„Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar 1. ágúst 2026 15:03 Það er stundum talað eins og þjóðaratkvæðagreiðslan í ágúst snúist um hvort Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið. Það er rangt. Hún snýst um hvort Ísland eigi að hefja á ný og ljúka aðildarviðræðum, fá samningsniðurstöðu í hendurnar og leyfa þjóðinni síðan að taka endanlega afstöðu. Það er grundvallarmunur á þessu tvennu. Í tveimur fyrri greinum mínum um EES hef ég fjallað um hvernig samningurinn hefur stækkað í kyrrþey og hvernig sameiginlegar Evrópureglur hafa styrkt raunveruleg réttindi borgaranna. Þessi þriðja grein fjallar um næstu spurningu, - hvað gerist ef við segjum nei við því að klára málið? Að kanna er ekki að samþykkja Enginn þarf að lofa því fyrirfram að samningurinn verði góður. Enginn þarf að lofa því að hann verði samþykktur, - og enginn þarf að afsala sér gagnrýnni hugsun. Það sem þarf að ákveða er einfaldara, - viljum við vita hvað stendur til boða, eða viljum við hafna því að fá það upplýst? Alls hafa yfir 14.000 ESB-gerðir verið teknar upp í EES-samninginn. Heilt yfir hefur það reynst Íslandi vel. Við höfum notið markaðsaðgangs, fengið mikilvægar réttarbætur og aðlagað atvinnulíf, stjórnsýslu og stofnanir að innri markaði Evrópu. Það þarf ekki að gera lítið úr EES-samningnum til að færa rök fyrir því að nánari þátttaka Íslands í evrópsku samstarfi verði könnuð til fulls. Þvert á móti er reynslan af EES sterk ástæða til að spyrja næstu spurningar. Við höfum aðlagað íslenskt samfélag að sameiginlegum Evrópureglum með takmörkuðum óbeinum áhrifum á fyrri stigum, - en án atkvæðisréttar þegar reglurnar eru samþykktar innan ESB. Við vitum mikið, en ekki nóg Aðildarviðræður eru skipulagðar í fjölda samningskafla. Í mörgum þeirra er Ísland þegar að verulegu leyti tengt regluverki ESB í gegnum EES, meðal annars á sviði fjórfrelsisins, opinberra innkaupa, samkeppnismála, fjármálaþjónustu, orku, umhverfismála, neytendaverndar, matvælaöryggis, vísinda og menntunar. Erfiðustu álitamálin liggja hins vegar fyrst og fremst á sviðum sem standa utan EES, svo sem í sjávarútvegi, landbúnaði, tollabandalagi, gjaldmiðilsmálum, byggðasjóðum og utanríkis- og varnarmálum. Það er í þessum hópi mála sem við vitum ekki hvaða kjör, sérlausnir eða skilyrði gætu staðið Íslandi til boða. Viðræður snúast því ekki um að opna allt upp á gátt. Stór hluti regluverksins er þegar til staðar í gegnum EES. Viðræður snúast um að fá niðurstöðu í þeim málum sem út af standa, svo þjóðin geti dæmt um hana. EES stendur ekki í stað EES-samstarfið er ekki lengur sami veruleiki og árið 1994. Innri markaðurinn hefur breyst og í dag falla mun fleiri málefnasvið undir hann en fyrir þrjátíu árum. Atvinnugreinar renna saman og löggjöf er orðin þverlægari. Evrópureglur um stafræna þjónustu, gervigreind, netöryggi, greiðslukerfi, loftslag, orku, gögn, matvæli og mikilvæga innviði snerta nú íslenskt atvinnulíf og íslenskt samfélag beint. Þróunin bíður ekki eftir því að Íslendingar klári umræðuna innanlands. Þess vegna er ekki nóg að segja, - EES-samningurinn, sem hægt er að segja upp með árs fyrirvara, dugar. Kannski dugar hann áfram. Kannski er aðildarsamningur ekki nægilega góður. Kannski segir þjóðin nei við honum. Það getur vel verið. En það verður þá upplýst nei. Sérlausnir sjást ekki fyrr en samið er Sérlausnir eru ekki fræðilegur möguleiki í stækkunarsögu Evrópusambandsins, heldur hluti af henni. Í sjö stækkunarlotum hafa 22 ríki gengið í ESB, hvert með sínum aðildarsamningi, og kjörin hafa aldrei verið þau sömu. Sumar lausnir eru tímabundnar. Aðrar eru pólitískar yfirlýsingar. Sterkustu lausnirnar eru varanlegar sérlausnir í aðildarsamningi eða bókanir við sáttmálana. Slíkum ákvæðum verður ekki breytt síðar nema með samþykki allra aðildarríkja. Spurningin fyrir Ísland er því ekki hvort sérlausnir séu óhugsandi. Spurningin er hvaða kjör, hvaða sérlausnir og hvaða lagalega form væri hægt að ná fram. Það fæst ekki með yfirlýsingum eða getgátum. Það fæst aðeins með því að klára viðræðurnar. Tvö ólík nei Nei við fullbúnum samningi er afstaða til niðurstöðu sem liggur fyrir. Þá hafa kjörin verið reynd, sérlausnirnar metnar og þjóðin tekið upplýsta ákvörðun. Nei við því að hefja á ný og ljúka viðræðum er annars eðlis. Það er nei við því að sjá samninginn. Nei við því að kanna kjörin. Nei við því að vita hvort, og þá hvaða, sérlausnir og skilyrði gætu verið í boði fyrir Ísland. Norðmenn kláruðu aðildarsamning tvisvar, 1972 og 1994, og höfnuðu honum síðan í þjóðaratkvæðagreiðslu í bæði skiptin. Það sýnir einfaldlega að viðræður jafngilda ekki inngöngu. Nei í ágúst er jafnframt nei við því að íslenskur almenningur fái í þessari atrennu tækifæri til að hafna aðildarsamningi á upplýstum grunni. Að hafna samningi áður en hann er skrifaður er ekki ráðdeild, - það er ágiskun. Þjóðin á síðasta orðið Þjóðin á síðasta orðið í öllu falli. Fyrst um það hvort við hefjum á ný og klárum viðræður. Síðan um það hvort samningur, ef hann næst, sé ásættanlegur. Ef þjóðin hafnar fullbúnum samningi er málið líklega frá í langan tíma. Þá liggur niðurstaðan fyrir. Valkosturinn hefur verið metinn. Þjóðin hefur ákveðið. Ef þjóðin hafnar því hins vegar að ljúka viðræðum heldur málið áfram að hanga yfir stjórnmálunum og samfélaginu öllu, - án þess að nokkur viti hvað hefði staðið til boða. Það er versta niðurstaðan. Á óvissutímum á Ísland ekki að loka dyrum áður en vitað er hvað er fyrir innan. Við eigum að sækja staðreyndirnar, klára samninginn og leyfa þjóðinni að dæma. Já í ágúst er ekki já við inngöngu. Það er já við því að fá niðurstöðuna í hendurnar. Það er ekki áhætta að vita meira. Það er áhætta að neita sér um upplýsingar og kalla það varfærni. Höfundur er viðskiptafræðingur og stjórnarmaður í samtökunum Sjá. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun