Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Jón Þór Stefánsson skrifar 11. ágúst 2026 14:25 Úr myndbandi af atvikinu sést Hólmbert, ásamt liðsfélaga sínum, koma manni úr brennandi bíl. Hólmbert Aron Friðjónsson, fótboltamaður sem spilar í efstu deild í Suður-Kóreu, bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum um síðastliðna helgi. Það gerði hann ásamt liðsfélögum sínum hjá Gwangju FC.
Nokkuð hefur verið fjallað um málið í kóreskum fjölmiðlum og þar er afrekinu lýst sem hetjudáð. Þar segir rúta sem var að flytja liðsmenn Gwangju FC heim eftir leik hafi komið að bílslysi, og eldlogandi bíll blasið við þeim. Tveir tilteknir leikmenn eru nefndir sérstaklega, Sin Chang-moo og Hólmbert, og þeir sagðir hafa bjargað manni úr brennandi bílnum. Myndband af atvikinu má sjá hér að neðan: Fréttastofu hefur ekki tekist að ná tali af Hólmberti, en hann segir í samtali við Rúv að þegar þeir hafi komið á slysstað hafi þeim verið ljóst að enginn viðbragðsaðili væri enn kominn á vettvang. Þeir hafi velt fyrir sér hvort einhver væri í bílnum. „Það voru allir eiginlega smá hræddir við að bíllinn myndi bara springa eins og í bíómyndunum. Þannig það var eiginlega verið að banna okkur að fara eitthvað út úr rútunni,“ sagði Hólmbert við Rúv. Þó hafi hann farið ásamt liðsfélaga sínum og dregið bílstjóra úr bílnum. Að hans sögn mátti ekki tæpara standa. „Við hjálpuðum honum út og sjúkraþjálfarinn okkar dró hann svo í burtu og svo bara nokkrum mínútum seinna var bíllinn bara orðinn alelda, bara basically að fuðra upp.“
Suður-Kórea Fótbolti Íslendingar erlendis Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum Innlent Fleiri fréttir Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Sjá meira