Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Kjartan Kjartansson og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa 2. september 2026 11:29 Bókun 35 verður á dagskrá Alþingis í haust í skugga mögulegs EFTA-dómsmáls gegn Íslandi. Vísir/Vilhelm Eftirlitsstofnun EFTA skoðar nú að höfða samningabrotamál gegn Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum vegna bókunar 35. Málið er sagt hafa verið sett á bið vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar.
Fréttaritari Ríkisútvarpsins í Brussel segir eftirlitsstofnunina (ESA) nánast tilbúna með mál gegn Íslandi fyrir brot á EES-samningnum. Ástæðan sé sú að Ísland hafi ekki enn innleitt bókun 35 sem felur í sér að ákvæði sem voru tekin inn í íslensk lög í gegnum EES-samninginn gangi framar öðrum íslenskum lögum ef þau stangast á nema Alþingi hafi ákveði annað. Íslensk stjórnvöld eru sögð hafa vitað af því að málsóknin vofði yfir. Málið hafi verið í biðstöðu vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræður sem fór fram um helgina. Fjölmiðlafulltrúi ESA segir Vísi að stofnunin hafi verið í samskiptum við íslensk stjórnvöld vegna innleiðingar á bókun 35. Uppfylli Ísland ekki EES-samninginn sé til skoðunar að stefna Íslandi. Engin tímasetning liggi þó fyrir þar sem viðbrögð íslenskra stjórnvalda séu ekki ljós ennþá. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, hefur sagt að bókun 35 verði sett í forgang á nýju þingi til þess að festa EES-samninginn í sessi eftir að meirihluti kjósenda hafnaði aðildarviðræðum á laugardag. Töldu sig hafa uppfyllt bókunina í upphafi ESA sendi íslenskum stjórnvöld formlegt álit árið 2017 um að þau hefðu ekki staðið við skuldbindingar sínar gagnvart EES-samningnum. Það bréf var sent fimm árum eftir að ESA óskaði eftir upplýsingum frá íslenskum stjórnvöldum um hvernig þau ætluðu að standa við skuldbindingar sínar. Íslensk stjórnvöld svöruðu því erindi ekki. Íslensk stjórnvöld töldu sig hafa uppfyllt skuldbindingar sínar með ákvæði í lögum um evrópska efnahagssvæðið árið 1993. Dómur Hæstaréttar um áratug síðar setti það í uppnám þar sem hann taldi ákvæðið ekki þýða að lög sem byggðu á EES-reglum gengu framar öðrum lagagreinum. Hluti stjórnarandstöðunnar hefur sett sig upp á móti því að bókun 35 verði samþykkt. Málið hefur þrisvar verið lagt fram á Alþingi frá 2023 en aldrei verið samþykkt. Þingmenn Miðflokksins stóðu meðal annars fyrir málþófi til að koma í veg fyrir framgang þess í fyrra.
Utanríkismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Evrópusambandið Bókun 35 EES-samningurinn EFTA Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Sjá meira