Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Björn Berg Gunnarsson skrifar 14. júlí 2026 07:01 Björn Berg Gunnarsson svarar lesendum Vísis aðra hverja viku. Hægt er að senda honum spurningu í spurningaforminu hér fyrir neðan. Vísir/Vilhelm 27 ára kona spyr: „Mér finnst eins og allir í kringum mig séu að skipta greiðslum fyrir alls konar kaup (t.d. síma, tölvur og heimilistæki). Alltaf verið að tala um hversu hentugt þetta er og ódýrt. „Miklu betra að borga einhverja þúsundkalla á mánuði heldur en 200K núna“ sagði einn við mig. En er þetta ekki bara lán? Þessi sami einstaklingur er í raun að borga hátt í 70K samtals á mánuði fyrir allar þessar greiðslur. Er þetta virkilega jafn hentugt og lítið mál eins og margir virðast halda?“ Yfirleitt þarf ég að ræskja mig duglega með fyrirvörum á þessum vettvangi. Fjármál eru í eðli sínu persónuleg og fer svarið því oft eftir aðstæðum og smekk hvers og eins. Það er því ánægjuleg tilbreyting þegar hægt er að svara afdráttarlaust. Það er hollt að efast Af orðalagi spurningar þinnar má merkja heilbrigðar efasemdir um greiðsludreifingar. Þegar allir í kringum þig tala um að dreifa greiðslum hvíslar lítill fjármálalæsisálfur að þér „getur það í alvöru verið?“. Það eru góðar fréttir, því það getur verið erfitt að standast hópþrýsting. Björn Berg fjármálaráðgjafi svarar spurningum frá lesendum Vísis um allt sem tengjast fjármálum, fjárfestingum og öðru. Rándýr lán Þú spyrð hvort þetta séu „ekki bara lán“ og það er hárrétt hjá þér. Með greiðsludreifingu kýst þú að kaupa eitthvað núna og greiða fyrir það síðar. Misjafnt er hve áberandi kostnaðurinn er þegar lánin eru tekin, en þú átt alltaf að geta nálgast tölu sem kallast árleg hlutfallstala kostnaðar, eða ÁHK. Hún endurspeglar heildarkostnað lántökunnar (í þessu tilviki dreifingarinnar) á ársgrundvelli. Dæmi Tökum dæmi um kaup á iPhone 17 pro síma í einni íslenskri vefverslun. Ef greitt er fyrir hann strax kostar hann 210 þúsund krónur. Ef vinir þínir dreifa hins vegar kaupunum bætist við alls kyns kostnaður. Þeir geta til dæmis dreift greiðslum á 18 mánuði og þá þurfa þeir aðeins að greiða 14.776 kr. á mánuði. Þetta kalla vinir þínir hentugt og ódýrt. En þú veist að þetta er hræðileg hugmynd. Í þessu dæmi eru greiddir 16,5% vextir, 11.549 kr. lántökugjald og 789 kr. á mánuði fyrir að fá að greiða af láninu (greiðslugjald). ÁHK lánsins nemur þarna 38,33% og er langt í frá hæsti kostnaðurinn sem slíkar greiðsludreifingar geta borið (þær geta þó líka verið ódýrari). Í stað þess að síminn kosti vini þína 210 þúsund krónur finnst þeim þægilegra og ódýrara að greiða fyrir hann 254 þúsund krónur. Þú veist jafn vel og ég hvernig þetta endar. Þarna er verið að leyfa sér eitthvað sem ekki er svigrúm fyrir í heimilisfjármálunum og þá er gripið til þess ráðs að steypa sér í skuldir í stað þess að segja bara nei. Þessi hegðun verður sífellt meiri byrði á fjárhag fólks og dregur bæði úr öryggi og getu til að byggja eitthvað upp, greiða niður aðrar skuldir (sjá reiknivél) og hafa það betra fjárhagslega til lengri tíma litið. Þetta er grundvallaratriði að vita, ef við ætlum að vera þokkalega læs á fjármál. Fjármálalæsi 101 Ef bók um fjármálalæsi væri aðeins kápa og örfá orð gæti efni hennar verið á þessa leið: Kafli 1 – Svona eykur þú stórlega líkur á bjartri fjárhagslegri framtíðEkki taka neyslulán. Eðlilega þarftu aðstoð við að kaupa þér íbúð en annars skaltu ekki kaupa neitt sem þú hefur ekki efni á. Hvað ef neyslulán eru nauðsynleg? Í neyðartilfellum geta greiðsludreifingar vegna neyslu þó verið nauðsynlegar. Dæmi um það er ef ekki er hægt að kaupa nauðsynleg lyf eða mat. Ef enginn neyðarsjóður er til staðar gætum við þurft að bjarga okkur með lántöku, en þá borgar sig að nýta hagstæðustu mögulegu leiðir. Sömuleiðis þarftu að skipuleggja hvernig greiða á lánið fljótt og örugglega niður. Öll neyslulán eru dýr en til mjög skamms tíma geta greiðslukorta- og yfirdráttarlán verið skárri en lán sem fela í sér annan kostnað en aðeins vexti. Ræddu við bankann og kynntu þér aðrar lausnir áður en þú tekur því sem otað er að þér við kaupin. Hvernig gerum við betur? Ekki herma eftir vinum þínum. Þeir eru ekki vitlausir, þeir misskildu bara grundvallaratriði í fjármálum og sá misskilningur er mjög algengur. Hvettu þá til þess að byrja að greiða neyslulánin niður með skipulögðum hætti og skipuleggja sín fjármál þannig að aldrei þurfi að grípa í greiðsludreifingar framar. Til þess þarf þó fjárhagslegt svigrúm og þá gæti þurft að taka til í heimilisbókhaldinu. Ég útbjó nýlega reiknivél sem sýnir notandanum áhrif þess að sleppa eða skipta út ákveðnum útgjöldum og leggja fyrir sparnaðinn. Vonandi hjálpar hún þeim við að þoka fjármálunum í rétta átt. Það þarf að breyta stemningunni í þessum vinahópi og kannski getur þú velt þeim breytingum af stað. Eins og ég nefndi í upphafi er jákvætt að þú skulir bera þessa spurningu upp og efast um afleit viðhorf vina þinna. Það þýðir að þú ert nú þegar með þau heilbrigðu grunnviðhorf sem þarf til að byggja upp og viðhalda heilbrigðum fjárhag til framtíðar. Fjármálin með Birni Berg Fjármál heimilisins Mest lesið Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Viðskipti innlent Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Viðskipti innlent Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Viðskipti erlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Sjá meira
Björn Berg fjármálaráðgjafi svarar spurningum frá lesendum Vísis um allt sem tengjast fjármálum, fjárfestingum og öðru.
Fjármálin með Birni Berg Fjármál heimilisins Mest lesið Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Viðskipti innlent Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Viðskipti innlent Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Viðskipti erlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Sjá meira