Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar 26. ágúst 2026 16:02 Er betra að flytja inn lambalærið frá Írlandi, kjúklinginn frá Póllandi og eggin frá Hollandi? Er betra að fá skyrið og mjólkurvörurnar frá Þýskalandi? Er betra að treysta því að aðrar þjóðir sjái okkur fyrir matvælum ef alvarlegt ástand skapast? Er betra að færa öðrum vald yfir mikilvægum auðlindum okkar sem við ráðum sjálf yfir í dag og reyna síðan að semja um undanþágur til að halda hluta af því sem nú þegar er okkar? Er betra að tengjast enn frekar evrópskum orkumarkaði, með þeirri hættu að orkuverð hér hækki verulega, í stað þess að byggja áfram á okkar eigin orkuauðlindum? Er betra að bíða í mörg ár eftir að verðbólga og vextir lækki, í stað þess að krefjast strax sterkrar og ábyrgrar efnahagsstjórnar hér heima? Er betra að eiga það á hættu að kaupmáttur minnki og atvinnuleysi aukist verulega, í stað þess að skapa hér heima störf, tækifæri, verðmæti og velferð? Er betra að greiða tugi milljarða í brúttóframlag á ári til ESB og vonast til að fá hluta af þeim til baka í formi styrkja, sem aðrir ákveða, í stað þess að setja okkar fjármuni í eigin innviði, heilbrigðiskerfi, menntakerfi og velferðarkerfi? Er betra að framselja hluta af löggjafarvaldi okkar, framkvæmdavaldi og dómsvaldi, valdi sem forfeður okkar börðust ötullega fyrir? Er betra að víðtæk Evrópulöggjöf, þar sem 99% þingmanna eru skipaðir frá öðrum ríkjum, verði að lögum á Íslandi, í stað þess að við höfum okkar eigin löggjafarvald? Er betra að Evrópudómstóllinn verði æðsti dómstóll okkar í öllum málaflokkum sem undir hann heyra í stað Hæstaréttar Íslands? Er betra að láta af frelsi okkar til að gera eigin fríverslunarsamninga við önnur ríki og láta þá mikilvægu samninga sem við höfum þegar gert víkja fyrir sameiginlegri viðskiptastefnu ESB? Er betra að segja já við því að Ísland hefji á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið og fara í dýra vegferð og aðlögun sem erfitt getur verið að bakka út úr? Er betra fyrir börnin okkar og komandi kynslóðir að þurfa að treysta meira á aðra í stað þess að byggja á eigin styrkleikum, okkar dýrmætu auðlindum og okkar mikilvæga sjálfstæði? Ég er búin að sjá nóg til að mynda mér skoðun og segi NEI takk. Höfundur er frumkvöðull, fyrirtækjaeigandi og stjórnarformaður harðfiskverkunar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Sigþrúður Ármann Mest lesið Stjórnun gervigreindar og öryggi Marinó G. Njálsson Skoðun Hvað breyttist þegar þjóðin sagði nei? Hilmar Kristinsson Skoðun Hvað merkir íslenskt nei? Erna Bjarnadóttir Skoðun Fimm mínútur sem geta skipt sköpum í neyð Birna G. Magnadóttir Skoðun Meðaltalið borgar ekki húsaleiguna Finnbjörn A. Hermannsson Skoðun Umferð í Reykjavík og samgönguásar höfuðborgarsvæðisins Elías B Elíasson Skoðun Um helmingur lækna á Landspítala í fullu starfi Sigurður Helgi Pálmason Skoðun Geta stofnanir sparað og bætt þjónustuna? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Ferðaþjónustan gerir Ísland skemmtilegra Ragnhildur Ágústsdóttir Skoðun Hvenær verður nóg nóg? Borgar Antonsson (Boggi Tona) Skoðun Skoðun Skoðun Hvað breyttist þegar þjóðin sagði nei? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Stjórnun gervigreindar og öryggi Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Hafrannsóknastofnun vissi af gloppunni en gerði ekkert Þórólfur Júlían Dagsson skrifar Skoðun Reikningurinn sem svefninn getur ekki borgað Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Er þetta allt sama tóbakið? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Danski bærinn Akureyri Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Píeta samtökin í 10 ár Hildur Eir Bolladóttir skrifar Skoðun Fimm mínútur sem geta skipt sköpum í neyð Birna G. Magnadóttir skrifar Skoðun Hvenær verður nóg nóg? Borgar Antonsson (Boggi Tona) skrifar Skoðun Hvað merkir íslenskt nei? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Meðaltalið borgar ekki húsaleiguna Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Geta stofnanir sparað og bætt þjónustuna? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver ber kostnaðinn þegar landinu er lokað? Friðrik Árnason skrifar Skoðun Dýnamík hópeineltis, hóphegðun fína og ófína fólksins Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Gervigreindin og ragnarök: Raunveruleg hætta eða mesta svikamylla sögunnar? Hólmfríður Gísladóttir skrifar Skoðun Umferð í Reykjavík og samgönguásar höfuðborgarsvæðisins Elías B Elíasson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: Hvar liggja mörk sjálfræðis? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Ferðaþjónustan gerir Ísland skemmtilegra Ragnhildur Ágústsdóttir skrifar Skoðun Um helmingur lækna á Landspítala í fullu starfi Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Hvað hefur presturinn að segja yfir gröfinni? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Erum við í hættu? Ólgan kringum gervigreind Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht skrifar Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin og ragnarök: Raunveruleg hætta eða mesta svikamylla sögunnar? Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar