Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Eiður Þór Árnason skrifar 3. september 2026 23:05 Rut Magnúsdóttir og Gísli Kristinsson tóku við rekstri Ísbúðarinnar við Laugalæk fyrir tæpu ári síðan. Samsett Rut Magnúsdóttir vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar ókunnugur maður nálgaðist hana í Ísbúðinni Háaleiti í Reykjavík árið 2024. „Hann vatt sér bara upp að mér og bauð mér á deit í ísbúð og ég var að spá hvaða vitleysingur þetta væri. Mér fannst þetta samt svolítið spennandi, þannig að ég ákvað að segja já og svo keyptum við okkur bara ísbúð.“
Um tveimur árum eftir fyrsta stefnumótið og einu ári eftir að þau keyptu uppáhaldsísbúðina hennar við Laugalæk eiga Rut og Gísli Kristinsson von á sínu fyrsta barni. „Það er að koma ísbúðarbarn,“ segir Rut í samtali við fréttamann og hlær. Hún er nú komin sjö mánuði á leið og þegar þungunin var farin að hafa áhrif á starfsgetuna sáu þau fram á að þurfa að velja á milli ísbarnanna sinna. „Þar sem það er að fjölga í famelíunni þá er tíminn sem við höfum fyrir litlu [Ísbúðina] Laugalæk orðinn takmarkaður. Því viljum við koma henni í hendurnar á áhugasömum einstaklingum sem vilja reka rótgróna ísbúð í góðu hverfi,“ skrifuðu Gísli og Rut í Facebook-færslu á tíunda tímanum í morgun. „Við vorum í ísvélaþrifum þegar við settum þetta inn og sögðum: „Já, eigum við að láta slag standa?“ Af því að ég stóð svona varla í lappirnar í morgun,“ segir Rut. „Ég sagði bara: „Veistu, við getum ekki staðið í þessu lengur“,“ skýtur Gísli inn í. Fyrir á hann fjögur börn og verður því sjö manna fjölskylda á heimilinu innan tíðar. Bráðum verður fjölskylda Gísla og Rutar sjö manna. Aðsend Áhuginn á rekstrinum hefur ekki látið á sér standa og síminn varla stoppað í dag. „Við ætluðum ekki að ná að klára að þrífa ísvélarnar.“ Gísla telst til að allavega fimmtán manns hafi haft samband við þau frá því að færslan fór í loftið. „Það er eiginlega bara brjálaður áhugi, eiginlega miklu meiri en ég bjóst við,“ segir hann. Átti að vera gæluverkefni Þau gangast við því að það fylgi því mikil vinna að reka þetta fyrirtæki eins og hvert annað ef þau eiga að blómstra. Þau tóku við ísbúðinni fyrir tæpu ári, í október 2025. „Þó að við séum með stelpur á vaktinni þá er bara ýmislegt sem þarf að sinna í daglegum rekstri, eins og vörukaup og pantanir og annað, þannig að við tókum þessa ákvörðun,“ segir Rut sem hefur haft veg og vanda af rekstrinum. Þau eru einnig með fyrirtækið Bílaforritun og eru með það þriðja á teikniborðinu. „Af því hún verður ekki í vinnu í einhvern tíma út af barninu, þá ákváðum við að leyfa einhverjum öðrum að taka við keflinu sem hefur áhuga á ísbúð,“ segir Gísli en Rut er vön ýmsum verslunarrekstri. „Þetta átti að vera eitthvað svona lítið gæluverkefni til hliðar en svo kom laumufarþegi,“ segir hún létt í bragði. Veðrið harður húsbóndi en hverfisstemning hjálpi „Þetta er bara eins og með allar ísbúðir. Þetta er gull á sumrin og vinna á veturna,“ segir Gísli um reksturinn. Salan sé að miklu leyti háð veðrinu sem geti verið hverfult líkt og landsmenn og úthúðaðir veðurfræðingar kannast við. Salan fylgi jú sólarstundum og það hafi raunar komið þeim á óvart hversu vel síðastliðið sumar hafi gengið við Laugalæk. „Þetta var eiginlega bara mjög fínt miðað við hvað það voru fáir sólardagar.“ Þau segja góða stemningu í hverfinu og ísbúðin eigi sér stóran fastan kúnnahóp sem komi við reglulega. Þá keyri brottfluttir íbúar jafnvel langa leið til að sækja ísbúðina í sínu gamla hverfi. Eins og að vera í litlum bæ „Það er svo gaman að standa vaktina og spjalla við nágrannana. Maður heyrir alltaf sögur af fyrri eigendum og eldra fólk er að segja mér frá því þegar þau voru lítil að koma með skál í búðina að sækja ís af því að það voru engin box,“ segir Rut. Gísli bætir við að viðskiptavinir séu með minningar úr ísbúðinni allt frá sjöunda áratug síðustu aldar. Þau telja að ís hafi verið seldur í húsinu allt frá árinu 1958. „Þetta er bara eins og með allar ísbúðir. Þetta er gull á sumrin og vinna á veturna,“ segir Gísli um reksturinn. „Þetta er svo skemmtilegt samfélag. Kaffi Laugalækur, Pylsumeistarinn sem er yndislegur,“ segir Rut. „Þetta er svona smá smábæjarsamfélag þarna niðri í Laugardal, inni í borginni. Ég bjóst ekki við þessu. Ég sjálfur er frá Patreksfirði og hef búið í Kópavogi allt mitt líf eiginlega,“ skýtur Gísli inn í. „Það eru allir vinir þarna. Maður fer á kaffihús þarna við hliðina, á Kaffi Laugalæk, og það eru allir að heilsast. Þetta er bara smá eins og að vera eiginlega úti á landi.“ Það væri því sérstaklega gaman ef fólk úr hverfinu hefði áhuga á því að taka við þessum sögufræga rekstri.
Ís Reykjavík Barnalán Ástin og lífið Kaup og sala fyrirtækja Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira