Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Birgir Olgeirsson skrifar 2. september 2026 09:49 Heiðar Guðjónsson seldi Gavia Invest 12,72 prósenta hlut sinn í Sýn sumarið 2022. Hann segir skaðabótamálið sem félagið hefur nú höfðað gegn honum fráleitt. Vilhelm Ásökunum um að upplýsingum hafi verið haldið frá kaupendum við sölu á hlut í Sýn sumarið 2022 er alfarið hafnað af Heiðari Guðjónssyni, fyrrverandi forstjóra félagsins. Hann segir kaupendurna hafa tekið við rekstrinum og borið ábyrgð á þróun hans síðan.
Gavia Invest hefur höfðað skaðabótamál gegn Heiðari og Úrsus ehf., félagi hans. Morgunblaðið greindi fyrst frá málinu, sem var tekið fyrir í fyrsta sinn í gær. Samkvæmt umfjöllun blaðsins telur Gavia að Heiðar hafi við söluna búið yfir upplýsingum um stöðu Sýnar sem kaupendurnir hafi ekki fengið. Félagið byggir einnig á því að Heiðar hafi átt að sjá fyrir verulega lækkun tekna. Reynir Grétarsson er stærsti eigandi InfoCapital, sem á rúmlega 80 prósent í Gavia Invest. Gavia keypti hlut Heiðars í Sýn árið 2022 og hefur nú höfðað mál gegn honum vegna viðskiptanna.Vilhelm „Þetta er fráleitt mál, að ég hafi verið að halda eftir einhverjum upplýsingum. Þeir taka við stjórn fyrirtækisins um leið og ég hætti og þeir eru búnir að hafa fjögur ár til að láta kanna þetta mál eða opinbera svik af minni hálfu. Það eru engin svik,“ segir Heiðar. „Þessir aðilar telja að það sé hægt að kaupa rekstur, misfara með hann og fá síðan endurgreitt. Þetta er algjörlega út úr kortinu.“ Sýn sendi Fjármálaeftirlitinu gögn Sýn er ekki aðili að málinu en upplýsti í morgun að félagið hefði í febrúar sent Fjármálaeftirliti Seðlabankans gögn um meðferð rekstrarupplýsinga árið 2022. Við skoðun eldri gagna þótti ástæða til að kanna hvort uppfærð innri spá um IoT tekjur hefði borist réttum aðilum innan Sýnar. Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar. Félagið er ekki aðili að skaðabótamálinu en tilkynnti Fjármálaeftirlitinu fyrr á árinu um meðferð innri rekstrarspár frá þeim tíma sem hlutabréfaviðskiptin fóru fram.Vilhelm IoT tekjur eru greiðslur sem Sýn fær fyrir að tengja tæki við farsímakerfið. Viðskipti Úrsus með hlutabréf í félaginu áttu sér stað um svipað leyti. Í þessu tilviki komu tekjurnar frá Controlant, sem notar mæla til að fylgjast með hitastigi og staðsetningu lyfjasendinga. Í mælunum eru SIM kort frá Sýn sem flytja gögnin um farsímakerfi. Eftir því sem fleiri mælar Controlant voru teknir í notkun jukust tekjur Sýnar af tengingunum. Félögin höfðu unnið saman í meira en áratug árið 2021. Umsvif Controlant jukust gríðarlega í kórónuveirufaraldrinum þar sem mælar fyrirtækisins voru notaðir við flutning á bóluefni. Umsvifin minnkuðu þegar faraldrinum sleppti. Í yfirlýsingu segist félagið Sýn ekki taka ekki afstöðu til þess hvort reglur hafi verið brotnar og segir niðurstöðu Fjármálaeftirlitsins ekki liggja fyrir. Reksturinn styrktist fyrir söluna Heiðar var stjórnarformaður Sýnar frá 2014 og tók við sem forstjóri í apríl 2019. Sýn tapaði 1,75 milljörðum króna árið 2019 og 405 milljónum árið 2020. Heiðar Guðjónsson varð stjórnarformaður Fjarskipta, sem síðar varð Sýn, árið 2014 og tók við sem forstjóri árið 2019. Hann seldi allan 12,72 prósenta hlut sinn í félaginu sumarið 2022 og lét jafnframt af störfum.Vilhelm Hagnaðurinn 2021 var 2,1 milljarður en þar vó þungt 2,55 milljarða bókfærður ávinningur af sölu farsímainnviða. Afkoman batnaði á fyrri helmingi ársins 2022. Tekjur jukust um 13,6 prósent, EBITDA um 15,3 prósent og hagnaður nam 273 milljónum króna. Heiðar seldi skömmu síðar allan 12,72 prósenta hlut Úrsus til Gavia. Kaupverðið var nærri 2,2 milljörðum króna, eða 64 krónur á hlut. Gavia á hlutinn enn Þrjú félög stóðu að Gavia við stofnun þess. InfoCapital var í eigu Reynis Grétarssonar og Hákons Stefánssonar. Að E&S 101 stóðu Jonathan R. Rubini, Andri Gunnarsson og Mark Kroloff, en Pordoi var félag Jóns Skaftasonar. InfoCapital eignaðist síðar rúmlega 80 prósent Gavia. Gavia er enn stærsti einstaki eigandi Sýnar. Samkvæmt hluthafalista frá 1. ágúst á félagið 18,23 prósent, auk þess sem InfoCapital á 4,85 prósent beint. Vísir eru í eigu Sýnar.
Sýn Kaup og sala fyrirtækja Kauphöllin Mest lesið Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Sjá meira