Sex ástæður fyrir JÁ-i í ágúst Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar 2. ágúst 2026 17:03 Í ágúst erum við aðeins að kjósa um hvort við eigum að ljúka samningaviðræðum og fá samning á borðið. Aðeins þegar samningurinn liggur fyrir vitum við hvaða réttindi, skyldur og tækifæri Ísland getur tryggt sér. Þá fyrst getur þjóðin tekið upplýsta ákvörðun. Mig langar að biðja þig um að hugleiða sex spurningar með mér. 1. Eigum við að halda dyrunum opnum fyrir börnin okkar? Við sem eldri erum eigum ekki að ákveða framtíð unga fólksins. Eigum við að loka á möguleika þeirra áður en við vitum hvað er í boði? Getur samningur skapað sambærileg tækifæri og ungt fólk í Danmörku nýtur? Lægri vexti. Fleiri verðmæt störf. Sterkari nýsköpun. Betri tækifæri til að eignast heimili og byggja framtíð sína á Íslandi. Ef svarið er já, eigum við þá ekki að sjá samninginn áður en við segjum nei? 2. Getur Ísland orðið samkeppnishæfara? Í áratugi hafa íslensk fyrirtæki og heimili búið við hærri vexti og meiri óstöðugleika en flest nágrannalönd okkar. Afleiðingarnar þekkjum við. Færri alþjóðleg fyrirtæki. Veikari fjárfestingar. Sprotafyrirtæki sem leita út fyrir landsteinana. Er þetta sú staða sem við viljum bjóða næstu kynslóð? Eða eigum við að kanna hvort Íslendingar geti fengið samkeppnishæfara umhverfi fyrir alla sem hér búa og fyrirtækin? 3. Dugar EES-samningurinn næstu áratugina? Heimurinn hefur breyst mikið síðust 30 árin. Þó að EES-samningurinn hafi þjónað okkur vel þá er spurning hvort hann dugi næst 30 árin. Staðan núna er sú að við stöndum utan tollabandalags Evrópusambandsins. Það eru tollar á fullunnar landbúnaðar- og sjávarafurðir sem draga úr samkeppnishæfni fullvinnslu á Íslandi. Þessi óvissa hefur þau áhrifa að fullvinnsla er erlendis. Það þýðir að verðmætasköpun og störf verði til annars staðar. Þegar svo er töpum við störfum og flytjum þau út til annarra Evrópulanda. Þegar lög og reglur ESB eru mótaðar eigum við ekki fulltrúa við borðið. Núverandi staða er ekki að tryggja Íslandi bestu lögin og er óskilvirk. Er það ásættanleg staðan fyrir Ísland næstu 30 til 50 árin? Eigum við að kanna hvort við getum tryggt hagsmuni okkar betur? 4. Þú tryggir ekki eftir á Við vitum að náttúruhamfarir verða oft á næstu áratugum á Íslandi. En við vitum ekki hvenær eða hversu stórar. Við vitum heldur ekki hvernig öryggisumhverfi Evrópu þróast á næstu áratugum. Er ekki mikilvægt að kanna núna hvaða stuðning og samstarf Ísland getur byggt upp áður en á reynir? Eigum við ekki jafnframt að leggja okkar af mörkum til að friður haldist í Evrópu og hafa áhrif á það hugarfar sem við viljum sjá hjá þjóðum heimsins? Friður verður ekki til af sjálfu sér. Hann byggist á samstarfi, trausti og vináttu þjóða. Ísland getur lagt sitt af mörkum, meðal annars í þekkingu á náttúruvá, endurnýjanlega orku, landgræðslu og sjálfbærni. Í samningum á milli þjóða getum við komið að með miðlun og sátt. Við eigum ekki aðeins að njóta góðs af Evrópu. Við eigum líka að hjálpa til við að byggja hana upp sem samfélag friðar og samvinnu. Þú tryggir ekki eftir á. 5. Eigum við ekki fyrst að sjá hvað Ísland getur samið um? Enginn á að samþykkja samning sem þjónar ekki hagsmunum Íslands. Þess vegna eigum við að sjá hvaða varanlegu lausnir er hægt að semja um fyrir sjávarútveg, landbúnað og aðra lykilhagsmuni þjóðarinnar. Ef við náum ekki góðum samningi höfum við honum. En hvernig getum við hafnað samningi sem við höfum aldrei séð? 6. Hvernig viljum við að Ísland líti út eftir 30 ár? Við vissum ekki fyrir þrjátíu árum hvernig heimurinn yrði í dag og við vitum ekki heldur hvernig hann verður eftir þrjátíu ár. En við skulum ekki loka dyrum sem gætu leitt til meiri stöðugleika, sterkari efnahags, fjölbreyttari starfa og öruggari framtíðar fyrir Ísland. Við eigum að sjá samninginn. Greina og ræða hann. Þá fyrst getur þjóðin tekið endanlega ákvörðun. Það er ábyrg leið og lýðræðisleg leið. Um leið sýnum við unga fólkinu okkar virðingu og gefum því tækifæri til að velja. Hvað finnst þér? Lokorð Við Íslendingar höfum alltaf náð bestum árangri þegar við höfum horft út á við með sjálfstrausti. Við skulum ekki óttast samstarf, heldur taka þátt í því að móta það. Við eigum ekki aðeins að spyrja: „Hvað getur Evrópa gert fyrir Ísland?" Við eigum líka að spyrja: „Hvað getur Ísland lagt af mörkum fyrir Evrópu?" Í þekkingu á mörgum sviðum sem Ísland hefur byggt upp á síðustu áratugum, svo sem í nýsköpun og sjávarútvegi. Þeirri þekkingu sem við höfum í jarðhita, endurnýjanlegri orku og sjálfbærni. Ég hef sérstakan áhuga á öllum sem hjálpar til við að það ríki meiri friður í heiminum. Um leið og þjóðir vinna náið saman þá aukum við líkur á varanlegum friði, um það var ESB stofnað á sínum tíma. Við skulum vera óhrædd við að leggja okkar af mörkum, eins og að þiggja stuðning þegar á þarf að halda. Ég hef trú á því að við getum náð góðum samningi, sem tryggir betur öruggari framtíð Íslands. Þess vegna ætla ég að segja já í ágúst. Verum skynsamir Íslendingar, fáum að sjá alla valkostina, semja af styrk og tökum síðan upplýsta ákvörðun um framtíð okkar. Höfundur er viðskiptafræðingur með MS í stjórnun og stefnumótun Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun