Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar 24. ágúst 2026 19:01 10 ástæður fyrir því að virðisaukaskattshækkun á baðlón er galin Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra var til viðtals á RÚV, bæði í Speglinum og í sjónvarpsfréttum um liðna helgi. Þar kom fram að ríkisstjórnin ætlar sér að sækja 3 til 4 milljarða króna til ferðaþjónustunnar, með hækkun virðisaukaskatts á baðlón úr 11% í 24%. Þess ber að geta, að Viðreisn þvertók fyrir það í kosningabaráttunni fyrir síðustu kosningar til Alþingis, að þau ætluðu að hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustu. Svo mikið fyrir þau loforð! Orðræða Daða vakti athygli mína. Hann talaði um baðlónin sem ákveðinn “lúxus”, sem óhætt væri að skattleggja miklu meira án þess að umtalsverð neikvæð áhrif kæmu fram, þessi þjónusta væri nefnilega svo dýr. Sennilega er Daði í þessu lúxustali að miða við verð á aðgöngumiða í almenningssundlaugar landsins, sem er niðurgreiddur af sveitarfélögum að stærstum hluta. Það má leiða að því líkur, að ef notendur sundlauga greiddu fullt verð, myndi sú upphæð vera á pari við meðalverð á aðgangi í baðlón. Munurinn á baðlónum og sundlaugum er hins vegar sá, að baðlón skapa verðmæti, sem m.a. eru notuð til að greiða niður rekstur almenningssundlauga á Íslandi. Í þessu samhengi má einnig geta þess að samkvæmt rannsóknum Ferðamálastofu fara um 55% erlendra ferðamanna í náttúruböð og baðlón. Það má slá því föstu að það hlutfall myndi lækka verulega með hærri virðisaukaskatti. En þetta finnst Daða allt “réttlætanlegt” enda hefur ferðaþjónustan notið “sérmeðferðar” til þessa. 1.Hækkun virðisaukaskatts á baðlón vegur að samkeppnishæfni allrar ferðaþjónustunnar, sem á nú þegar undir högg að sækja. 2.Baðlónin eru ein sterkasta sérstaða Íslands sem áfangastaðar, krúnudjásn sem skapa gríðarleg verðmæti og hafa óendanlega möguleika til að skapa enn meiri verðmæti - stækka kökuna! 3. Það eru allar líkur á því, að hækkun virðisaukaskatts á baðlón muni valda því að skatttekjur af þessari starfsemi dragist saman, í kjölfar minni eftirspurnar. Kakan minnkar! 4. Baðlónin eru ekki eyland. Þau eru stór hluti af virðiskeðju ferðaþjónustunnar, tilvist þeirra stuðlar að uppbyggingu í kringum þau og eykur líkur á lengri dvöl ferðamanna í þeim landshlutum sem þau starfa. 5. Baðlón á landsbyggðinni stuðla að dreifingu ferðamanna um landið og styðja við markmiðið um að byggja upp ferðaþjónustu um allt landið og allt árið. Ef rekstrargrundvöllur baðlóna raskast og heilsársopnun verður ekki lengur raunhæf, þá hefur það afdrifaríkar afleiðingar á viðkomandi byggðarlög. 6. Hækkun virðisaukaskatts á baðlón er ekki skattahækkun á fyrirtækin sem slík, heldur skattur á neytendur - sem eru erlendir ferðamenn, Íslendingar og ekki síður heimamenn. 7.Hækkun virðisaukaskatts á baðlón hefur neikvæð áhrif á vísitölu neysluverðs og vinnur þar með gegn verðbólgumarkmiði Seðlabankans. 8. Hækkun virðisaukaskatts á baðlón dregur úr hvata og getu baðlóna til frekari fjárfestinga og framþróunar. 9. Velflest baðlón landsins eru staðsett á landsbyggðinni og þau heilsársstörf sem lónin skapa skipta sköpum. 10.Heildarafkoma ferðaþjónustunnar á Íslandi árið 2025 var um 20 milljarðar króna. Í riti Fjármálastöðugleikanefndar varar hún við veikri eiginfjárstöðu íslenskra ferðaþjónustufyirtækja, bæði í innlendum og erlendum samanburði. Er skattahækkun líkleg til að laga þá stöðu? Það eru allar líkur á því að Daði „lendi í baði“! Framkvæmdastjóri Katla DMI ehf og fyrrverandi formaður Samtaka ferðaþjónustunna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sundlaugar og baðlón Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Bjarnheiður Hallsdóttir Skattar, tollar og gjöld Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Skoðun Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Sjá meira
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar