50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Rakel Sveinsdóttir skrifar 6. september 2026 17:02 Við eigum ekkert að skammast okkar fyrir að finnast frábært þegar börnin okkar flytja að heiman. Ekki aðeins getur það styrkt hjónabandið heldur þýðir það líka að vissum verkefnakafla í okkar lífi er lokið. Vísir/Getty Við ætlum að segja það upphátt: Já, við ætlum að ræða nokkuð sem margir kannast við sem þó nokkurn létti. Svona í leyni.
Í raun erum við að tala um leynilega léttinn: Þar sem þó samviskan okkar sem foreldri spyr: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Í Áskorun höfum við rætt um tóma hreiðrið þegar börnin flytja að heiman. En hvað ef við erum að upplifa stöðuna akkúrat á hinn veginn: Við hlökkum svo til þegar þau flytja! Þurfum við að fá samviskubit? Erum við slæmir foreldrar ef okkur líður svona? Elskum við börnin minna en hinir foreldrarnir sem „syrgja“? Nei, staðreyndin er sú að það er fullkomlega eðlilegt, í lagi og algengt að vera svo ánægð með flutninginn. Skiptir þá engu hvort þetta er fyrsta eða síðasta barn að flytja að heiman: Okkur finnst bara kominn tími! Því í raun er þetta líka staðfesting á því að ákveðnu verkefni hjá þér sé formlega lokið. Svona þannig lagað séð. Að finna létti kemur því ekkert við að maður sakni þess ekki að barnið sé enn heima. Veitingahúsið og þvottafyrirtækið í pásu Það er staðreynd að þótt börnin okkar verði fullorðin fylgja þeim oft ákveðin verkefni heima fyrir sem halda áfram að vera á herðum foreldra. Að elda, sjá til þess að það sé alltaf matur til og þá helst miðað við það sem öllum líkar við, að þvotturinn safnist ekki um of í óhreina tauinu, að hrein handklæði séu örugglega alltaf til, heimilið sé þrifið reglulega og skúrað. Með hverju barni sem flytur út minnkar álagið skref fyrir skref. Stundum þurfa foreldrar nánast aðlögun eftir að barnið flytur út. Því litlir hlutir breytast. Til dæmis gæti allt í einu verið til mjólk í kaffið í meira mæli en venjulega. Því jú; einn er fluttur út! Hjónabandið styrkist! Þá hafa rannsóknir sem birst hafa í virtum tímaritum eins og Journal of Marriage and Family sýnt að ánægja í parsamböndum hækkar oft marktækt þegar börnin flytja að heiman. Sem er öfugt við það sem margir eflaust halda þegar þeir heyra um „tóma hreiðrið“. Í umfjöllun Psychology Today segir að ástæðan fyrir því að parsambönd styrkjast oft þegar börnin flytja að heiman sé sú að almennt álag á foreldrana minnkar, húsverkum fækkar og nýtt rými skapast fyrir meiri nánd og sameiginleg áhugamál.
50+ Tengdar fréttir 50+: Fólk upplifir sig yngra en áður – og þróunin heldur áfram Stundum rifjum við upp í gríni þegar foreldrar okkar voru rúmlega þrítugir eða fertugir og okkur fannst þau svo svaka fullorðin. Eða hversu amma og afi voru orðin gömul – jafnvel eldgömul – en þó bara á sjötugsaldri. 14. júní 2026 14:34 50+: Erfiða tengdamamman og sonurinn á milli Brandarar um tengdó virðast vera alþjóðlegt fyrirbæri. Sögurnar eru óteljandi. Oft spaugilegar. Sumar skelfilegar. Aðrar dramatískar eða tilfinningalega erfiðar. 3. júní 2026 07:00 Grái skilnaðurinn: Sífellt fleiri 50+ að skilja Skilnaðarfréttir í fjölmiðlum eru vinsælar. Óháð aldri. Ef frægt fólk skilur, jafnvel bara um stund, þykir það fréttnæmt og almenningur étur í sig fréttina. 29. apríl 2026 07:00 Sambúðarslit: Hægt að rukka fyrrverandi maka um skattaskuldir hins aðilans í mörg ár „Skatturinn hefur leyfi til að fara sex ár aftur í tímann vegna ógreiddra skatta- og gjalda sem þýðir að ef sambúðarfólk hefur verið samskattað getur skatturinn rukkað fyrrverandi um ógreidda skatta og gjöld hins aðilans, þótt liðin séu allt að sex ár frá því að sambúð var slitið,“ segir Pétur Steinn Guðmundsson, lögmaður hjá Deloitte Legal og sérfræðingur í skattamálum. 15. mars 2026 08:02 50+: Leitin að ástinni ekki bara fyrir unga fólkið Ástin getur blossað upp á öllum aldri. Þó er oftast talað um ástina, stefnumót, ný kynni eða rómantík með ung pör í huga eða harðgift fólk sem er að rækta sjálft sig og sitt samband. 9. mars 2026 07:02 Mest lesið Einn mánuður án áfengis breytti öllu Lífið Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Lífið Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Eitt allra krúttlegasta mót ársins Lífið 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Áskorun Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Fleiri fréttir 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Hvers vegna teljum við alla vera að dæma okkur (þegar enginn er að fylgjast með)? Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Sjá meira
50+: Fólk upplifir sig yngra en áður – og þróunin heldur áfram Stundum rifjum við upp í gríni þegar foreldrar okkar voru rúmlega þrítugir eða fertugir og okkur fannst þau svo svaka fullorðin. Eða hversu amma og afi voru orðin gömul – jafnvel eldgömul – en þó bara á sjötugsaldri. 14. júní 2026 14:34
50+: Erfiða tengdamamman og sonurinn á milli Brandarar um tengdó virðast vera alþjóðlegt fyrirbæri. Sögurnar eru óteljandi. Oft spaugilegar. Sumar skelfilegar. Aðrar dramatískar eða tilfinningalega erfiðar. 3. júní 2026 07:00
Grái skilnaðurinn: Sífellt fleiri 50+ að skilja Skilnaðarfréttir í fjölmiðlum eru vinsælar. Óháð aldri. Ef frægt fólk skilur, jafnvel bara um stund, þykir það fréttnæmt og almenningur étur í sig fréttina. 29. apríl 2026 07:00
Sambúðarslit: Hægt að rukka fyrrverandi maka um skattaskuldir hins aðilans í mörg ár „Skatturinn hefur leyfi til að fara sex ár aftur í tímann vegna ógreiddra skatta- og gjalda sem þýðir að ef sambúðarfólk hefur verið samskattað getur skatturinn rukkað fyrrverandi um ógreidda skatta og gjöld hins aðilans, þótt liðin séu allt að sex ár frá því að sambúð var slitið,“ segir Pétur Steinn Guðmundsson, lögmaður hjá Deloitte Legal og sérfræðingur í skattamálum. 15. mars 2026 08:02
50+: Leitin að ástinni ekki bara fyrir unga fólkið Ástin getur blossað upp á öllum aldri. Þó er oftast talað um ástina, stefnumót, ný kynni eða rómantík með ung pör í huga eða harðgift fólk sem er að rækta sjálft sig og sitt samband. 9. mars 2026 07:02