Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Lovísa Arnardóttir skrifar 6. ágúst 2026 08:43 Breki hvetur Neytendastofu til að skoða ekki bara upplýsingagjöf heldur líka vangreiðslugjöld sem bílastæðifyrirtækin innheimta mörg. Vísir/Vilhelm Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna segir bílastæðafyrirtæki sum „síbrotafyrirtæki“. Þó svo að hann sé ánægður með nýlega sekt Neytendastofu telur hann þurfa að stíga fastar niður. Það eigi að vera skýrt hver kostnaður er við að leggja á bílastæði áður en fólk leggur. Rætt var við Breka í Bítinu á Bylgjunni í morgun.
Neytendastofa sektaði bílastæðafyrirtækin Parka Lausnir ehf. og EasyPark Ísland ehf. um hundruð þúsunda fyrir að tilgreina ekki kostnað á gjaldsvæðum nægilega vel. Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna segir þessi fyrirtæki „síbrotafyrirtæki“ því þau eru nú að fá sektir og ákúrur fyrir að brjóta aftur á sér og gegn fyrri ákvörðun Neytendastofu. „Það segir manni að annaðhvort er þeim alveg sama eða að þau eru það kærulaus að þessar sektir eru ekki að bíta,“ segir hann. Það geti verið að sektirnar séu ekki nógu háar eða að það sé hreinlega einhver pottur brotinn innan fyrirtækjanna og þau hafi ekki stjórn á sinni starfsemi. Sigmar Vilhjálmsson, þáttastjórnandi Bítisins, bendir á að stjórnvaldssektin sem lögð er á Parka hafi verið um ein milljón en í ársreikningi megi sjá að hagnaður fyrirtækisins í fyrra hafi verið um 42 milljónir. „Þetta er dropi í hafið,“ segir Breki og bendir á að að þessi brot sem sektar er fyrir nú varði aðeins upplýsingagjöf. Hann segir Neytendasamtökin einnig hafa hvatt Neytendastofu til að taka betur á vangreiðslugjaldi sem þessi fyrirtæki leggja einnig á. Samtökin telja gjaldið ólöglegt því það sé ekki á höndum fyrirtækja að leggja sektir á fólk. Það séu innheimtulög og þessi vangreiðslugjöld rúmist ekki innan þeirra. Fá meira svigrúm með nýjum lögum Breki segir ný markaðssetningarlög hafa tekið gildi í júní og eftir það hafi Neytendastofa meira svigrúm til að skoða þessi mál og því voni Neytendasamtökin að nú geti Neytendastofa skoðað þetta gjald. Þau telji að annaðhvort sé þetta brot á innheimtulögum eða á samningagerð, það er, samningurinn sé ósanngjarn. Spurður hvort hann telji að eigendur eða stjórnendur eigi að vera gerðir persónulega ábyrgir fyrir svona brotum segir Breki að fyrirtækin taki ekki ákvarðanir, það séu stjórnendur innan þeirra sem geri það og það sé gott að þeir séu persónulega ábyrgir. Hann telur að öðruvísi ákvarðanir væru teknar innan fyrirtækja ef það þyrfti sjálft að standa skil á gjörðum sínum. Erfitt að kvarta Breki segir Neytendasamtökin fá margar athugasemdir um það að erfitt sé að ná til fyrirtækjanna. Fólk nenni ekki að standa í margra daga þrasi vegna sektar sem er kannski 2.500 eða 5.000 krónur. Það greiði hana frekar. „Fólk vill ekki sjá svona í heimabankandum, það er óþægilegt og þetta er dæmigert neytendamál. Margir litlir aðilar eiga í baráttu við einn stóran sem hefur hag af því að taka smotterí af hverjum og einum,“ segir hann og þess vegna sé mikilvægt að samtökin berjist í þágu neytenda gegn þessu. Hann segir Neytendasamtökin brýna Neytendastofu til harðari og frekari verka. Sektirnar séu gott fyrsta skref en það þurfi að stíga harðar og fastar niður. „Við erum enn í þessu villta vestri.“
Bílastæði Neytendur Bílar Bítið Mest lesið Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Viðskipti innlent Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Neytendur Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Framúrskarandi fyrirtæki Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Kostar allt að 580 þúsund Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Verja súkkulaðimyndirnar á Swiss Miss Opna seinna á Dalvegi og í Jafnaseli Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Fréttamaður missti af strætónum til baka Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Hekla innkallar 2.610 bíla Lækka verð á þúsund vörum Prís neitar að frysta verð en heldur verði áfram lágu Hægst á verðhækkun á matvöru Krónan frystir verð til áramóta Segja aldrei jafn marga hafa stoppað stutt í „ræningjarennunni“ Skora á Isavia að stækka „ræningjarennuna“ Fær ekki endurgreitt eftir misheppnaða norðurljósaferð Taki stöðuna alvarlega og hækki ekki verð umfram verðbólgumarkmið Tímamót hjá Heklu: Kveðja Laugaveginn eftir rúma sex áratugi Miði keyptur í Fjarðakaupum skilaði 129 milljónum króna Fengu ekki bætur þrátt fyrir óhreint herbergi Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Innkalla svefntæki fyrir ungbörn vegna brunahættu Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Sjá meira