Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Andri Broddason skrifar 31. ágúst 2026 21:33 Lamine Yamal og Raphinha skoruðu tvö mörk hvor fyrir Barcelona í öruggum sigri. Eric Alonso/Getty Images Barcelona situr á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar eftir að hafa unnið öruggan 5-2 sigur á Rayo Vallecano. Raphinha og Lamine Yamal skoruðu tvö mörk hvor.
Rayo Vallecano komst óvænt yfir strax á tólftu mínútu leiksins þegar Sergio Camello lagði boltann í netið eftir frábæran sprett hjá Alvaro Garcia. Heimamennirnir í Barcelona ætluðu þó ekki að leyfa gestunum að vera lengi með forystuna og jafnaði Raphinha metin sex mínútum síðar eftir að hafa fíflað vörn Rayo Vallecano. Barcelona-menn voru funheitir þessa stundina og á 21. mínútu tók Barcelona forystu leiksins þegar Lamine Yamal fékk boltann rétt fyrir utan teig og smurði boltanum í samskeytin. Þetta var fyrsta mark tímabilsins fyrir Yamal en það má búast við að þau verði fleiri. Snemma í seinni hálfleik vann Barcelona boltann og keyrði Gordon upp kantinn. Raphinha var í dauðafæri í teig Rayo Vallecano og reyndi Florian Lejeune að fara fyrir sendinguna. Við það fékk hann boltann í sig og þaðan fór hann inn og endaði á því að skora pínlegt sjálfsmark. Gestirnir voru þó ekki búnir að leggja árar í bát þegar Camello skoraði sitt annað mark og virtist markið koma flatt upp á bakið á Barcelona. Raphina náði þó að losa pressuna á 71. mínútu þegar hann skoraði annað mark sitt í leiknum. Lamine Yamal var þó ekki búinn að syngja sitt síðasta og skoraði hann annað mark fyrir utan teig eftir sendingu frá Karim Adeyemi. Þetta tryggði Barcelona öruggan 5-2 sigur. Eftir sigurinn eru Barcelona og Real Madrid einu liðin sem hafa unnið alla sína leiki þegar þrjár umferðir eru búnar. Gengi Rayo Vallecano er ekki jafn gott en liðið er aðeins með eitt stig eftir leikina þrjá.
Spænski boltinn FC Barcelona Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni Enski boltinn Fleiri fréttir Þjálfari Hákons grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjá meira