eins og gert er þarna í svona gríðarstórum tölum.“ Einhverjir hugsa kannski að fyrirtæki í ferðaþjónustu græði nægan pening, þau gætu kannski bara tekið þetta á sig? „Það er bara rangt, því miður. Ég bendi bara á að heildarafkoma greinarinnar eftir skatta árið 2024 eru um tuttugu milljarðar króna. Þarna á að sækja níu milljarða króna. Það jafngildir um það bil helmingnum af allri afkomu greinarinnar, þannig þessar tölur eru ekkert smáræði. Þetta er ekkert eitthvað sem maður grípur. Þetta er eins og ef við erum með heimilisbókhald þar sem við fáum útborgað 300 þúsund kall og ríkið ætlar að taka síðan 150 þúsund kall í viðbót þegar búið er að taka skatta. Það sér hver maður að þetta er ekki skynsamleg ráðstöfun inn í framtíðina.“ Aðrar leiðir séu færar. Meðal annars að að auka nýtingu utan háannatíma, á veturna um tíu prósent. „Þá skilar það þessum átta til níu milljónum í ríkissjóð í skatttekjur en það tekur tíma að byggja það upp og því miður virðist bara vera horft á skammgóðan vermi þegar kemur að því hvernig ríkisstjórnin nálgast ferðaþjónustuna og það eru gríðarleg vonbrigði.“
Ferðaþjónusta Fjárlagafrumvarp 2027 Skattar, tollar og gjöld Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Rafnar fylgir Herði og segir upp Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Sjá meira