Sport

Dag­skráin í dag: Mansfield og Messa á sunnu­degi

Valur Páll Eiríksson skrifar
Íslandsmeistararnir verða í eldlínunni í dag.
Íslandsmeistararnir verða í eldlínunni í dag.

Besta deild karla á sviðið þennan sunnudaginn á Sýn Sport. Fimm leikir eru á dagskrá, auk eins leiks í Mansfield á Englandi.

Besta deild karla

Alls eru fimm leikir á dagskrá í Bestu deild karla í dag. Fjórir þeirra fara fram klukkan 18:00 og þeir verða allir í beinni á sama tíma á sama stað, í Subway Messunni með Gumma Ben á Sýn Sport Ísland klukkan 17:50.

Stjarnan og Keflavík eigast við í Garðabæ, sá leikur er í beinni frá 17:50 á Sýn Sport Ísland 2.

ÍA tekur á móti Þór frá Akureyri, það er í beinni frá 17:50 á Sýn Sport Ísland 3.

Íslandsmeistarar Víkings mæta ÍBV í Víkinni, það er frá 17:50 á Sýn Sport Ísland 4.

Loks er það leikur KA og FH, sem tefst um korter, og er í beinni frá 18:05 á Sýn Sport Ísland 5.

Stórleikur dagsins er milli Breiðabliks og Vals í Kópavogi. Sá er í beinni frá 20:10 á Sýn Sport Ísland.

Carabao Cup

Enski deildabikarinn rúllar þessa helgina en aðeins einn leikur er á dagskrá í dag. Mansfield tekur á móti Sheffield United klukkan 15:00.

Bein útsending hefst klukkan 14:50 á Sýn Sport Viaplay.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×