Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Atli Ísleifsson skrifar 1. september 2026 12:23 Andri Valur Ívarsson. BHM Stjórn BHM hefur ráðið Andra Val Ívarsson í starf framkvæmdastjóra BHM.
Í tilkynningu segir að Andri Valur hafi starfað sem lögmaður BHM frá vordögum 2017 og sé því aðildarfélögum BHM að góðu kunnur. „Hann þekkir starfsemi BHM vel og hefur á undanförnum árum komið að fjölbreyttum verkefnum fyrir bandalagið og aðildarfélög þess, ekki síst á sviði vinnumarkaðs- og kjaramála. Andri Valur er með BA-próf í hagfræði frá Háskóla Íslands og BA- og MA-gráðu í lögfræði frá sama skóla auk lögmannsréttinda. Andri Valur býr yfir yfirgripsmikilli þekkingu á vinnumarkaðs- og kjaramálum og hefur um langt skeið fylgst náið með þróun, uppbyggingu og hagsmunabaráttu stéttarfélaga háskólamenntaðra,“ segir í tilkynningu. Haft er eftir Kolbrúnu Halldórsdóttur, formanni BHM, að stjórn BHM sé afar ánægð með ráðningu Andra Vals í starf framkvæmdastjóra. „Hann þekkir starfsemi bandalagsins og aðildarfélaga þess mjög vel og býr yfir víðtækri reynslu og fagþekkingu á þeim málefnum sem eru kjarninn í starfsemi BHM. Andri Valur nýtur mikils trausts og stjórnin er sannfærð um að hann muni leiða starf bandalagsins áfram af festu og metnaði,“ segir Kolbrún. Þá er haft eftir Andra Val að hann segist þakklátur fyrir traustið sem honum sé sýnt með ráðningunni. „Það hefur verið bæði gefandi og lærdómsríkt að starfa fyrir BHM undanfarin ár. Ég þekki því vel þann mikla mannauð og metnað sem býr innan bandalagsins og aðildarfélaga þess. Ég hlakka til að takast á við nýtt hlutverk og halda áfram að vinna að öflugri hagsmunagæslu fyrir háskólamenntað fólk í góðu samstarfi við stjórn, starfsfólk og aðildarfélög BHM,“ segir Andri.
Stéttarfélög Vistaskipti Vinnumarkaður Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira